10.03.1960
Neðri deild: 45. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í C-deild Alþingistíðinda. (2289)

86. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Flm. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa langa framsögu fyrir þessu frv., vegna þess að efni þess og tilgangur liggur það ljóst fyrir, enda líka bent á hann í sjálfri grg. Mér finnst samt rétt að láta það koma fram, sem reyndar segir í grg. einnig, að bezta tryggingin fyrir heilbrigðri og hagkvæmri verzlun sé frjáls samkeppni milli kaupfélaga og kaupmanna háð á jafnréttisgrundvelli. Það er hins vegar ljóst, að slík samkeppni getur ekki átt sér stað eða a.m.k. notið sín til fulls, ef skortur er á erlendum gjaldeyri eða hömlur á útlánum peningastofnana. Undir þeim kringumstæðum getur verið nauðsynlegt að grípa til sérstaks verðlagseftirlits og hámarksákvarðana um verð og álagningu af opinberri hálfu. Þegar slíkt telst hins vegar nauðsynlegt, þarf að ganga þannig frá þessum ákvörðunum, að þær séu sem réttast ákveðnar, en trauðla er hægt að vænta slíks, ef þetta vald er haft í höndum breytilegra stjórnarvalda, sem kunna að breytast með nýrri ríkisstj. eða nýjum ríkisstj. sitt á hvað, án þess að þær stéttir, sem þessi mál skipta mest, hafi nokkra aðstöðu til þess að hafa áhrif á þessar ákvarðanir eða gefa sín ráð um það, hvernig þær verði bezt ákvarðaðar og framkvæmdar. Það er því megintilgangur þessa frv. að reyna að finna á þessum ákvörðunum fast form, sem tryggi viðkomandi stéttum að hafa áhrif á þessar ákvarðanir, en ef fulltrúar þeirra geta hins vegar ekki komið sér saman um þessar ákvarðanir, þá sé það sérstakur, hlutlaus aðili, sem skeri úr ágreiningsefninu. Í 1. gr. frv. er það nákvæmlega rakið, hvernig þetta fyrirkomulag er fyrirhugað, og sé ég þess vegna ekki ástæðu til þess að rifja það nánar upp. Mér finnst hins vegar rétt að benda á það, sem reyndar er líka bent á í grg., að að verulegu leyti er hér tekið til fyrirmyndar það fyrirkomulag, sem hefur ríkt undanfarin ár um verðlagningu landbúnaðarafurða og almennt held ég að sé álitið að hafi gefizt nokkuð vel. Í stuttu máli sagt er það tilgangur frv. að reyna að færa umræddar verðlagsákvarðanir í svipað form, reyna að stuðla að bættu samkomulagi milli þeirra stétta, sem hér eiga hlut að máli, og koma á réttsýnni meðferð þessara mála og meðferð, sem gelur staðizt, þó að breytingar verði á ríkisstj., en ekki er hringlað með sitt á hvað, eins og átt hefur sér stað oft að undanförnu í sambandi við stjórnarskipti.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð öllu fleiri, en leyfi mér að leggja til, að að lokinni umræðu verði málinu vísað til fjhn.