20.05.1960
Neðri deild: 85. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í C-deild Alþingistíðinda. (2293)

90. mál, olíuverslun ríkisins

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir á þskj. 225, er nokkuð kunnugt hér frá fyrri þingum, enda er ekki undarlegt, þó að það beri hér alloft á góma, þar sem verzlun með olíuvörur er orðin svo mikill þáttur í öllum rekstri atvinnulífsins, að það mun ekki ofsagt, þó að hún snerti hagsmuni hvers einasta atvinnufyrirtækis í landinu og jafnframt hvers einasta einstaklings að meira eða minna leyti. Enn fremur má geta þess, að ríkisverzlun með olíuvörur hefur verið reynd hér á landi og. reynzt vel, að því er bezt er kunnugt. Það var á tíma heimsstyrjaldarinnar fyrri, 1914–18, að ríkið tók olíuverzlunina í sínar hendur til þess að forða þjóðinni frá þeirri hættu, sem henni stafaði af skorti á þessum vörum. Þessi verzlun var við lýði til ársins 1927, þegar hún var afnumin. En áður höfðu aðrir aðilar haft hér einnig aðstöðu til olíuverzlunar, og þar má fyrst nefna Hið íslenzka steinolíuhlutafélag, sem raunverulega var vitað að var eign hins danska olíufélags D.D.P.A., sem aftur var dótturfélag bandaríska olíuhringsins Standard Oil. Hinn aðilinn, sem hér hafði fengið aðstöðu, var Shell h/f, sem aftur var í nánum tengslum við brezka olíuhringinn með sama nafni. Þegar svo olíuverzlun ríkisins var lögð niður 1927, var stofnað fyrirtækið Olíuverzlun Íslands, BP, sem var jafnframt í nánum tengslum við brezka Anglo-Iranian-olíuhringinn eða nánast sem dótturfélag hans.

Þannig voru þessi mál fram að síðari heimsstyrjöldinni og raunar líka öll styrjaldarárin að meira eða minna leyti. Það mátti segja, að erlend verzlunarfélög hefðu með höndum algerlega jafnþýðingarmikla grein verzlunarinnar hér á landi sem olíuverzlunin þá var orðin. Þó hefur hún síðan orðið en þá veigameiri og sáust þess greinilega merki í lok stríðsins, að svo mundi fljótt verða sökum hinnar gífurlega miklu vaxandi véltækni, sem þá var í uppsiglingu. Þá gerðist það á þinginu 1947, að tveir þm., Hannibal Valdimarsson og Páli Zóphóníasson, fluttu frv. um olíueinkasölu. Bæði í grg. frv. þessa og framsöguræðu fyrra fhn. var gerð ýtarleg grein fyrir nauðsyn þess að taka þessi mál til endanlegrar lausnar með ríkiseinkasölu, en horfið frá því skipulagsleysi, sem þá ríkti. Meðal annars var sýnt þá greinilega fram á, hve óhæfileg, skipulagslaus fjárfesting mundi fara fram á næstu árum, þegar þrír aðilar færu í alvöru að keppa um kaupendurna í sambandi við þá ört vaxandi notkun, sem þá var fyrirsjáanleg á þessum vörum, auk alls annars aukakostnaðar, sem af því mundi leiða, að verzlunin héldist í sama horfi, og mundi vitanlega hækka verð þessara vara til notenda.

Þetta frv. varð ekki útrætt, og hefur málið komið fyrir á nokkrum þingum síðan, ýmist í formi frv. eða þáltill. Það var þó ekki mælt á móti þessu frv. með rökum. Þá hafði líka nýlega gerzt það, að stofnað hafði verið nýtt olíufélag, Olíufélagið h/f eða Esso, sem að vísu var haldið fram að væri að öllu leyti innlent, en tók þó raunverulega við öllum umboðum og öllu kerfinu af Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi og mun því fyllilega hafa haft bandaríska hringinn bak við sig, eins og hin félögin höfðu þá brezku. En nú varð Hið íslenzka steinolíuhlutafélag nánast dótturfélag Olíufélagsins og það hefur verið gert opinbert, að aðalstofnandi þessa nýja félags var Samband ísl. samvinnufélaga ásamt nokkrum aðilum öðrum.

Þegar skipan olíumálanna var komin í þetta horf, var eins og við mátti búast, erfitt að fá lögfest frv. eins og það, sem ég nefndi áðan, um einkasölu ríkis á olíu og benzíni. Til þess að það fengist, áttu höfuðráðamenn olíufélaganna of sterk ítök í tveimur stærstu flokkum þingsins, sem þá fóru með völdin. Eigi að síður hefur reynslan sýnt, að öll rök flm. fyrir breyt. í þessa átt voru réttmæt, og auk þess hefur margt annað komið í ljós síðan, sem sannar nauðsyn hennar, og nú skal vikið að þeim málum nokkru nánar.

Sú höfuðröksemd, sem formælendur núverandi skipulags færa því til gildis, er, að það tryggi heilbrigða samkeppni og þar af leiðandi lægra verð. Gegn þessu stendur reynslan sjálf, þekkt af hverju mannsbarni í landinu, sem til vits og ára er komið, og reynslan segir þetta: Hin þrjú olíufélög hafa algerlega hafnað þeirri hugmynd að keppa um viðskiptavini með því að reyna hvert um sig að hafa verðið svo lágt, sem þau komist vel af með. Er þar farið eins að og á fleiri sviðum, að hin frjálsa samkeppni er ekki lengur í gildi og í stað þess koma þau einfaldlega sér saman um verð, og að því leyti sem þau hafa orðið að sækja undir ríkisvaldið um verðlagsákvarðanir, hafa þau algerlega samræmt sínar kröfur til hinna opinberu verðlagsyfirvalda, lagt þar fram samræmda reikninga og ætíð gert kröfur um að fá að hafa verðið sem allra hæst. Þannig hefur í reynd orðið árangur þeirrar samkeppni, sem formælendur skipulagsins telja að bezt muni tryggja hagsmuni notendanna með lágu verði.

En fer þá virkilega engin samkeppni fram milli olíufélaga innbyrðis? mun margur e.t.v. spyrja. Jú, vissulega keppa þau nokkuð innbyrðis um viðskiptavinina. En sú samkeppni fer fram á þveröfugan hátt við hið eðlilega. Hún fer eingöngu fram á þann hátt, að þau keppast um að leggja í óhóflegar fjárfestingar undir yfirskini bættrar þjónustu til þess að reyna að ná viðskiptum til sín. Þessi fjárfesting lýsir sér í þreföldu geymslu- og dreifingarkerfi, þar sem víðast mundi nægja eitt, ef um þjóðarhag væri hugsað og jafnframt um hinn raunverulega hag viðskiptavinanna. Í kauptúnum og fiskibæjum hringinn í kringum landið má sjá þrjá olíugeyma standa hlið við hlið eða með örstuttu millibili, og þá ræður kannske fyrst og fremst pólitískt viðhorf kaupendanna, hvert þeir snúa sér til þess að kaupa olíu eða benzín. Og þegar út í sveitirnar kemur, þá má að vísu segja, að það sé ekki beint algengt að sjá tvo geyma saman á sama sveitabæ, en hitt er algengt víða um sveitir að sjá til dæmis Esso-geymi á einum bæ, BP-geymi á þeim næsta og Shell-geymi á þeim þriðja, þótt vegalengd milli þessara bæja sé ekki nema um eða innan við ½ km á lengd. En kostnaðinn af þessu öllu saman færa svo olíufélögin upp á sínum samræmdu reikningum, er þau sýna verðlagsyfirvöldum landsins til sönnunar á því, að þau fái raunverulega aldrei nógu hátt útsöluverð til þess að geta staðið sæmilega vel með rekstur sinn. Þegar samkeppni, sem átti að skapa lægsta verð, er komin út á þessa braut, er sannarlega öllu snúið öfugt við, því að það þarf enginn að láta sér til hugar koma, að þetta fyrirkomulag skapi á nokkurn hátt betri þjónustu en verið gæti, ef mál þessi hefðu verið skipulögð frá upphafi á einni hendi, þ. e. hins opinbera. Kostnaðaraukinn og hærra útsöluverð er það eina, sem unnizt hefur.

Þá vil ég víkja að öðru atriði, sem sýnir, hve mjög er nauðsynlegt að skipuleggja olíuverzlunina með hag notendanna og alþjóðar fyrir augum, og það er hinn mikil vöxtur olíuinnflutningsins og olíunotkunarinnar, sem orðið hefur nú um árabil. Hagstofustjóri hefur vinsamlegast látið mér í té skýrslu um innflutning á brennsluolíum og benzíni frá 1951, bæði magn og verð. Ég ætla ekki að eyða tíma í að lesa alla þessa skýrslu, það yrði of langur lestur, en tölur fyrsta og síðasta árs þessa tímabils sýna greinilega, hve aukningin er mikil og hvað þessar vörur eru orðnar gífurlegur þáttur í öllum rekstri þjóðarbúsins. Árið 1951 voru fluttar inn brennsluolíur að magni til 138270 tonn. og verðið var cif. 63 millj. og 602 þús. kr. En árið 1959 voru fluttar inn brennsluolíur að magni til 313877 tonn og cif-verð var í heild orðið 142 millj. 539 þús. kr. Hvað almennt benzín snerti, þá voru árið 1951 flutt inn 17180 tonn og heildar-cif-verðið var 12 millj. 772 þús. kr., en árið 1959 voru flutt inn 46618 tonn og heildar-cif-verðið var orðið 31 millj. 51 þús. kr. Flugvélabenzínið hefur aftur á móti þennan tíma staðið svo að segja í stað, þó aðeins lækkað bæði að innflutningi og magni.

Þar mun koma annað til greina, ekki sízt það, að annað aðalflugfélagið okkar mun nú aðallega kaupa sitt benzín erlendis.

Innflutningur á brennsluolíum hefur þannig vaxið á þessum 9 árum um rúmlega 227% hvað snertir heildarinnflutningsmagnið og rúmlega 270% hvað heildarverðið snertir. Magnið af benzíninu hefur vaxið um 224% og verðið um 243%. Þessar tölur nægja til þess að sýna, hversu gífurlega aukningu hér er um að ræða. og þær sýna enn fremur þá sívaxandi nauðsyn, sem er á því að skipuleggja veltuna með þessar vörur vel með hag alþjóðar fyrir augum og ekkert annað, enda er það fullkunnugt, að notkun þessara vara er sífellt að verða meiri og meiri þáttur, ekki aðeins í rekstri framleiðslu- og samgöngutækja, heldur einnig í hinni daglegu líðan fólksins á fjölda heimila, þar sem olía er notuð til upphitunar. Þá vil ég enn fremur benda á það, að samkv. því, er ég hef sagt áður um innflutningsverð þessara þriggja tegunda, þar er flugvélabenzínið með, sem ég taldi ekki áðan, þá hefur það numið 1959 189 millj. kr., og þar eru þó smurningsolíur ekki meðtaldar. Væru þær taldar með, mundi heildarinnflutnings-cif-verðið áreiðanlega nema nokkuð mikið á þriðja hundrað millj. kr., og þetta er miðað við það gengi, sem gilti fyrir síðustu gengislækkun. Getum við þá séð betur, hvernig þetta verður í krónutölu, eftir að búið er að lækka krónuna, eins og nú hefur verið gert, og sést þá enn betur, hversu mikilli upphæð þetta nemur á hvert einasta mannsbarn í landinu.

Það gefur þess vegna auga leið, að það skiptir miklu máli, hvernig farið er með verzlun þessara vara og hvernig hún er skipulögð. Ég vék að því áðan, hvernig reynslan hefði orðið af þeirri samkeppni, sem olíufélögin hafa haft sín á milli, og hvernig hún hefur beinlínis orðið til þess að hækka verð þessara vara. Og þá ætla ég að koma að öðrum þætti, sem ekki er síður athyglisverður, og það er sú bitra reynsla af óheiðarleika, sem sannazt hefur að átt hefur sér stað í sambandi við olíuverzlunina. Þetta hefur ekki einungis skeð einu sinni, heldur hvað eftir annað.

Fyrsta málið af þessu tagi var sem kunnugt er árið 1952, þegar Olíufélagið h/f varð uppvíst að því að hafa dregið sér ólöglegan gróða og var dæmt til að skila aftur hátt á aðra millj. kr. Það var þó engin sönnun fengin fyrir því, að þar hefðu öll kurl verið til grafar komin. Sú saga er gömul og allri þjóðinni svo gamalkunn, að ekki gerist þörf að hrekja hana hér í löngu máli eða aðra þá dóma, er gengu í sambandi við þessa atburði þá. En á s.l. ári rifjuðust þeir allir upp að nýju í sambandi við nýja kæru á hendur þessu sama félagi, og þó að rannsókn þess máls sé enn þá ekki lokið, hafa verið birtar opinberlega tvær skýrslur um hluta þeirrar rannsóknar. Samkv. þessum opinberu upplýsingum er hér um að ræða smygl, er nemur milljónum króna, án þess að eyrir hafi verið greiddur í lögboðin aðflutningsgjöld. Og ekki var verið að binda sig við eina tegund varnings, heldur ýmsar vörur, allt frá benzíni til áfengis. Eru m.a. í þeirri skýrslu, hinni fyrri, sem birt var, nefnd alls kyns tæki og vélar, varahlutir, frostlögur, ísvarnarefni og terpentína, svo að nokkuð sé nefnt. Aðstoð til þess að koma þessari iðju í kring fékk þetta olíufélag hjá móðurfélaginu Esso í Bandaríkjunum og hernámsliðinu á Keflavíkurflugvelli. Enn fremur er ljóst af fyrri skýrslunni, sem birt var, — hún var birt í lok októbermánaðar 1954, — að þessi iðja hafði verið rekin árum saman. Og í síðari skýrslunni, sem birt var 19. des. 1959, kemur þetta enn þá betur fram. Samkv. þeirri skýrslu er upplýst, að þessi tvö félög, Olíufélagið og dótturfélag þess, Hið íslenzka steinolíuhlutafélag, hafa beinlínis stolið 216 þús. dollurum af gjaldeyristekjum sínum, en það nemur sem næst hálfri sjöttu millj. kr. á gamla genginu, ef miðað er við þáverandi gengi og 55% álag. Var hér eins og áður um að ræða margs konar varning, sem fluttur var í nafni hernámsliðsins og erlendra verktaka á Keflavíkurflugvelli. Um aðferðina segir svo í skýrslunni, með leyfi hæstv. forseta:

„Til kaupa á þessum varningi varð það að ráði árið 1953 milli fyrrv. framkvæmdastjóra Hins íslenzka steinolíuhlutafélags og bandaríska fyrirtækisins Esso Standard Oil & Co., að stofnaður skyldi reikningur í nafni HÍS hjá dótturfélagi Esso Standard Oil & Co. í Bandaríkjunum. Reikningur þessi bar heitíð „Special Record“ og er nr. 4138. Inn á þennan reikning skyldu renna hvern mánuð 4000 dollarar, sem teknir skyldu af þeim fjárhæðum, sem Esso Export Corporation innheimti mánaðarlega fyrir Hið íslenzka steinolíuhlutafélag og Olíufélagið vegna sölu á eldsneyti, olíu og smurningsolíum til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.“

Enn fremur segir svo: „Hverju sinni voru útbúnir tveir reikningar fyrir innheimtuna. Annar var 4000 dollurum lægri en hinn. Sá fór í bókhald Hins íslenzka steinolíuhlutafélags. Hinn var sendur til Export Corporation til innheimtu í Washington. Þessum reikningi HÍS nr. 4138 var haldið vendilega leyndum fyrir gjaldeyriseftirlitinu. Reikningur þessi var opnaður 15. júní 1953. Reglulega hvern mánuð til maí 1957 voru lagðir 4000 dollarar inn á reikninginn. Greiðslurnar lögðust niður þá um eins árs skeið vegna minnkandi framkvæmda HÍS á Keflavíkurflugvelli, að því er fyrrverandi forstjóri Olíufélagsins hefur skýrt frá. Síðan hófust þær aftur í júlí 1958 og héldust út það ár.“

Þá segir enn fremur svo :

„Af gjaldeyrisinnstæðum á þessum reikningi var svo greitt andvirði margra þeirra tækja, sem Hið íslenzka steinolíuhlutafélag flutti inn tollfrjálst í nafni hernámsliðsins og fyrr er um getið.“

Þetta eru aðeins glefsur úr hinum opinberu skýrslum rannsóknardómaranna og sýna þó glöggt, hvílík reginspilling hefur fengið að þróast í öll þessi ár í skjóli hins svokallaða frjálsa verzlunarrekstrar á þessu sviði. Það er auðséð, að forráðamenn þessa félags hafa litið lært á dómi þeim, sem þeir fengu 1952 og 1953, þegar strax á miðju því ári er skipulögð svona fyrirferðarmikil svikastarfsemi og henni er haldið áfram viðstöðulaust öll þessi ár. Auk þess hefur fyllilega verið gefið í skyn, að sú rannsókn, sem að baki þessum skýrslum stendur, nái aðeins yfir nokkurn hluta málsins. Að vísu hefur verið gefin út opinber tilkynning um, að fleiri skýrslur verði ekki birtar. Hvort sú tilkynning átti að skiljast svo, að ekki sé meira um málið að segja, sem almenning varðar, skal ég ekki leggja dóm á nú, eða hvort hún á fremur að skiljast þannig, að rannsókn málsins sé þegar orðin svo víðtæk og hættuleg vissum aðilum fleirum en þeim fyrirtækjum, sem enn hafa komið við sögu, og kunni jafnvel að snerta líka allviðkvæma strengi innan þess stjórnmálaflokks, sem fer með dómsmálastjórnina núna, til þess að hyggilegt sé að fletta ofan af fleiru. En það hygg ég mega fullyrða, að einmitt þetta sé ekki lítið útbreidd skoðun meðal hins óbreytta borgara hvarvetna um landið. En þrátt fyrir þessa yfirlýsingu hefur það skeð núna alveg nýlega, það var síðast í fyrradag, að annað stjórnarblaðið, blað Alþfl. og viðskmrh., sem frægt er, — og þetta blað er frægt fyrir það að kunna að standa á hleri, — það hefur nýja sögu að segja og nú á þá leið, að auk alls hins fyrrnefnda hafi fyrrverandi framkvæmdastjóri Olíufélagsins og Hins íslenzka steinolíuhlutafélags flutt í kringum 80 þús. dollara frá Bandaríkjunum til Sviss, en í Sviss er sem kunnugt er það óska- og draumaland allra fjársvikara hvarvetna um heim, þar sem þeir geta óhultast geymt fjármuni sína, án þess að hægt sé að hnýsast í innstæður þeirra, eins og Alþýðublaðið kemst að orði. Þessi upphæð mundi nema á 4. millj. ísl. kr. og að því er blaðið segir flutt frá New York í byrjun árs 1959, rétt á eftir að rannsóknin hófst, en hún hófst í desember 1958.

Nú kann einhver að segja, að þetta eigi aðeins við um þetta eina félag, sem hér er um að ræða, Olíufélagið h/f og dótturfélag þess. Það er að vísu á vissan hátt rétt. Hin olíufélögin hafa ekki haft eins góða aðstöðu að geta notað verndarana á Keflavíkurflugvelli til þess að hjálpa sér til að koma í kring svona stórfelldum fjársvikum. En það er ekki aðalatriðið í þessu máli, hver það er, sem er sekur. Aðalatriðið er það, að þessi viðskiptaháttur skuli geta þróazt undir því skipulagi, sem er, og þessi viðskiptaháttur hefur líka birzt á fleiri sviðum í innflutningsverzlun okkar, þó að hvergi hafi sannazt jafngífurlega stórkostleg fjárplógsstarfsemi sem í þessu, enda er hér um að ræða þann vöruflokk, sem langsamlega mestum upphæðum veltir í okkar innflutningsverzlun.

Ég tel, að þessi saga öll ásamt þeim rökum öðrum, sem ég nefndi áðan, renni nægilega styrkum stoðum undir þá skoðun, að nauðsynlegt sé að gera hér á verulega skipulagsbreytingu, enda sjást þess greinileg merki, að sú er að verða skoðun fjölda manna, sem betur og betur eru farnir að sjá, að við svo búið má ekki standa lengur. Og þá verður ekki um aðra leið að ræða en ríkisverzlun að verulegu eða öllu leyti.

Þá ætla ég að víkja fáum orðum að frv. sjálfu, sem hér liggur fyrir, eða einstökum atriðum þess.

Þegar vinstri stjórnin hafði setzt að völdum árið 1956, lagði þáv. sjútvmrh., Lúðvík Jósefsson, þetta frv. fram í stjórninni og fór fram á, að það yrði flutt sem stjórnarfrv. Framsfl. neitaði að fallast á þetta, og þrátt fyrir margítrekaðar málaleitanir um það, náðist aldrei samkomulag um, að stjórnin yrði flytjandi þess. Þegar stjórnin var farin frá völdum og þar með séð, að ekki gat orðið um að ræða flutning þess sem stjórnarfrv., flutti Lúðvík Jósefsson málið sjálfur á síðasta þingi, og þar sem það varð þá ekki útrætt, hefur hann endurflutt það aftur á þessu þingi. Í bæði skiptin er það flutt í nákvæmlega sama formi og það var lagt fram í ríkisstj. Það er gert ráð fyrir, að stofnuð verði olíuverzlun ríkisins, sem annist öll innkaup á olíu og flutninga til landsins á öllum olíuvörum, bæði til brennslu og smurnings. Verzlunin skal sjá um flutning olíuvaranna í birgðastöðvar á innflutningshöfnum og leitast við að fjölga þeim til þess að auðvelda dreifingu. Enn fremur er gert ráð fyrir því, að hún taki núverandi birgðastöðvar á leigu af núverandi eigendum eða byggi nýjar, ef þörf er. Þó að ekki sé beint gert ráð fyrir, að olíuverzlunin hafi smásöluverzlun og dreifingu með höndum, mundi henni verða heimilt að selja opinberum aðilum og öðrum, er kaupa mikið magn í einu. Einnig mundu olíusamlögin án efa kaupa beint frá olíuverzluninni. Þá er enn fremur gert ráð fyrir því, að olíusamlög og aðrir aðilar, sem bundnir eru viðskiptasamningum við olíufélögin, séu lausir undan þeim án skaðabóta. Yfirleitt er í frv. ekki gengið eins langt og í öðrum tillögum, er fluttar hafa verið hér á Alþingi undanfarin ár um þessi mál, þar sem gert hefur verið ráð fyrir því, að olíuverzlunin taki að sér alla dreifingu þegar í stað. Það mun hafa vakað fyrir flm. að flytja málið í því formi, sem líklegast var að samkomulag næðist um, og jafnframt fá reynslu í þessum rekstri, er vísað gæti leiðina í þessum málum framvegis. Þá ber enn fremur að geta þess, að síðustu árin hefur ríkið verið hinn raunverulegi aðili, sem gert hefur sjálfa innkaupasamningana á þessum vörum. Þessi breyt. varð, þegar það féll inn í vöruskiptasamningana við Sovétríkin, svo sem hv. alþm. er kunnugt. En þegar svo er komið, að ríkið sjálft er orðið hinn raunverulegi kaupandi, er sannarlega í hæsta máta óeðlilegt, að það annist ekki heildsöluna og innflutninginn líka. Þegar er skeður sá skaði, að búið er að festa óhóflega mikið fé í vitlausum dreifingarkerfum sums staðar, eins og ég áður hef fært rök að. Auðvitað verður þetta kerfi notað, enda gerir frv. ekki ráð fyrir því að svipta hin starfandi olíufélög aðstöðu til að reka smásöluverzlun, a.m.k. að nokkru leyti. En það gerir hins vegar ráð fyrir því, að einnig fái aðrir aðilar, svo sem olíusamlög og félög bifreiðaeigenda o.fl., að kaupa olíuvörur beint frá sjálfri olíuverzlun ríkisins. Sé á annað borð unnt að skapa einhverja heilbrigða samkeppni til þess að halda verðinu niðri, ætti það að vera hægt með þessu fyrirkomulagi. Að öðru leyti þarfnast frv. ekki sérstakra skýringa.

Ég vil svo gera það að till. minni, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umræðu og fjhn.