03.05.1960
Neðri deild: 75. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í C-deild Alþingistíðinda. (2308)

101. mál, Reykjanesbraut

Flm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Á þskj. 222 flytjum við hv. 7. landsk. þm. frv. til laga um steinsteyptan veg frá Álftanesvegamótum um Keflavík og Garð og til Sandgerðis. Frv. fylgir allýtarleg grg., og get ég vísað til hennar að verulegu leyti um rökstuðning fyrir gildi málsins.

Þjóðvegakerfi landsins er mjög víða í óviðunandi ástandi, og nauðsyn þess að setja varanlegt slitlag á fjölförnustu vegina verður brýnni með hverju ári vegna sívaxandi umferðar á þeim. Þrátt fyrir mikinn viðhaldskostnað verða malarvegir með um eða yfir 1000 bíla umferð á dag aldrei í viðunandi lagi og slit ökutækja á þeim margfalt meira en á malarvegum með hóflegri umferð.

Um nokkurn hluta Reykjanesbrautar fara nú daglega fast að 2000 bifreiðar, smáar og stórar. Sérleyfisbifreiðar, sem um veginn fara, flytja árlega farþega, sem eru langtum fleiri en allir landsmenn samtals, og er þá ekki reiknað með því fólki, sem ferðast um veg þennan í einkabifreiðum og leigubifreiðum, en tala þess mun nema mörgum tugum þúsunda.

Reykjanesbraut er því tvímælalaust fjölfarnasti þjóðvegur landsins, og eyðsla á fjármunum vegna viðhalds vegarins og rekstrar farartækja nemur vafalaust mörgum milljónum króna á ári. Þessi staðreynd ein út af fyrir sig gerir það að verkum, að Reykjanesbraut ætti að hafa forgang umfram aðra þjóðvegi, þegar byrjað verður á því að steypa þá. En þar að auki kemur svo önnur ástæða engu veigaminni, sem gerir það óhjákvæmilegt og þjóðhagslega sjálfsagt að hefjast handa um framkvæmd þessa strax. Á ég hér við þá staðreynd, að innan nokkurra ára hlýtur Keflavíkurflugvöllur að gegna því hlutverki að vera aðalflugvöllur landsmanna bæði fyrir millilandaflug og sennilega einnig fyrir innanlandsflugið. Þegar svo er komið, er óhjákvæmilegt, að greiðfær, steyptur vegur tengi hann við höfuðborgina og nágrannabæi hennar.

Miklar umræður hafa að undanförnu staðið yfir um framtíð Reykjavíkurflugvallar, og virðast flestir þeirrar skoðunar, að hann geti aðeins skamma hríð gegnt því hlutverki, sem hann hefur nú í flugmálum þjóðarinnar. Höfuðborgin þrengir æ meira að honum, og þróun flugmála er að gera hann algerlega ófullnægjandi. Í næstu framtíð liggur það fyrir, að upp rísi stórt hótel í næsta nágrenni við Reykjavíkurflugvöll, og verði ráðhúsi Reykvíkinga valinn staður fyrir nyrðri enda Tjarnarinnar, hlýtur það að hafa truflandi áhrif á flug að og frá vellinum. Ekki þarf mikið að bera út af í flugtaki eða í lendingu, svo að lífi og eignum Reykvíkinga sé hætta búin af völdum flugvéla, sem Reykjavíkurflugvöll nota.

Nýlega skýrði Alþýðublaðið frá því, að flugbrautir Reykjavíkurflugvallar væru ekki nógu langar og undirstöður brautanna of ótraustar til þess að taka á móti hinum nýju flugvélum Loftleiða, ef þær kæmu fullhlaðnar frá Evrópu á leið vestur um haf, auk þess væru sumar brautanna, sagði blaðið, það signar, að hætta gæti stafað af, yrðu flugvélar þessar, sem væru á vesturleið, því að lenda á Keflavíkurflugvelli til að fá benzín og vistir til að halda áfram ferðinni til Ameríku. Sýnir þetta eina dæmi vel, hvert stefnir í þessum málum. Flugvélarnar verða stöðugt stærri, taka fleiri farþega og meiri farangur. Ef Reykjavíkurflugvöllur þolir ekki þunga þessara véla fullhlaðinna, hvað er þá um hinar stærri vélar, sem stöðugt eru að ryðja sér til rúms?

Á það hefur verið bent, að framtíðarlausn í flugvallarmálum Íslendinga sé sú að gera nýjan flugvöll á Álftanesinu. Hvað sem um þá hugmynd annars má segja, er augljóst, að stór flugvöllur þar ásamt nauðsynlegum búnaði mundi kosta mörg hundruð milljónir króna. Og hvað verður þess langt að bíða, að Álftanesið lendi inn í stórborg Reykjavíkur og nágrannabæjanna? Skapast þar þá ekki sömu vandamálin og nú er við að glíma á Reykjavíkurflugvelli?

Að dómi okkar flm. þessa frv. og fjölda annarra manna er bezta, ódýrasta og eðlilegasta lausn þessa vanda sú að notast við Keflavíkurflugvöll sem aðalflugvöll landsmanna og að gera þangað greiðfæran steyptan veg frá Reykjavík og suður eftir. Íslendingar eiga þennan flugvöll ásamt þeim mannvirkjum, sem þar eru. Öll aðstaða er þar fyrir hendi til þess að reka innanlandsflugið og ekki hvað sízt millilandaflugið. Frá Reykjavík yrði um 25 mínútna akstur í bifreið suður á Keflavíkurflugvöll, ef um góðan, steinsteyptan veg væri að fara. Er það frambærilegt, að það eitt út af fyrir sig dæmi Keflavíkurflugvöll úr leik sem aðalflugvöll landsmanna?

Ekki er talið ósennilegt, að Keflavíkurflugvöllur verði alþjóðleg lendingar- og skiptistöð á alþjóðaflugleið. Yrði svo, gefast mörg tækifæri fyrir landsmenn til viðskipta og nýrra atvinnugreina. En til þess að þetta geti orðið, er vafalaust, að vegarsambandið við höfuðborgina þyrfti að bæta stórlega.

Ég hef leitazt við að skýra fyrir hv. alþm. þær sérstöku ástæður, er réttlæta það, að Reykjanesbraut verði að steypa sem allra fyrst, og hvað því valdi, að hún hafi og eigi að hafa forgangsrétt umfram aðra þjóðvegi landsins að þessu leyti. Mér er fyllilega ljóst, að þörfin fyrir steinsteypta þjóðvegi er miklu víðar til og að því verður að stefna, að svo verði gert í framtíðinni.

Framkvæmd lagafrv. þessa er dýr, og því er eðlilegt, að heimilt sé að taka lán til hennar. Mjög er sennilegt, að hægt væri að endurgreiða það lán að verulegu leyti með því að leggja nokkurt gjald á bifreiðar, sem um veginn fara, þar sem sparnaður á viðhaldi þeirra og rekstrarkostnaði hlyti að verða verulegur frá því, sem nú er.

Auk þess vil ég lýsa hér yfir sem minni skoðun, að Reykjanesbraut er ekki sízt illa farin vegna þeirra afnota, sem Bandaríkjamenn hafa haft af vegi þessum á undanförnum árum eða Íslendingar, sem hafa starfað á vegum varnarliðsins. Ég lít því þannig persónulega á, að ekki væri óeðlilegt, að Bandaríkjastjórn eða varnarliðið greiddi að mjög verulegu leyti þann kostnað, sem yrði við þessa vegarlagningu, en þetta er persónuleg skoðun mín eins.

Það er vel kunnugt, hversu mikinn skerf Reykjanesbúar leggja í þjóðarbúið með hinum mikla sjávarafla. Það út af fyrir sig skapar þeim verulegan rétt á hendur stjórnenda þjóðfélagsins um að hraða vegargerð þessari sem allra mest. Þegar þar við bætast augljósir hagsmunir stórrar og sívaxandi atvinnugreinar, eins og flugið er, til þess að vegur þessi verði gerður, þá ætti að mega vænta þess, að hv. alþm. létu ekki á sér standa með að styðja það frv., sem hér er nú til 1. umr., og sú er líka von okkar flm. frv.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að óska þess, að málinu verði vísað til fjhn. og til 2. umr.