04.04.1960
Neðri deild: 61. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (2339)

105. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Fram. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Þetta mál á þskj. 232, þ.e.a.s. frv. til laga um breyt. á lögum um ættaróðal og erfðaábúð, flytur landbn. — eins og hitt málið, sem áðan var verið að vísa til 2. umr. — að beiðni landbrh. og með sama fyrirvara, að n. hefur óbundna afstöðu til málsins.

Frv. er samið af ábúðarlagan. skv. því, er fyrir var mælt í þáltill. Sþ. frá 4. maí 1959, og síðan lagt fyrir n. með bréfi landbrh., dags. 21. maí s. á. Lögin um ættaróðal og erfðaábúð eru frá árinu 1943.

Upp úr aldamótunum síðustu var tekin upp hér á landi sú stefna af hálfu þjóðfélagsins að styðja að aukinni sjálfsábúð í landinu. Þetta var einn þátturinn í hinni miklu og alhliða framfarasókn aldamótakynslóðarinnar. Þjóðin mundi ánauð þá og okurleigu, sem bændur þessa lands höfðu búið við öldum saman. Það var líka flestum ljóst, að með eflingu sjálfsábúðar mundu umbætur verða meiri á jörðunum en væru þær í út meðarfa sína. Þá hefur oft farið svo, að jarðleiguábúð. En með sjálfsábúðarstefnunni skapaðist hins vegar nýtt vandamál í sambandi við ábúðarskipti milli ættliða: erfiðleikar fyrir afkomandann að taka við sjálfsábúðinni og leysa úr hafa verið seldar hæstbjóðanda utan ættarinnar, og við það hefur fjármagn, sem búið var að leggja í jörðina, flutzt burt úr sveitinni. Þannig reyndist sjálfsábúðin ein saman ekki þess megnug að tryggja það, að jörð gengi frá manni til manns í sömu ættinni.

Til þess að ráða bót á þessu vandamáli og til þess að koma í veg fyrir sífelldan fjármagnsflutning úr sveitum landsins vegna sölu jarða og brasks með þær voru lögin um ættaróðul og erfðaábúð sett árið 1943. Um lögin og endurskoðun þeirra farast n. svo orð í nál. með frv., með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að grundvalla óðalsrétt, taka upp sérréttindi ættarjarða og ákveða, að opinberar eignir séu leigðar í erfðaábúð, er tilraun gerð til að treysta ættartengsl kynslóðanna við jarðir þær, er falla undir þessi ábúðarform. Þá er og að því stefnt að fyrirbyggja, að jarðir séu seldar innan ættar við verði, sem liggur yfir búrekstrargildi þeirra á hverjum tíma.

Það sjónarmið liggur til grundvallar óðalsréttarhugtaki laganna, að jörðin verði ekki einkaeign einstaks aðila, heldur sjálfseignarstofnun í ævarandi umráðum þeirrar ættar, er óðalsréttinn hefur að lögum. Það er ljóst, að eftir aðeins hálfan annan áratug er ekki að fullu komið í ljós, hver árangur verður af framkvæmd laganna. Enn þá eru það ekki margar sjálfseignarjarðir, sem gerðar hafa verið að óðalsjörðum. Þegar jarðir hafa verið seldar úr opinberri eign til ábúenda eftir þjóðjarðasölulögunum frá 1946, er skylda að gera þær að óðalsjörðum. Með þeim hætti hafa því óðalsjarðir grundvallazt á þessu tímabili.

Við endurskoðun laganna hafa fyrst og fremst verið teknir til athugunar ágallar, er fram hafa komið við framkvæmd laganna. Í öðru lagi er samræmi komið á, að því er viðkemur ákvæðum nýrra laga, svo sem lög nr. 48 1957 og lög nr. 4/1946, og felldar inn þær breyt., sem gerðar hafa verið á l. sjálfum 1950 og 1955.

Þar sem breyt. þær, sem hér eru lagðar til, eru meira samræming heldur en grundvallarbreytingar, þótti ekki ástæða til að endursemja lögin í heild, og er því frv. byggt upp sem frv. til breyt. á hinum eldri lögum, en gert ráð fyrir því með bráðabirgðaákvæðum, að þær skuli felldar inn í lögin frá 1943 og þau gefin út í heild, eins og þau verða, eftir að breyt. hafa verið samþ., og með tilliti til, að inn í þau eru felld þjóðjarðasölulögin frá 1946.“

Herra forseti. Ég mun þá ekki fara fleiri orðum um þetta mál að sinni, en vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr.