26.04.1960
Neðri deild: 71. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (2356)
120. mál, menntaskólar
Flm. (Einar Sigurðsson):
Herra forseti. Alþýðuskólinn á Eiðum var stofnaður með l. nr. 36 1917 og er algerlega kostaður af ríkissjóði.
Eiðaskóli hefur vaxið með hverju ári og er stolt Austfirðinga. Þar hafa fyrr og síðar verið margir afburðaskólastjórar og kennarar og síðar landskunnir menn í menningar- og búnaðarmálum. Margur er sá maðurinn, sem hefur í hinni löngu sögu skólans sótt þangað sitt andlega veganesti og menntun. Sumir hafa látið þar staðar numið, en aðrir hafa líka leitað sér æðri menntunar, og færist það í vöxt með hverju ári. Þessir gömlu nemendur skólans eru að sjálfsögðu dreifðir um allt land og gegna margir hinum mikilvægustu stöðum í þjóðfélaginu. En allir bera þeir hlýjan hug til skólans síns og vilja framgang hans sem mestan.
Í Eiðaskóla eru nú 103 nemendur og 8 kennarar. Skólinn hefur hvað eftir annað sprengt utan af sér húsnæðið, og má það vera mikið ánægjuefni forráðamanna skólans og velunnara, hve vöxtur hans og viðgangur hefur verið mikill. Austfirðingafjórðung eða hið nýja Austurlandskjördæmi byggja nú um 10300 íbúar og fer fjölgandi þrátt fyrir mikla flutninga af landsbyggðinni í þéttbýlið og við Reykjavík. Atvinnuhættir hafa undanfarið að mörgu leyti verið erfiðir á Austurlandi við sjávarsíðuna. En nú er bjartara fram undan í þeim efnum, þar sem síldin hefur á ný lagzt þar að landinu. Bendir margt til þess, að nú séu þar uppgangstímar fram undan meiri en nokkru sinni fyrr í sögu fjórðungsins.
Framhaldsskóli á Austurlandi er því líklegur til þess að búa við vaxandi aðsókn. Það hlýtur að vera ekki aðeins metnaðarmál Austfirðinga, að aðalmenntastofnun þeirra geti verið sem bezt úr garði gerð hvað alla aðstöðu til menntunar snertir, heldur ber og mikla nauðsyn til þess að létta austfirzkum ungmennum, sem vilja leita sér aukinnar menntunar, nokkuð kostnað við að sækja skóla suður eða norður með því að búa sem bezt að skóla þeirra heima í héraði. En vegleg menntastofnun í næsta nágrenni hlýtur líka að vera stöðug hvatning fyrir uppvaxandi ungmenni til að leita sér þangað þess veganestis í lífinu, sem aldrei verður af þeim tekið, menntunar. Lagt er því til í þessu frv., að komið verði á fót menntaskóladeild við alþýðuskólann á Eiðum.
Menntaskólar eru nú þrír: Reykjavík með 574 nemendur, Akureyri með 380 nemendur, Laugarvatn með 76 nemendur. Í Verzlunarskóla Íslands lesa um 70 nemendur undir stúdentspróf, og eru þannig alls um 1100 unglingar, sem lesa undir stúdentspróf. Borið saman við fólksfjölda væri eðlilegt, að allt að álíka margir nemendur læsu undir stúdentspróf á Austurlandi og á Laugarvatni. Talið er, að nú sæki árlega um 50 unglingar af Austurlandi slíkt nám í menntaskólana, sem fyrir eru. Það sýnist því ekki vanþörf á að koma hér til móts við Austfirðinga með því að skapa þeim aðstöðu til þess að búa syni og dætur Austurlands undir stúdentspróf heima í héraði.
Hér getur að vísu verið mikið verkefni á ferðinni og ekki þar með sagt, að það verði leyst í einni svipan. En það verður heldur aldrei leyst, ef aldrei er á því byrjað. Og því eru þessi heimildarlög hér á ferðinni.
Eiðaskóli er staðsettur miðsvæðis í stóru héraði, sem er rómað um allt land fyrir fegurð og búsæld. Þar vex skógur jafnt sem korn og gras. Tignarleg fjöll og fagrir ásar prýða landslagið, og fyrir framan skólann rennur Lagarfljót í allri sinni tign og veldi. En þrátt fyrir náttúrufegurð og marga kosti, sem staðsetning skólans hefur, má sjálfsagt deila um, hvort menntaskóli Austurlands á, þegar fram líða stundir, að vera staðsettur frekar á Eiðum en t.d. á Reyðarfirði, sem liggur bezt í þjóðbraut af öllum kaupstöðum á Austurlandi og á vafalaust eftir að gegna líku hlutverki á Austurlandi og Akureyri á Norðurlandi. En slíkir framtíðardraumar mega ekki trufla framgang þessa máls í bili a.m.k. Það er tilgangslaust að tala um stofnun slíks sjálfstæðs skóla, eins og sakir standa, en vel framkvæmanlegt að koma á fót menntaskóladeild við Eiðaskóla, enda þótt það hljóti að hafa nokkurn kostnað í för með sér. En það ætti allt að koma í góðar þarfir fyrir alþýðuskólann, þótt fullkominn menntaskóli yrði síðar reistur, t.d. á Reyðarfirði, ef það þætti heppilegra.
Fyrir ríkissjóð er það enginn sparnaður, nema síður sé, að fullnægja menntaskólaþörf landsmanna með því að reisa slíka skóla eingöngu í Reykjavík eða á Akureyri. Akureyringum mundi finnast mikið vanta, ef þeir hefðu ekki sinn menntaskóla. Alveg sama yrði upp á teningnum, ef Austfirðingar hefðu fengið sinn menntaskóla, að enginn hlutur þætti sjálfsagðari. Slík stofnun mundi gefa Austurlandi ómetanlegt menningargildi og vera fyrir byggðina þar mikil kjölfesta.
Við flm. vonum, að hv. þm. líti með skilningi og velvilja á þetta menningarmál Austfirðinga og veiti því hina beztu fyrirgreiðslu. Ég legg því til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.