16.05.1960
Neðri deild: 82. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (2403)

143. mál, verkfall opinberra starfsmanna

Jón Pálmason:

Herra forseti. Mér þótti nú óþarflega mikill svaki á mínum gamla samstarfsmanni, hv. síðasta ræðumanni, í þessari ræðu, og af því að ég hef ekki nema athugasemdartíma, þá get ég auðvitað ekki svarað nema fáu af því, sem hann hér sagði.

Hann lýsti því alveg réttilega, þegar við vorum samtaka í forustu fyrir því að koma á sex manna nefndar lögunum svokölluðu 1943, sem hafa reynzt bændastéttinni einhver beztu lög, sem nokkurn tíma hafa verið samþykkt. En hv. þm. spurði: Var þetta uppreisn? — Þetta var einmitt gagnstætt uppreisn, var gert með lögum hér á Alþingi. Þó að við hefðum forustu fyrir því í fjhn. þessarar hv. deildar að undirbúa þau lög, þá var þetta alveg gagnstætt því, að það ætti neitt skylt við uppreisn.

Ég vil taka það fram út af því, sem hv. þm. sagði fyrst, hvort ég talaði hér í umboði Sjálfstfl., að því fer alveg fjarri. Sjálfstfl. hefur ekki gert neina samþykkt um þessi mál. Ég veit ekki, hvort nokkur maður er sömu skoðunar og ég eða ekki. Ég hef mína skoðun og fer eftir henni og hef gert það stundum áður, og það er alveg víst, að a.m.k. hefði Sjálfstfl. aldrei samþ. vísitöluskrúfuna í 20 ár, ef ég hefði mátt ráða því.

Þá var þessi hv. þm. að tala um það, að við yfirskoðunarmenn ríkisreikninga hefðum sérstaka skyldu fram yfir alla menn aðra til þess að vernda ríkið, það væru ekki starfsmennirnir, sem eru fastlaunaðir embættismenn hjá ríkinu, heldur þessir vesalings yfirskoðunarmenn, sem fá tveggja ára gamla reikninga til að yfirfara, þegar allt er um garð gengið fyrir löngu. Við höfum gert margar athugasemdir á hverju ári um það, sem okkur ofbýður, hvernig farið er með fé ríkisins af ráðandi ríkisstj., en við höfum ekki fengið því ráðið. Þetta hefur alltaf farið versnandi, a.m.k. hefur það farið versnandi fram til ársloka 1958, því að ég hef ekki séð neinn reikning síðan og veit ekki, hvernig það hefur farið á því tímabili.

Þá spurði hv. þm. að því, hvort ég teldi, að það væri uppreisn, ef bændur heimtuðu betri kjör. Því fer alls fjarri. Það hefur aldrei komið til þeirra kasta, þó að bændur hafi beðið um hærra verð og meira samræmi á milli launa og afurðaverðs, að það væri neitt skylt uppreisn. En það var jafnvel undirbúið, að það gæti verið reynandi fyrir bændur að gera einu sinni uppreisn. Núna s.l. haust voru sumir menn, sem voru að undirbúa það að stöðva sölu á allri mjólk, gera verkfall, gera heldur mjólkina ónýta, hella henni niður, heldur en selja hana fyrir það verð, sem fáanlegt var með samningum við þann, sem kaup greiddi. Það hefði verið uppreisn. Og alveg eins er með þau samtök, sem gerð hafa verið og ég skal ekki fjölyrða hér meira um. En ef þetta mál kemur einhvern tíma til 2. umr., áður en ég fer héðan úr hv. d., þá kannske tala ég dálítið nánar um það, og þá fáum við hv. síðasti ræðumaður betra tækifæri til þess að ræða þessi mál. Og það verður að hafa það, hvort það er nokkur maður, sem hefur sömu skoðun og ég. Ég breyti henni ekkert sérstaklega fyrir því.