23.02.1960
Efri deild: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í C-deild Alþingistíðinda. (2470)
62. mál, erlend lán á Ræktunarsjóði Íslands og Byggingarsjóði sveitabæja
Flm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ræktunarsjóður Íslands fylgir öldinni að aldri. Lög um hann munu fyrst hafa verið sett aldamótaárið, en starfsemi hans var efld verulega með löggjöf 1924, og síðan hefur hann verið mikil driffjöður í ræktun landsins og uppbyggingu. Mér er tjáð, að á þeim tíma eða frá 1924 hafi hann veitt 11000 lán, sem hafi numið samtals fast að 300 millj. kr., auðvitað í ákaflega misstórum krónum. Ef þeim væri breytt í núgildandi smákrónur, mundu þau verða mörgum sinnum hærri upphæð. Lánin hafa verið veitt til 20 ára.
Nú er útistandandi hjá sjóðnum að sögn 229,6 millj. kr.
Byggingarsjóður sveitabæja tók til starfa 1929. Í þau full 30 ár, sem hann er búinn að starfa, hefur hann veitt um 3000 lán, sem nema samtals um 110 millj. kr., í ýmsum stærðum. Lánin hafa verið veitt til 42 ára. Nú á byggingarsjóður útistandandi 97,2 millj. kr.
Starfsemi beggja þessara sjóða hefur verið íslenzku þjóðinni ákaflega mikils virði. Framfarir í sveitum landsins á þeim áratugum, sem þeir hafa starfað, hafa orðið mjög miklar. Ræktun og byggingar hafa umskapað sveitirnar. Og þessir sjóðir hafa átt í þeirri umsköpun mjög stóran þátt. Það má segja, að með þeim hafi hafizt nýtt landnám á Íslandi.
Nú er það svo, að bóndinn, sem brýtur land og ræktar og byggir varanleg hús yfir fólk sitt og fénað, þarf til þess mikið fjármagn auk svitadropa sinna. Hann er líka ekki aðeins að vinna fyrir sig, heldur einnig og oft að meira leyti fyrir komandi kynslóðir, eða m.ö.o. hann vinnur fyrir þjóðfélagið, því að það verður langlíft í landinu, en ekki hann sjálfur persónulega, nema þá í gegnum störf sín.
Svo er háttað með þær eignir, sem bóndinn skapar sér með endurbótum á jörðinni, að hann getur ekki gert þær að fullu verði, ekki tekið fé sitt úr þessum eignum. Það er hreint og beint fágæt undantekning, ef svo er. Það er tilviljun eða annarlegar ástæður, sem valda því, að hann geti selt þessar eignir fullu verði og farið með þær úr sveitinni í peningum. Hins vegar geta aðrir þegnar þjóðfélagsins venjulega gert ráð fyrir að geta selt eignir sínar fullu verði, t.d. húsið í kaupstaðnum, skipið eða verksmiðjuna. Segja má því, að þjóðin eigi bújörðina með bóndanum og að hann vinni landnámsstörfin að verulegu leyti fyrir hana. Hann alheimtir ekki daglaun sín að kvöldum, og til þess að verk hans séu rétt metin, á ekki að reikna þau í árum, heldur í öldum.
Og af því að þjóðin á bújörðina með bóndanum, á þjóðfélagið að taka þátt í umbótum hennar með honum, og þetta hefur íslenzka þjóðfélagið gert á síðustu árum. Ræktunarsjóður og Byggingarsjóður sveitabæja voru stofnaðir til þess og hafa, eins og ég gat um áðan, verið bóndanum mikils virði og unnið með honum landnámsstörfin. Þjóðfélagið hefur útvegað sjóðunum fé, gert þeim kleift að lána féð með lágum vöxtum og löngum lánstíma. Þegar sjóðirnir hafa ekki getað staðið straum af lánum sínum, af því að útlánin hafa ekki skilað sér nægilega fljótt eða ekki borið vexti, er svöruðu til vaxtanna, sem stofnunin hefur orðið að skila, þá hefur Alþingi tekið á ríkissjóð kúfinn af skuldabyrðum ræktunarsjóðs og byggingarsjóðs, svo að þeir gætu borið sig fjárhagslega. Þannig var með sérstökum lögum 1953 létt af ræktunarsjóði 14,4 millj. kr. og jafnhárri upphæð af byggingarsjóði, eða samtals af sjóðunum báðum 28,8 millj. kr. Fjórum árum seinna, 1957, ákvað Alþingi á ný með heimild í fjárlögum að létta af ræktunarsjóði 32,3 millj. kr. og af byggingarsjóði 4,3 millj. kr., eða samtals af báðum sjóðunum 36,6 millj. kr.
Nú er samkv. eðlilegu áframhaldi svo komið, að hallarekstur er á sjóðum þessum, og sætir það engri furðu. Á árinu, sem leið, var rekstrarhalli ræktunarsjóðs rúml. 3 millj. kr. og rekstrarhalli byggingarsjóðs nál. 2 millj. kr. Skuldir ræktunarsjóðs eru nú í erlendum lánum samkv. hinni glænýju gengisbreytingu 174,9 millj. kr. og í innlendum lánum 80 millj. kr., eða samtals 254,9 millj. kr. Vaxtakjör erlendu lánanna eru 4–5%, en innlendu lánanna, sem eru hjá ræktunarsjóði frá mótvirðissjóði, 6½%. Skuldir byggingarsjóðs eru: Erlendar skuldir samkv. hinni nýju gengisskráningu 39,2 millj. og innlendar skuldir 36,3, eða skuldirnar samtals 75,5 millj. Hin nýja gengisskráning hefur hækkað erlendu lánin með einu pennastriki um 50% eða þriðjung. Þann þriðjung hafa sjóðirnir aldrei fengið til útlána, en verða nú að greiða hann, og það skerðir hag þeirra stórlega. Árgjöldin af erlendu lánunum hækka sem sé um nálægt 50%. Þetta gerir það enn brýnna en ella, að ríkissjóður sé strax látinn hlaupa undir baggana. Varasjóður ræktunarsjóðs var við síðustu áramót, eða áður en gengisfellingin varð, 36,7 millj. kr. Ef gengisfellingin væri færð á varasjóðinn, er hann uppurinn og hrekkur ekki til, 22 millj. eru fram yfir. Hins vegar stæðu rúml. 20 millj. eftir af varasjóði byggingarsjóðs, ef gengisfellingin væri á hann færð.
Það má ekki svo til ganga, að þessir sjóðir verði lamaðir og geti ekki starfað áfram, og þess vegna leggjum við flm. þessa frv. til, og það er í raun og veru ekkert nýmæli, eins og ég hef drepið á áður, að ríkissjóður taki að sér vegna sjóðanna þau lán, sem við tilgreinum í frv., og greiði framvegis árgjöldin af þeim.
Ég hef fengið þær upplýsingar hjá sjóðunum, að ef gengisfellingin er aðeins tekin til greina jafnharðan og árgjöldin koma til sögunnar, en ekki látin koma á varasjóðinn strax, — og það finnst mér vel mega gera, því að hér er um loft eitt að ræða, þar sem gengisfellingin er, — og hún er ekki látin koma fram, fyrr en að árgjöldunum kemur, þá mundi varasjóður ræktunarsjóðs yrjast upp á 7–8 árum og varasjóður byggingarsjóðs á 14 árum. Það sést því greinilega, að við svo búið má ekki standa. En árgjöldin af lánum þeim, sem við leggjum til að ríkissjóður taki á sig að standa straum af, verða að því er ræktunarsjóðinn snertir 10,8 millj. kr. og af lánum byggingarsjóðs 3,1 millj. kr., eða samtals yrði þetta þá fyrir ríkissjóðinn nálægt 14 millj. kr. á ári. Og með þessum ráðstöfunum er gengið út frá því, að rekstrarhallinn sé numinn brott um skeið. Hins vegar verður það auðvitað ekki til langframa. Sagan hlýtur að endurtaka sig, og um það er ekkert að fást. Það er saga þessara sjóða á undanförnum árum. Þjóðinni fjölgar, sem betur fer, og landnáminu verður að halda áfram. Um það getur ekki orðið deilt.
Ég legg svo til, að málinu verði vísað til 2. umr., eftir að þessi umr. er um garð gengin, og til hv. fjhn.