18.03.1960
Efri deild: 44. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (2473)
94. mál, síldarútvegsnefnd o.fl.
Flm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Með frv. því, sem hér er til 1, umr. og við hv. 3. þm. Vestf. höfum lagt hér fram, er lagt til, að síldarútvegsnefnd, sem nú er skipuð 5 mönnum, verði framvegis skipuð 7 mönnum. Þá er ákveðið, að þeir 2 menn, sem nú koma til viðbótar í n., verði tilnefndir af Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi og Félagi síldarsaltenda á Suðvesturlandi, einn maður frá hvoru félagi.
Félög síldarsaltenda eru nú tvö starfandi í landinu, Félag síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi og Félag síldarsaltenda á Suðvesturlandi. Bæði þessi félög ásamt Fiskifélagi Íslands á nýloknu fiskiþingi hafa einróma samþykkt að óska eftir því, að sú breyt., sem hér er lagt til að gerð verði á lögum um síldarútvegsnefnd, útflutning á síld o.fl., komi sem fyrst til framkvæmda.
Svo sem kunnugt er, eru starfandi sölusamtök framleiðenda í öllum greinum sjávarútflutningsframleiðslunnar nema varðandi saltsíldarframleiðsluna. Hún er nú í höndum hálfopinberrar nefndar, sem þannig er til komin, að það er hending ein, hvort nokkur nm. er þátttakandi í síldarsöltun. Nefndin er nú þannig skipuð, að þrír menn eru kosnir hlutfallskosningu af sameinuðu Alþingi, einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands og einn kosinn af síldarútvegsmönnum. Þegar til n. var stofnað í upphafi, mun það ekki hafa verið ætlunin, að hún skyldi ein hafa alla söluna á hendi, svo sem verið hefur um langan tíma, heldur væri það fyrst og fremst hlutverk hennar að koma í veg fyrir það neyðarástand, sem ríkjandi var í sambandi við síldarsöltunina, bæði hvað snerti ótakmarkaða framleiðslu og algert öryggisleysi um að ná því lágmarksverði, sem nauðsynlegt er hverju sinni, svo að framleiðslan fái borið sig og ekki komi til fjárhagsörðugleika og öngþveitis hjá framleiðendum.
Í núgildandi lögum var gert ráð fyrir því, að framleiðendur gerðu með sér eða stofnuðu til samlaga um sölu saltsíldarinnar. Til þess hefur þó ekki komið, en í þess stað hefur n. tekið að sér framkvæmdirnar og haft á hendi einkasölu og unnið að markaðsöflun. Það má segja, að framleiðendur geti notað sér þá heimild, sem lögin fela í sér hvað snertir að stofnsetja sölusamlög síldarframleiðenda, og kann svo að fara, að þess verði óskað, enda er það í sjálfu sér eðlilegast, að svo sé. Væri að því horfið, get ég ekki séð, að neina nauðsyn beri til þess að viðhalda sjálfri síldarútvegsnefndinni, og væri þá eðlilegast að leggja n. niður. Að þessu sinni er ekki lagt til, að svo verði, en hins vegar lagt til, að framleiðendum sé tryggð aðild að n., og verður það, eins og ég áður hef sagt, að teljast eðlileg þróun og það þótt fyrr hefði verið.
Aðrar breytingar á núgildandi lögum, sem frv. þetta felur í sér, eru að mestu leyti varðandi atriði í l., sem nú eru úrelt og samrýmast ekki framkvæmdinni, eins og vísað er til í grg. með frv.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um mál þetta á þessu stigi og get látið máli mínu lokið. Ég geri það að till. minni, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.