07.12.1959
Sameinað þing: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2491)
22. mál, frestun á fundum Alþingis
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þegar ríkisstj. var mynduð, reyndi hún strax að gera sér grein fyrir því, hvaða stórverkefni væru mest aðkallandi og hver vinnubrögð væru hagkvæmust varðandi lausn þeirra. Fjárlög ríkisins og róttækar efnahagsaðgerðir hlutu að verða efst á baugi. Að tilhlutan fyrrverandi stjórnar höfðu farið fram undirbúningsrannsóknir á efnahagsástandi og horfum. Það var ljóst, að óhjákvæmilegt yrði að ætla 6–8 vikur til að undirbúa tillögur í efnahagsmálum í hendur Alþingis. Frv. til fjárlaga fyrir næsta ár lá fyrir fullgert og prentað, ágætlega undirbúið af hæstv. fyrrv. fjmrh., Guðmundi Í. Guðmundssyni, og starfsmönnum ráðuneytisins. En frv. var byggt á þeirri skipan útflutnings- og innflutningsmála, sem nú hefur ríkt um hríð, og þar sem þarf að gerbreyta því kerfi öllu, verður og að gerbreyta fjárlagafrv.
Fljótlega var því horfið að því ráði að semja nýtt fjárlagafrv., sem lagt yrði fyrir Alþingi um svipað leyti og tillögur í efnahagsmálum. Nú lágu fyrir tvær hugsanlegar leiðir um vinnubrögð, önnur sú, að Alþingi héldi áfram fundum sínum allan þennan biðtíma sýslandi við einhver önnur mál en hin aðkallandi stórmál, ráðherrar væru bundnir við þingfundi, fyrirspurnir og málþóf ergilegra stjórnarandstæðinga og gætu því ekki starfað að stórmálum í næði. Hin leiðin var sú, að Alþ. ákvæði að fresta fundum sínum þennan tíma, ríkisstj. gæti þá gefið sig alfarið að efnahagstillögunum og þær lægju fyrir tilbúnar ásamt fjárlögum, þegar þing kæmi saman að nýju.
Ríkisstj. ræddi þessar leiðir við þá alþm., sem styðja hana. Allir þm, stjórnarflokkanna og allir ráðh. voru á einu máli um, að síðari aðferðin væri fortakslaust hyggilegri og hagkvæmari vinnubrögð fyrir alla aðila, þjóð og þing og stjórn.
Þegar þetta lá fyrir, lagði hæstv. forsrh. fram till. til þál. um samþykki Alþingis til frestunar á fundum þess til janúarloka í samræmi við yfirlýstan vilja meiri hluta alþm. Jafnframt beitti ríkisstj. sér fyrir tveimur málum, sem nauðsynlegt var að afgreiða fyrir þingfrestun: annað um að heimila venjulegar greiðslur úr ríkissjóði tvo fyrstu mánuði ársins, unz fjárlög væru samþ., hitt um óbreytta framlengingu á nokkrum tekjulögum, sem gilda um eitt ár í senn. Sams konar frumvörp hafa oft legið fyrir Alþingi áður og verið samþykkt þar ágreinings- og hljóðalaust, og öll skynsamleg rök mæltu svo eindregið með þessum vinnubrögðum, að þingreyndir menn urðu furðu lostnir, þegar stjórnarandstaðan í stað þess að fallast á þessar aðgerðir reis upp gegn þeim með slíkum ofstopa, taugatitringi og rosa, að elztu menn muna ekki annað eins veður.
Við skulum nú virða fyrir okkur lítillega þessar sápukúlur, sem þeir hafa blásið upp og kallað rök gegn frestun funda. í fyrsta lagi: Þingfrestun heitir á máli stjórnarandstæðinga ofbeldi, gerræði, þingræðisbrot, ríkisstj. sé að reka nýkosna þingmenn heim, senda þá hvern og einn á sína sveit, svo að ég noti nokkur orðatiltæki þeirra undanfarna sólarhringa. Þar til er því fyrst að svara, að þingfrestanir með samþykki Alþingis eru tíðar, ýmist um stuttan eða langan tíma. T.d. var fundum Alþingis frestað eitt sinn í sex mánuði eftir till. forsrh., sem þá var, Hermanns Jónassonar. En auk þess er það ekki stjórnin, heldur Alþingi sjálft, sem tekur endanlega ákvörðun um frestun, ef hún á að standa lengur en tvær vikur. Ásakanir stjórnarandstæðinga um þingræðisbrot og gerræði, ef þingi er frestað án samþykkis þeirra, þýða því grímulaust þetta: Vér, framsóknarmenn og kommúnistar, 27 að tölu, eigum að ráða, en ekki 33 þm. í stjórnarliðinu. Meiri hluti Alþingis og ríkisstjórnin skal beygja sig undir vilja minni hlutans. — Á annan veg verður afstaða þeirra ekki skýrð, þegar búið er að afklæða hana stóryrðum og blekkingum.
Í öðru lagi: Ég ætla, að flestir, ef ekki allir þm. viðurkenni, að eðlileg og óhjákvæmilegt sé að fresta afgreiðslu fjárlaga fram yfir nýár. Afleiðing þess varð auðvitað sú, að samþykkja þurfti nú lög um fjárgreiðslur úr ríkissjóði fyrstu tvo mánuði ársins. Hvort tveggja þetta. hefur iðulega komið fyrir áður, t.d. oftlega í ráðherratíð hv. 1. þm. Austf. En þótt þessi frestur sé nauðsynlegur nú vegna þess, hve seint á árinu stjórnin var mynduð og efnahagsaðgerðir fram undan, ber vitaskuld að stefna að því sem meginreglu, að fjárlög séu afgreidd fyrir áramót. En hvert er þá ádeiluefnið í þessu sambandi? Það, að 1. umr. fjárlaga fer ekki fram nú fyrir þingfrestun, heldur þegar þing kemur saman að nýju.
Við 1. umr. fjárlaga heldur fjármh. venjulega ýtarlega ræðu, fjárlagaræðuna, og skal henni útvarpað samkv. þingsköpum. Þar gerir hann grein fyrir frv. almennt og í einstökum atriðum, rekur fjárhagsafkomu ríkisins á liðnu ári og því ári, sem er að líða, ræðir ástand og horfur í efnahags- og fjármálum og höfuðstefnu stjórnarinnar í þeim málum. Með hliðsjón af því, að samið verður nýtt fjárlagafrv. og efnahagsráðstafanir enn á undirbúningsstigi, má það öllum mönnum ljóst vera, að ólíkt gleggri skil er hægt að gera þessum málum í janúarlok en í desemberbyrjun og að þing og þjóð hafa miklu meira gagn af fjárlagaræðu, sem flutt er mánuði eftir áramót, en mánuði fyrir áramót. Þessa ákvörðun um 1. umr. fjárlaga hafa stjórnarandstæðingar kallað ýmist óvenjulega aðferð eða einsdæmi eða brot á þingvenju eða lagabrot eða jafnvel stjórnarskrárbrot, allt eftir því, á hvaða stigi geðshræringa þeir hafa verið staddir.
Stjórnarskráin segir, að frv. til fjárlaga skuli lagt fyrir reglulegt þing, þegar er það er saman komið. Þetta var gert. En hvergi í stjórnarskrá né lögum stendur eitt orð um það, hvenær fjárlagaræðan skuli haldin og 1. umr. fara fram. Engin þingvenja er heldur til um þetta. Í reynd hafa liðið af þinghaldinu ýmist nokkrir dagar eða vikur, jafnvel upp í fimm vikur, til 1. umr. fjárlaganna. Að þessu sinni mun 1. umr. fjárlaganna fara fram í fyrstu viku, eftir að þing kemur saman að nýju, m.ö.o. áður en þrjár vikur eru liðnar af þinghaldinu.
Varðandi afkomu ríkissjóðs á árinu 1959 vil ég taka það fram nú, eins og hæstv. fyrrv. fjmrh. sagði í útvarpsræðu í október og einnig segir í grg. fjárlagafrv., sem liggur fyrir Alþingi, að ekki er ástæða til að óttast greiðsluhalla á yfirstandandi ári.
Þá er í þriðja lagi frumvarpið um bráðabirgðabreytingu og framlengingu nokkurra tekjulaga, þ.e. að framlengja óbreytt ákvæði. sem staðið hafa árum saman varðandi ýmis gjöld til ríkissjóðs. Þessi lög hafa framsóknarmenn framlengt ár eftir ár og enginn teljandi ágreiningur um þau lengi, en nú hafa þeir allt á hornum sér. Það er kallað óviðeigandi og óþinglegt að hafa þessar framlengingar í einu frv. nú í stað fimm áður. En það er á alla lund hagkvæmara að hafa þennan hátt á, og sízt situr á Framsfl. að gagnrýna það, því að hann beitti sér á sinni tíð fyrir frv., sem breytti tuttugu lögum í einu lagi, án þess að ég sé að vitna til þess frv. sem fagurrar fyrirmyndar. En nú má ekki framlengja þessi lög til eins árs, eins og alltaf hefur verið gert áður undir forustu hv. 1. þm. Austf., heldur aðeins til tveggja mánaða. En ef rannsókn efnahags- og fjármála leiðir til breytinga á þessum tekjustofnum, geta þær breytingar að sjálfsögðu komið til framkvæmda hvenær á árinu sem er.
Einn liður þessara framlenginga er söluskatturinn. Sá skattur er gallaður í núverandi mynd á marga lund, og er hafin endurskoðun á honum frá grunni. Stjórnarandstæðingar hafa í þessu sambandi tekið upp fyrri tillögur mínar um, að fjórðungur söluskattsins renni til bæjar- og sveitarfélaga. En um leið flytja þeir tillögu um, að þessi skipan skuli aðeins gilda í tvo mánuði, janúar og febrúar næsta árs. Ég er þeirrar skoðunar nú sem fyrr, að sveitarfélögin þurfi nýja tekjustofna. þ. á m. óbeinan skattstofn eins og söluskattinn, en ekki um tveggja mánaða skeið, heldur þurfi varanlega lausn. Það var því eitt af fyrstu verkum mínum í ríkisstj. að hefja undirbúning að nýrri löggjöf um tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, og munu tillögur um þau mál, a.m.k. suma þætti þeirra, koma fyrir Alþingi síðar í vetur.