07.12.1959
Sameinað þing: 8. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (2498)

22. mál, frestun á fundum Alþingis

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Allt frá því, að Íslendingar hófu endurheimt frelsis síns og Alþ. var endurreist, hefur þótt sjálfsagt, að ríkisstj., hver sem hún var, undirbyggi mál milli þinga og legði fjárlagafrv. og frv. um önnur helztu mál og réttarbætur svo fljótt fyrir Alþingi sem nokkur kostur væri. Stundum hefur raunar orðið á þessu nokkur misbrestur, en hingað til hefur ekki verið um það deilt, að eftir þessu bæri að keppa. Einstakir alþm. hafa að sjálfsögðu frumkvæðisrétt að lagafrv. og öðrum till., en eðli málsins samkvæmt hafa þeir ekki jafna aðstöðu og ríkisstj. með allt stjórnarráðið og embættismenn ríkisins sér til styrktar til undirbúnings mála. Um engin mál á þetta frekar við en efnahagsmál slík sem nú bíða úrlausnar. Um þau verða ekki með neinu móti gerðar heildartill. af öðrum en þeim, sem aðgang hefur að öllum gögnum um afkomu ríkis og atvinnuvega og getur látið sérfræðinga vinna úr þeim til undirbúnings ákvörðunum. Lausn þessara mála er hins vegar undirstaða flests eða alls annars, sem gert verður á Alþ., þ. á m. og ekki sízt afgreiðslu fjárlaga. Þinghald er þess vegna þýðingarlítið, fyrr en fram eru komnar till. um lausn þessara mála ásamt nauðsynlegum gögnum, svo að þingheimur og almenningur geti áttað sig á og dæmt um hinar fram komnu till. Það er tvímælalaust skylda ríkisstj. að leggja þessar till. fyrir þingið svo fljótt sem verða má, til þess að störf þess geti hafizt og haldið áfram með eðlilegum hætti.

Nú tók ný ríkisstj. við völdum sama dag og Alþ. kom saman. Af þessu leiðir, að hún hefur engan tíma haft til venjulegs undirbúnings til að greiða fyrir störfum þingsins. Þvert á móti stendur svo á, að fjárlagafrv. er samið undir umsjá annars fjmrh. en nú á að leggja það fram og gera grein fyrir því, að því ógleymdu, að það er að sjálfsögðu ekki sniðið eftir þeim till. í efnahagsmálum, sem hin nýja ríkisstj. á eftir að semja. Þess vegna er ákveðið, að nýtt fjárlagafrv. skuli samið, og mundi því starf fjvn. að frv. nú gersamlega unnið fyrir gýg.

Brbl. um landbúnaðarverð varð nú einnig að leggja fram af hinum nýja landbrh., sem allir vita að er efni þeirra andvígur.

Þegar svo stendur á, getur engan undrað, heldur er það eitt eðlilegt, að hin nýja ríkisstj. fari fram á það við þingið að fá þinghlé til þess að geta undirbúið mál og komið þeim í það horf, sem venjulegt er, þegar Alþ. kemur saman. Þetta er því nauðsynlegra, þar sem vandi efnahagsmálanna er nú svo mikill og aðkallandi, að lausn, hver sem hún verður, má ekki dragast lengur en óhjákvæmilegt er. Fjarstæða er þess vegna að telja það ofbeldi við þingið, þó að stjórnin fari fram á það að fá nokkurra vikna undirbúningstíma og starfsfrið. Frestun þingsins verður einmitt ekki gerð, nema meiri hluti þingsins veiti samþykki sitt til hennar. Þeir, sem hér hafa haft í frammi óhæfileg vinnubrögð, eru forustumenn stjórnarandstöðunnar, sem hafa sjálfir ásamt fylgismönnum sínum. sem þeir hafa kúskað til þess, haldið uppi málþófi á þinginu nokkuð á aðra viku um mál, sem hingað til hefur þótt sjálfsagt að afgreiða umræðulítið og oftast með afbrigðum frá þingsköpum á einum eða tveimur dögum. Þeim loddaraleik lauk ekki fyrr en sýnt var, að ef þeir létu ekki af sínum óþinglegu vinnubrögðum, yrði ákvæðum þingskapa beitt til þess að binda endi á málþófið.

Það er meira en hlálegt að heyra Hermann Jónasson býsnast yfir því, að umræður hafi verið skornar niður, manninn, sem beitti sér í sinni fyrstu stjórnartíð fyrir miklu harðari ákvæðum í þingsköpum um niðurskurð umræðna en áður höfðu gilt og lét síðan beita hinum nýju ákvæðum ótæpt. Jafnfráleitt er tal þessara manna um, að það sé gegn réttum stjórnarháttum, ef stjórnin leysir einstök vandamál í þinghléinu með útgáfu brbl. Stjórnskipulegur réttur til slíkrar lagaútgáfu er óumdeildur. Má þar um t.d. vitna til útgáfu stjórnar Hermanns Jónassonar á brbl. um heimild fyrir ríkisstj. til íhlutunar um sölu og útflutning á ýmsum íslenzkum afurðum hinn 8. maí 1935, sem gefin voru út nokkru eftir að þingi hafði verið frestað. Og allra sízt ferst núv. stjórnarandstæðingum að saka aðra fyrir útgáfu brbl. í upphafi stjórnartíma. Minna má á, að þeir Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson komust fyrst í ríkisstj. 29. júlí 1934, en strax 9. ágúst sama ár gáfu þeir út brbl. um ráðstafanir til þess að greiða fyrir viðskiptum um sláturafurðir og ákveða verðlag á þeim og hinn 10. sept. sama ár um meðferð og sölu mjólkur og rjóma o.fl. Sízt munu aðstandendur þessara laga þó vilja gera lítið úr þýðingu þeirra, fremur en forustumenn vinstri stjórnarinnar úr þýðingu brbl. frá 28. ágúst 1956 um festingu kaupgjalds og verðlags, sem var eitt fyrsta verk þeirrar stjórnar, eftir að hún tók við völdum 24. júlí sama ár. Eftir tali framsóknarmanna og kommúnista nú hefði mátt ætla, að þeim hefði aldrei til hugar komið að setja slík grundvallarákvæði án þess að kveðja Alþingi til funda og tryggja sér fyrir fram formlegt samþykki þess. Reynslan sýnir annað. Mjólkurlögin frá 10. sept. 1934 áttu meira að segja ekki að meginefni að taka gildi fyrr en löngu eftir að Alþ. skyldi komið saman. Tilgangurinn með brbl. sýndist því einkum hafa verið sá að láta þáv. stjórnarandstöðu alls ekki komast að með sínar till., víkja henni til hliðar, eins og Hermann Jónasson stærði sig af á Hólmavík fyrir rúmu ári, að þáverandi stjórn hans væri vel á veg komin að gera með helming íslenzku þjóðarinnar. Þvílíkur hugsunarháttur er fjarri núv. stjórn. Hún ætlar sér engan að setja til hliðar, heldur mun leita samstarfs við alla þá aðila, sem hér hafa réttmætra hagsmuna að gæta, þingmenn, stéttarsamtök og aðra. Stjórnin biður um það eitt að fá tíma til þess að undirbúa till. sínar í meginmálum fyrir Alþ. til ákvörðunar þess og aðstöðu til þess að leysa einstök vandamál. sem að kunna að steðja á þessu tímabili. Allt mun þetta síðan lagt fyrir Alþ., svo fljótt sem föng eru á, en það mun koma saman aftur ekki síðar en hinn 28. jan. n.k. En auðvitað hefur engum í ríkisstj. komið til hugar að 1ögfesta heildarlausn efnahagsmálanna með brbl., svo sem sumir, a.m.k. Páll Kristjánsson, héldu fram í umræðunum hér áðan.

Stefnuyfirlýsingar sjálfstæðismanna og Alþfl. voru svo líkar fyrir kosningar þrátt fyrir ágreining þeirra um, að ef þeir fengju saman meiri hluta á Alþ., um einstök atriði, að engum blandaðist þá hugur bæri þeim að mynda stjórn og reyna að leysa þann voða, sem yfir vofir, í samræmi við yfirlýsingar sínar. Hermann Jónasson reyndi raunar áðan að láta svo sem allt annað hefði verið í skyn gefið fyrir kosningar. Óteljandi ummæli Tímans og Þjóðviljans sanna, að í þessu sem mörgu öðru fer Hermann Jónasson með rangt mál. Bæði Tíminn og Þjóðviljinn fullyrtu fyrir kosningar, að stefna Sjálfstfl.-manna og Alþýðuflokks í hinum stærstu málum væri hin sama. Á grundvelli þessara yfirlýsinga flokkanna greiddu kjósendur atkvæði. Úrskurður þjóðarinnar var ótvíræður. Núv. stjórnarflokkar fengu saman nær 55% atkvæða, en Framsókn og kommúnistar einungis um 42%. Myndun núv. ríkisstj. er þess vegna bein framkvæmd og fullnæging á úrskurði mikils meiri hluta þjóðarinnar. Það eitt er í samræmi við kosningaúrslitin, að þessir flokkar semji um þau ágreiningsatriði, sem eru þeirra í milli og úrlausnar krefjast.

Framsóknarmenn býsnast nú yfir því, að sjálfstæðismenn skuli ekki strax við 1. umr. hafa greitt atkv. á móti brbl. um verð á landbúnaðarvörum. Með því hefði málinu verið neitað um þinglega meðferð og fyrrv. hæstv. ríkisstj. verið sýnd frekleg óvirðing, önnur og meiri en tíðkuð er, þótt mikill málefnaágreiningur sé fyrir hendi. Framsóknarmenn eru reyndar illræmdir á meðal allra, sem með þeim hafa unnið, fyrir óbilgirni í samstarfi. Þar af m.a. kemur einangrun þeirra nú. En þó efast ég um, að jafnvel þeir hefðu beitt samstarfsflokk sinn slíkum aðförum. Fyrir sjálfstæðismenn kom það aldrei til greina. Við virðum og höldum eigin orð, en við virðum einnig réttar samstarfsreglur. Hér sem ella skiptir þó málefnaleg lausn vandans sjálfs mestu máli. Þar mun ríkisstj. leggja sig alla fram um, að samkomulag náist milli aðila sjálfra, og með öðrum tiltækilegum ráðum reyna að afstýra vandræðum.

Mikið liggur við fyrir þjóðina alla, að vel takist í þessu, og þó enn meira að leysa sjálfan meginvanda efnahagsmálanna, svo að hruni verði afstýrt og sjálfstæði þjóðarinnar verði tryggt, en það er vissulega nú í húfi. Um till. ríkisstj. er fyrst tímabært að ræða, þegar þær koma fram. Ógnartal Lúðvíks Jósefssonar hljómar innantómt, þegar menn hafa í huga þá tvöföldu gengislækkun, sem hann var aðili að, fyrst með jólagjöfinni 1956 og síðan með bjargráðunum 1958, og drógust þau þó mun lengur en hann ráðgerir nú að okkar till. muni dragast. Um það, hvernig til takist í þessum efnum, er bezt fyrir okkur alla á báða bóga að spara stóru orðin fyrir fram. Þau gera engum gagn. En að réttum lýðræðisreglum á þjóð og þing kröfu til þess, að ríkisstj. leggi fram tillögur sínar og greinargerðir eins fljótt og við verður komið. Ríkisstj. viðurkennir þessa skyldu, tekur hana á sig, en fer fram á það eitt að fá starfsfrið til að leysa hana af höndum. Síðan mun þessi ríkisstj. eins og aðrar verða dæmd eftir verkum sínum.