02.03.1960
Sameinað þing: 20. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (2508)

54. mál, fjarskiptastöðvar í íslenskum skipum

Flm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Í síðustu heimsstyrjöld var með reglugerð fyrirskipað, að íslenzk skip skyldu hafa loftskeytatæki í bjargbátum og bjargflekum sínum. Þessi tæki voru á þeim tíma langt frá því að vera fullkomin, enda ekki komnar fram á sjónarsviðið þær tækniframfarir, sem urðu á þessu sviði síðustu ár stríðsins og á árunum þar á eftir. Sérstaklega þóttu rafhlöður tækjanna, sem voru orkugjafi þeirra. og rakavarnir mjög ófullkomnar, enda fór svo, að fyrir tilmæli skipaskoðunarstjóra var ákveðið með ráðherrabréfi árið 1947, að ekki skyldi krefjast loftskeytatækja í bjargbátum eða bjargflekum fyrst um sinn.

Þann 19. nóv. 1952 gekk í gildi alþjóðasamningur um öryggi mannslífa á sjónum, sem Ísland er aðili að. Í þessum samningi er m.a. fyrirskipað, að verzlunarskip í millilandasiglingum skuli hafa hreyfanlegt neyðarsenditæki, er sé þannig útbúið, að það sé nothæft fyrir ófaglærðan mann í neyðartilfellum, það sé meðfærilegt og vatnsþétt og á að geta flotið og verið nothæft, þótt í sjóinn sé kastað. Og það er tekið fram, að helzt skuli það vera drifið af handsnúnum mótor eða viðurkenndum rafhlöðum. Þetta tæki á að hafa loftnet, sem á lofti sé með hjálp bátsmastursins, eða svokallað drekaloftnet, sem eykur langdrægni stöðvarinnar um a.m.k. helming eða allt að fjórum sinnum.

Eftir að atburður sá átti sér stað, sem flutningsmenn þessarar till. vitna til í grg. hennar, er einn af togurum okkar var talinn af meðal almennings. Vegna þess að tiltölulega meinlaus sjóhnútur á mælikvarða sjómanna gerði fjarskiptatæki skipsins óvirk, svo að engu sambandi er náð við skip í fárra tugmílna fjarlægð, — þá við þær umræður, sem urðu um þennan atburð, varð sú kaldranalega staðreynd ljós, að þótt verzlunarskipi með þrettán manna áhöfn, er siglir til nágrannalanda okkar, sé skylt að hafa hreyfanlegt reyðarsenditæki, eins og ég hef þegar lýst, til að auka öryggi skipverja. þá er togari með 30–40 manna áhöfn, sem stundar veiðar á fjarlægum miðum og siglir á milli landa ekki síður en verzlunarskip, ekki skyldur til að hafa slíkt tæki um borð, einfaldlega vegna þess, að fiskiskip heyra ekki undir áðurnefndan alþjóðasamning, og þess þar af leiðandi ekki krafizt.

Á íslenzkum togurum er nú skylt að hafa eina langbylgjustöð, 150 watta, en í framkvæmdinni er þetta þó þannig, að lengra er gengið á þessu sviði, þar eð allir togarar hafa samkv. reglugerð sterkari langbylgjustöð og þar að auki 300 watta stuttbylgjustöð fyrir morse, og svo auk þess vegna áhrifa frá Landssíma Íslands og með stuðningi íslenzku skipaskoðunarinnar hafa þeir sem neyðarstöð eina tal- og morsestöð fyrir millibylgjur, sem rekin er eins og hinar með orku frá rafölum skipsins eða frá rafgeymum. En ekkert af þessum tækjum er hreyfanlegt og öll staðsett á sama stað. Á togurum okkar eru því engin hreyfanleg neyðarsenditæki, sem grípa má með í björgunarbát, ef yfirgefa þarf skipið eftir árekstur við annað skip eða ís eða vegna annarra orsaka. Það skilja allir þýðingu þess, ef ekki hefur tekizt að koma staðarákvörðun svokallaðri frá hinu sökkvandi eða brennandi skipi, áður en það var yfirgefið langt frá siglingaleiðum, eins og togararnir okkar eru venjulega. Það eru reyndar líka dæmi fyrir því, að þótt tími hafi gefizt til slíks með fjarskiptatækjum skipsins sjálfs og sú staðarákvörðun hafi verið rétt, sem þá er upp gefin, þá hafi oft liðið það langur tími, unz komizt var á hinn uppgefna stað til björgunar eða leitar, að t.d. gúmmíbjörgunarbátar hafi þá borizt vegna straums og vinda tugi og jafnvel hundruð mílna frá þeim stað. Það hljóta allir að skilja þýðingu þessara tækja undir slíkum kringumstæðum, þegar það er beinlínis grundvallarskilyrði fyrir leitarskipin að hafa sendingar þessara tækja til að miða sig áfram eftir, svo að hjálp megi berast í tæka tíð. Hér er bersýnilega úrbóta þörf, og auðsýnt er, að um leið og eldri ákvæði eru endurskoðuð, þurfi að setja reglugerð fyrir fiskiskip okkar um slík tæki, sem gengur jafnlangt og ákvæði reglugerðar þeirrar, sem er í alþjóðasamningnum um öryggi mannslífa á sjónum.

S.l. vetur var samþykkt hér á hæstv. Alþ. ályktun um læknishjálp sjómanna á fjarlægum miðum. Er mér ekki kunnugt um. að neinar raunhæfar aðgerðir hafi verið gerðar á þessu sviði af hendi íslenzkra aðila, heldur var látið sitja við það eitt að þiggja boð Vestur-Þjóðverja um, að slík aðstoð yrði góðfúslega látin í té um borð í eftirlitsskipum þeim, sem fylgdu þeirra skipum á fjarlæg mið. Allir, sem vit hafa á, vita, að í þessu getur mikil hjálp verið fólgin og öryggi. En þess ber þó að gæta, að skipum þessum er fyrst og fremst ætlað eftirlit og aðstoð í skipum sinnar þjóðar, sem í flestum tilfellum eru í mikilli fjarlægð, og veldur það því, að engin raunhæf hjálp er möguleg. Og þótt leiðbeiningar fengjust og næðust með aðstoð þeirra fjarskiptatækja, sem um borð í skipunum eru, kæmu þær í flestum tilfellum ekki að notum, ekki a.m.k. að þeim notum, sem ætla mætti, vegna ónógrar tungumálakunnáttu annaðhvort viðtakenda eða jafnvel sendanda.

Flm. þessarar till. leyfa sér að benda á stuttbylgjutalstöðvar sem lið til hjálpar þessari nauðsynlegu læknisaðstoð vegna hins geysilega mikla langdrægis þeirra. Með stuttbylgjutalstöðvum má undir flestum kringumstæðum hafa talsamband við Ísland, þótt frá mjög fjarlægum hafsvæðum sé, og má þar sem dæmi nefna allar venjulegar siglingaleiðir íslenzkra verzlunarskipa svo og öll fiskimið, sem togarar okkar hafa stundað veiðar á undanfarin ár. Það eru nú tvær neyðartíðnir í notkun á mið- og langbylgjum og eru opnar hér heima allan sólarhringinn, en á þær er alls ekki treystandi, og í flestum tilfellum eru þær óvirkar, þegar um er að ræða hin fjarlægari mið og siglingaleiðir. Ef stuttbylgjutalstöðvar væru í öllum okkar verzlunarskipum og stærri fiskiskipum og hér heima væri allan sólarhringinn opin neyðartíðnimóttaka fyrir þær og frá stöðinni hér heima væri alltaf hægt að komast í samband við einhvern stað, þar sem læknavarzla væri allan sólarhringinn, þá má undir flestum kringumstæðum strax ná í ráðgefandi læknishjálp, þar sem hvorki tungumálakunnátta né fjarlægð væri þröskuldur í vegi fyrir slíku. En að sjálfsögðu yrði jafnhliða eða fyrst að fara hina eðlilegu byrjunarleið, að færa lyfjaskrín skipanna í fullkomnara horf og auka hagnýta þekkingu þeirra manna, sem um þau eiga að sjá um borð í skipunum, í slysahjálp og hjúkrun, en þar má mikið um bæta frá því, sem nú er.

Ég tel óþarfa að benda á aðra þætti þess stóraukna öryggis, sem slík þjónusta mundi veita skipi og skipshöfn, en vil þó einnig benda á enn eina hlið málsins. Ef slík þjónusta yrði veitt, yrði það til stóraukinna hagsbóta fyrir útgerðarmenn skipanna, sem þá gætu hvenær sem er haft talsamband við skipstjóra sina, hvar sem skipin eru stödd. Nú þegar eru slíkar stöðvar í 34 íslenzkum skipum og 6 munu bætast við á þessu ári, sem öll munu hafa þessi tæki. Eldri togarar og verzlunarskip okkar, sem ekki hafa þau, eru 45 að tölu. Ef tækin yrðu sett í þau skip, þá er næg orka fyrir hendi þegar í skipunum, og á því sviði þarf enga viðbót eða breytingu, og tækin sjálf er hægt að smíða hér heima hjá Landssíma Íslands. Loftskeytastöðin í Gufunesi heldur uppi nú þeim stuttbylgjuviðskiptum, sem hér eiga sér stað, en þjónustan er aðeins tvær klukkustundir á dag. En um leið og nýi sæsíminn kemst í notkun, losna stöðvar, sem geta tekið upp þjónustu við skipin allan sólarhringinn. Starfsskilyrði og starfsemi annarra landsstöðva, sem fyrir eru, þarf einnig að endurskoða. Á því sviði sem öðrum mun full þörf að gæta þess, að ný tæki og aukin tækni séu nýtt til hins ýtrasta til öryggis og hagsbóta fyrir þá, sem í hlut eiga.

Flm. þessarar till. telja að endurskoðun laga og reglugerða um fjarskiptastöðvar í íslenzkum skipum sé fyllilega tímabær og jafnvel að skjótra aðgerða sé þörf á sumum sviðum, eins og ég hef þegar bent á. Okkur er þó ljóst, þótt við höfum bundið okkur við þá hliðina, sem að öryggi sjómanna snýr, að heildarendurskoðunar fjarskiptalaganna er þörf, og má sem lítið dæmi því til stuðnings benda á fullyrðingar fagmanna um, að lögin vinni beinlínis gegn tæknilegum framförum á þessu sviði hér á landi.

Það hefur verið ákveðin ein umr. um þessa till., og ég tel, að bæði form og efni leyfi, að hv. Alþ. taki ákvörðun um hana og afgreiði hana nú þegar.