04.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (2536)
24. mál, vinnsla sjávarafurða á Siglufirði
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Till. sú, sem fram var borin á þskj. 30 um að álykta, að Alþingi skoraði á ríkisstj. að láta gera á grundvelli laga nr. 47 frá 1946 kostnaðaráætlun um byggingu og rekstur verksmiðju á Siglufirði til niðursuðu og niðurlagningar á síld og öðrum fiskafurðum, hefur verið athuguð í fjvn. á nokkrum fundum, og nefndin hefur aflað sér álits og umsagnar frá þeim stofnunum í landinu, sem nefndin taldi gleggst mega vita um, hverjar líkur væru á því, að framkvæmd þeirrar tillögu, sem hér um ræðir, væri þjóðhagslega góð og nauðsynleg.
Nefndin fékk umsögn Fiskifélags Íslands og einnig umsögn frá stjórn síldarverksmiðja ríkisins um málið, og má telja, að báðir þeir aðilar séu því meðmæltir, að slík athugun verði gerð.
Nefndin spurði einnig fiskideild atvinnudeildar háskólans um álit í þessu efni, en fiskideildin svaraði því, að hennar verkefni væri fyrst og fremst að athuga um afla og aflamöguleika, en væri ekki undir það búin að svara eða leggja til um till., sem miðuðu að vinnslu aflans, og töldu það vera nokkurt annað mál, og gaf hún þess vegna ekki sérstaka umsögn um málið.
Lögin nr. 47 frá 1946 eru heimildarlög, sem heimila ríkisstj. að reisa og reka á Siglufirði verksmiðju til að sjóða niður og leggja síld í dósir, eins og þar segir, og er í þeim lögum einnig heimild fyrir ríkisstj. að taka lán í þessu skyni.
Þegar fjvn. athugaði grg. þá, sem fylgdi því frv., sem í lög var tekið um þetta efni 1946, kom í ljós, að að verulegu leyti voru þar forsendur fyrir framkomu frv. eða setningu laganna sérstakir markaðsmöguleikar, sem þá voru taldir úti í Evrópu í stríðslokin.
Það ber að viðurkenna, að ýmislegt hefur breytzt í því efni, og er því ástæða til að rannsaka þetta að nýju núna, bæði um stofnkostnað á slíkri verksmiðju, um rekstrarkostnað hennar og um þá markaðsmöguleika, sem nú eru fyrir hendi.
Fjvn. telur rétt, að efnislega verði till. samþykkt, en hefur talið réttara að orða tillöguna nokkuð öðruvísi en gert er á þskj. 30 og hefur því lagt einróma til, að till. verði samþykkt, þannig orðuð:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta rannsaka, hvort hagkvæmt muni vera og líklegt til eflingar niðursuðuiðnaði í landinu að nota heimild laga nr. 47 7. maí 1946 til að reisa verksmiðju á Siglufirði til niðursuðu sjávarafurða.“
Þannig leggur nefndin sem sagt einróma til, að till. verði samþykkt.