18.05.1960
Sameinað þing: 50. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2585)
23. mál, hagnýting farskipaflotans
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Þeir minntust á það, hv. 10. þm. Reykv. og hv. 12. þm. Reykv., að ég mundi hafa verið að tala um allt annað mál en hér væri á dagskrá. Nei, ég var svo sannarlega að taka afstöðu til þess máls, þar sem hv. fylgjendur ríkisstj. leggja til, að rannsókn sé sett á eimskipafélögin í landinu og ríkiseftirlit haft með betri hagnýtingu á þeim atvinnutækjum, sem eru í höndum þessara félaga. Og mín afstaða til málsins var sú, að ég ætlaði að láta fylgjendum stjórnarinnar það einum eftir að koma slíku ríkiseftirliti á. Ég ætlaði að láta það afskiptalaust, ekki greiða atkv. einu sinni á móti því, af því að ég hefði ekki trú á, að neinn árangur til bóta fengist af þessu, sem þeir hljóta að hafa. Hins vegar gerði ég svo grein fyrir því að minni hl. n. legði til einnig í trúleysi á, að nokkuð gott gæti af þessu hlotizt, að málinu væri vísað frá með rökst. dagskrá. Þetta er allt saman hafið yfir allan misskilning.
Hv. 10. þm. Reykv. fannst mikið til um það, að ég skyldi vilja taka mark á nokkru orði, sem kæmi frá Eimskipafélagi Íslands og Verzlunarráði Íslands og slíkum aðilum. Ég hygg, að ég geti ekki tekið afstöðu til neins aðila á þann veg, að ég taki allt trúanlegt, sem hann segir, eða hafni í eitt skipti fyrir öll, að hann geti haft satt að mæla. Í þessu tilfelli hef ég farið í gegnum umsagnir 10 skipafélaga. 8 af þeim mæla gegn till. og telja hana tilgangslausa, 2 segja, að það sé meinlaust, að þetta sé gert og er Skipaútgerð ríkisins annar þeirra aðila. Mér finnst þarna ekki vera slöngvað fram neinum fullyrðingum, heldur gera þessir aðilar grein fyrir afstöðu sinni, rökstyðja þetta, hvernig þeir hafi hagnýtt sín tæki, hvaða vandkvæði séu á því að fá fulla nýtingu út, og ég treysti mér ekki til þess að vefengja þær upplýsingar.
Eimskipafélag Íslands segir t.d., að á árinu 1959 hafi félagíð tekið 5 erlend skip á leigu, sem samtals fluttu 8738 tonn af vörum til landsins, og hefur gert grein fyrir því í umsögn sinni, að fram að síðustu árum hafi einkum verið skortur á íslenzkum kæliskipum. Svo bætast þau nokkur í flotann, og þá fer svo, að 1958 tekur félagið aðeins 2 erlend skip á leigu, og árið sem leið, 1959, var tekið aðeins eitt erlent skip á leigu, og flutti það um 570 tonn af pappír og fleira frá Finnlandi, og þetta var um 0.4% af vöruinnflutningi félagsins þetta ár. Erlendur gjaldeyrir vegna þessa skips nam 329 þús. kr. Við það, að kæliskipastóll landsmanna jókst, minnkaði leiguskipatakan hjá Eimskipafélaginu, og þessar upphæðir hafa nú minnkað mjög mikið.
Ég sé ekki annað en þetta bendi einmitt til þess að nýting íslenzka farskipastólsins sé eftir atvikum góð, eins og efni geta staðið til, enda var þess að vænta, að hvert félag vekti yfir sínum hagsmunum í þessu efni. Hins vegar þykist ég sjá það í hendi mér, að séu möguleikar fyrir betri nýtingu farskipastólsins en framkvæmanlegt sé með því móti, að skipin séu í eign aðgreindra félaga og rekin af aðgreindum fyrirtækjum. þá væri það eingöngu hugsanlegt með því móti, að ríkisafskiptin yrðu slík, að öll íslenzk farskip yrðu sett undir eina yfirstjórn, sem samræmdi reksturinn íslenzkri flutningaþörf frá landinu og til þess. Þá væri örmjótt yfir í það, að íslenzki farskipastóllinn hefði verið tekinn af eigendunum og þjóðnýttur og gerður að ríkiseign og væri færður undir ríkisrekstri. Það væri hugsanlegt, að með því móti væri hægt að komast lengra í að hagnýta skipin og samhæfa rekstur þeirra allra saman, en með nefndarskipun hef ég enga trú á að það gerist.
Ég sem sé er ekkert að fjandskapast við þetta mál. Ég ætla að vera hlutlaus um það. Ég ætla að lofa ágæti þessarar till. að sýna sig í verki. Nm. fá einhverja smáþóknun fyrir sín störf, en ég hef enga trú á því, að það spari íslenzka ríkinu neinar upphæðir í gjaldeyri. En sú afstaða stjórnarinnar hlýtur að byggjast á því, að það sé nauðsynlegt að hafa þarna afskipti af, að það sé ekki eins vel haldið á þessum rekstri af einkaframtakinu og mögulegt sé og þess vegna þurfi að rannsaka þetta mál fyrir félögin og halda í hendurnar á þeim og leiðbeina þeim, því að ef menn ekki ætla nefndarstarfinu þetta, þá er það tilgangslaust. Og það er alveg réttmætt og maklegt, að það séu menn einstaklingsframtaksins á Alþingi, sem rétti einkarekstrinum þetta kjaftshögg án afskipta annarra.