18.05.1960
Sameinað þing: 50. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (2586)
23. mál, hagnýting farskipaflotans
Frsm. meiri hl. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég býst ekki við því, að stuðningsmenn þessa máls ætli sér að fjandskapast á nokkurn hátt við hv. 4. landsk. frekar en hann telur sig vera að fjandskapast við málið. En það er ekki á hverjum degi sem fyrir kemur hér á Alþ., að einn hv. alþm. sendir það út skriflega á nál. til þings og þjóðar, að hann sé fylgjandi því með fyrirvara, að till. verði samþ., en komi síðan upp í ræðustól í Sþ. og flytji tvær ræður af þrótti og kappi, eins og hans er von og vísa, á móti málinu. Af þessu tvennu, hinu skriflega áliti hv. 4. landsk. með till. og hinni munnlegu baráttu hv. 4. landsk. á móti henni, er niðurstaðan sú, að plús strikar út mínus og afstaða hans verður núll, hann situr hjá. Þetta er út af fyrir sig slíkt „raritet“ í afstöðu til máls hér á Álþingi, að það er ekki ástæðulaust, að menn staðnæmist við þetta og njóti þessa fyrirbrigðis, á meðan það stendur yfir.
Í sambandi við þetta mál er það hreinn misskilningur hjá hv. 4. landsk. að halda, að þetta snerti eingöngu einkarekstur og með afgreiðslu þessarar till. sé á einhvern hátt verið að taka afstöðu með eða móti einkarekstri. Sannleikurinn er sá, að íslenzku kaupskipin skiptast á milli þriggja rekstrarforma, eins og flestir hlutir hér á landi. Mikill hluti þeirra er einkaeign, mikill hluti þeirra er samvinnueign, — ég hygg að tonnatölu stærsti hluti flotans, — og í þriðja lagi er verulegur hluti ríkiseign. Að því leyti á þetta mál við um öll þau rekstrarform, sem mest mæðir á í okkar landi. Er málið raunar enn flóknara. því að sum skipin eru eign fyrirtækja, sem eru sameignarfélög atvinnurekenda, þannig að þar koma bæði einkafyrirtæki, hálfopinber fyrirtæki og samvinnufyrirtæki saman í sameignarfélag. Að hér sé verið að rétta einkaframtakinu blómvönd eða kjaftshögg eða hvað það nú var, er hreinn misskilningur.
Hins vegar er athyglisvert, að hv. þm. lét falla fögur orð um, að ef menn vildu stiga þetta skref að fullu og þjóðnýta allan flotann. þá væri hann til viðtals. Þetta er rétt eins og afstaða hans til málsins, því að hann segist enga trú hafa á því, að till. geti sparað eyri, ef hún verður framkvæmd. m.ö.o., hann lýsir því yfir, að það sé á engan hátt hægt að bæta hagnýtingu íslenzka flotans. Sem sagt: fullkomið traust til þess fyrirkomulags, sem við höfum, en samt er hann til viðtals um að breyta því fyrirkomulagi.
Það eru vissulega í greinargerðum þeim, sem skipafélögin hafa sent, ýmsar skýringar á því, hvers vegna það kemur fyrir, að skip okkar sigla tóm til landsins, hvers vegna það kemur fyrir, að þau sigla tóm frá landi. Ég hygg, að bæði flm. og öðrum, sem styðja till., sé þetta fullkomlega ljóst. En það er ekki þar með sagt, að skýringarnar séu algildar og þrátt fyrir þær sé ekki hægt að ná betri hagnýtingu. Í sambandi við þetta mál skulum við ekki gleyma því, að ástandið í siglingamálum heimsins er nú þannig, að ég hygg rúmlega 500 kaupskip liggja bundin í höfnum erlendis. Þetta hefur þær afleiðingar, að skipaleiga er ákaflega lág. Er ekki alveg laust við það í vissum tilfellum, að það geti verið hagkvæmara fyrir innflytjendur eða aðra aðila, hvort sem það eru skipafélögin sjálf eða aðrir, að reyna að fá að taka leiguskip. Þetta getur verið fjárhagslega hagkvæmara en að nota íslenzku skipin, en þetta á að sjálfsögðu fyrst og fremst við viðskiptavini skipafélaganna. Þau leigja ekki skip í samkeppni við sjálf sig. En það er vissulega ekki fjarri lagi að aðili, sem þarf að nota kaupskip gæti, ef hann fengi, sparað sér einhvern pening með því að hagnýta sér lægð á heimsmarkaði í frögtum. Þannig eru til öfl sem vissulega geta unnið að því, að í stað þess að fullnýta íslenzku skipin séu tekin fleiri leiguskip en þörf er á.
Ég hygg, að niðurstaðan af öllu því, sem fram hefur komið, sé þessi: Þó að skipafélögin vilji ekki samþykkja athugun á sjálf sig, þá bera þær upplýsingar, sem þau gefa í heild, þann blæ, að það er ærið tilefni til, að þessi athugun fari fram. Það er alls ekki þar með sagt, að skipa þurfi heila nefnd, það getur vel verið miklu betra, að einn eða tveir fagmenn söfnuðu þessum upplýsingum. Að þeim fengnum mundi vera tiltölulega auðvelt fyrir ráðh. að skoða þær upplýsingar og draga af þeim ályktanir, þegar þær lægju fyrir.