18.05.1960
Sameinað þing: 50. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (2589)
23. mál, hagnýting farskipaflotans
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég ætla engu við að bæta um málið sjálft. Ég ætlaði aðeins að segja það, að meðnm. mínum var fyllilega kunnugt um það öllum, að ég var ekki fylgjandi þessari till., hafði enga trú á árangri af henni, þó að hún yrði samþ. Ég ætlaði ekki heldur að beita mér á móti afgreiðslu till., og það mun vera fágætt á Alþ., að menn gefi út sérstakt nál. um það, að þeir ætli að sitja hjá. Ég taldi því rétt, að ég skrifaði undir nál. meiri hl. með fyrirvara, og fyrirvari minn var, eins og n. öll vissi, um það, að ég ætlaði að láta þeim eftir að samþykkja þetta mál, en ekki bregða fæti fyrir það, og þess vegna gaf ég ekki út annað nál.