14.03.1960
Efri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (262)
88. mál, söluskattur
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Eins og nál. meiri hl. á þskj. 170 ber með sér, hefur ekki orðið samkomulag í n. um afgreiðslu þessa máls, þannig að við þrír, sem að meirihlutaálitinu stöndum, mælum með samþykkt þess, en tveir nm., þeir hv. 1. og 5. þm. Norðurl. e. (KK, BjörnJ), tjá sig frv. andvíga og munu skila séráliti.
Löng framsöguræða fyrir þessu nál. er að því leyti óþörf, að allt það, sem mestu máli skiptir í sambandi við þetta mál, hefur komið fram í framsöguræðu hæstv. fjmrh. við 1. umr. málsins. En þó vil ég í tilefni af þeim umræðum, sem hafa átt sér stað um það á opinberum vettvangi, fara nokkrum orðum um hina almennu hlið málsins, en einstök tæknileg atriði mun ég ekki ræða að svo stöddu, en mundi þá koma að þeim síðar, ef umræður þær, sem fara fram hér á eftir, kynnu að gefa tilefni til þess.
Hv. stjórnarandstæðingar virðast halda því fram, að hér sé um að ræða nýjar skattaálögur til viðbótar þeim álögum, sem ákveðnar voru með löggjöfinni um efnahagsmál. Eiga þær að vera þannig til komnar, að hagfræðingar þeir, sem undirbjuggu efnahagsmálafrv., hafi týnt 100 millj., og er ríkisstj. uppgötvaði þetta skarð í múrinn, lét hún sér ekki nægja að leggja á þær 100 millj., sem þurfti til að fylla í skarðið, heldur allt að því 400 millj., — ef sú tala á ekki enn þá eftir að hækka í meðförum málgagna stjórnarandstöðunnar. Mér dettur í þessu sambandi í hug, að einn hv. stjórnarandstæðinga komst þannig að orði við 1. umr. málsins, að hæstv. ríkisstj. hefði hér að hans áliti spennt bogann of hátt hvað snerti skattaálögur á þjóðina, þannig að hætta væri á því, að hann brysti. En mig langar í sambandi við þetta að varpa fram annarri spurningu til hv. stjórnarandstöðu, nefnilega þeirri, hvort stjórnarandstaðan hafi ekki með fáránlegum málflutningi spennt bogann of hátt, þannig að þeir, sem hingað til hafa tekið mark á málflutningnum, muni ekki sjá sér fært að gera það lengur.
Auðvitað er það alger firra, að hér sé um að ræða nýjar álögur, eins og hæstv. fjmrh. sýndi með ljósum rökum fram á við 1. umr. málsins. Það er gert ráð fyrir því, að þessi tekjustofn, söluskatturinn, gefi 280 millj. kr. á ári í ríkissjóð, eða nákvæmlega það sama og þarf til að bæta upp það, sem ríkissjóður missir í við niðurfellingu eða lækkun tveggja annarra tekjustofna, nefnilega 9% söluskattsins og tekjuskattsins, að viðbættum þeim 56 millj., sem ráð er gert fyrir að bæjar- og sveitarfélögin fái sem hluta af söluskatti, og er þá auðvitað ætlazt til þess, að lækkun útsvara komi þar á móti.
Það er nú efnislega meira aukaatriði, hvað hæft er í þjóðsögunni um 100 milljónirnar, sem hagfræðingarnir eiga að hafa týnt. En að gefnu tilefni vil ég leyfa mér að benda á það, að þeir, sem búið hafa sögu þessa til, hafa ekki fært neitt fram máli sínu til sönnunar. Þetta átti að vera þannig til komið, að einhverjir hagfræðingar hafi haldið því fram, að 3% söluskatturinn mundi nægja til að afla þeirra 280 millj., sem hér vantar á. Ég hef hvergi séð þær áætlanir, enda munu þær aldrei hafa verið gerðar af neinum. Í grg. efnahagsmálafrv. er aðeins sagt frá þeim áformum hæstv. ríkisstj. að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum, en leggja á söluskatt í staðinn. Ekkert er um það sagt, hve hár slíkur söluskattur eigi að vera, né nánar um álagningu hans, enda mun á þeim tíma, sem grg. fyrir efnahagsmálafrv. var samin, ekki hafa legið fyrir neinn grundvöllur til þess að áætla slíkt. Það mun ekki hafa verið um það að ræða, að nein áætlun hafi verið gerð um heildarveltuna í þjóðfélaginu, en slík áætlun verður auðvitað að liggja því til grundvallar, þegar áætlað er, hversu háan söluskatt þurfi að leggja á til þess að fá inn umræddar 280 milljónir. Það er því algerlega út í bláinn, enda hef ég ekki séð bent á nein rök fyrir því, að hér sé um einhverja reikningsskekkju að ræða hjá hagfræðingunum.
Hins vegar skal ég taka það fram, að auðvitað er mjög fjarri mér að halda því fram, að hagfræðingar og útreikningar þeirra séu óskeikulir. Því fer auðvitað mjög fjarri. Ég man t.d. eftir því, þegar ég var starfsmaður á hagstofunni fyrir allmörgum árum, að þegar það kom fyrir, að maður endurskoðaði skýrslugerðir og reikninga bæði eftir sjálfan sig og aðra, skeði það alltaf við og við, að maður uppgötvaði þar einhverja reikningsskekkju. Auðvitað var það ekki sú almenna regla, en gat alltaf annað veifið komið fyrir. En í þessu efni hefur hagfræðin og hagfræðingar auðvitað ekki neina sérstöðu. Enginn mun mæla því á móti, að það geti komið fyrir læknana og það jafnvel færa lækna, að þeim geti missýnzt við sjúkdómsgreiningu eða mistekizt við læknisaðgerðir, né heldur að það geti komið fyrir jafnvel hina færustu dómara, að þeir geti fellt vafasaman dóm. Auðvitað er það þannig með útreikninga hagfræðinga eins og önnur mannleg verk, að þau eru brennd marki hins mannlega ófullkomleika. Þess vegna er ég síður en svo að mælast undan því, að þessir útreikningar hagfræðinganna og aðrir verði gagnrýndir. Það er ekki heldur út af fyrir sig nein hneykslunarhella, þó að sú gagnrýni, sem hér hefur komið fram af hálfu hv. stjórnarandstöðu, sé ekki á rökum reist. Á sama hátt og það verður ekki heimtað af hagfræðingunum, að þeir séu óskeikulir, verður slíkt auðvitað ekki heldur heimtað af gagnrýnendum þeirra. Það er út af fyrir sig ekki í frásögur færandi.
Hitt er aftur á móti athyglisvert, hvaða ályktanir hafa verið dregnar af hálfu stjórnarandstöðunnar af þessari meintu reikningsskekkju. Sem spegilmynd af þeim málflutningi, sem þar hefur átt sér stað, vil ég leyfa mér að vitna hér ofur lítið í eitt af vinstri málgögnunum, Frjálsa þjóð, því að það er málgagn, sem sérstaklega hefur talið sig beita sér fyrir heiðarlegri málflutningi en áður hefur verið og eins konar siðvæðingu meðal vinstri manna, og skal það viðurkennt, að oft hefur það blað líka hagað málflutningi sínum hóflegar en almennt gerist á vettvangi stjórnmálabaráttunnar, þannig að að nokkru leyti hefur verið lifað eftir þessum kenningum, og er þá kannske einmitt sérstök ástæða til þess að vitna í það, sem þeir segja um þetta. En í síðasta blaði Frjálsrar þjóðar segir svo m.a., með leyfi hæstv. forseta, — undirfyrirsögn í greininni hljóðar þannig: „Króginn meðgenginn. — Það, sem menn reka fyrst af öllu augun í, er, að ríkisstj. meðgengur krógann, sem öll landsbyggðin hefur hlegið að undanfarnar víkur, þ.e.a.s. reikningsskekkju sína á söluskattinum um 100–140 millj. kr.“ Hér er tekin upp sama órökstudda staðhæfingin og önnur málgögn vinstri flokkanna hafa verið með. Þar er því haldið fram, að ríkisstj. hafi beinlínis viðurkennt þessa reikningsskekkju. Þetta er nú ekkert sérstakt. En dálítið athyglisverð er sú ályktun, sem af þessu er dregin. Hún er í stuttu máli þessi, að önnur undirfyrirsögn í greininni ber, með leyfi hæstv. forseta, yfirskriftina: „Allir útreikningar sérfræðinga endileysa.“ Síðan er haldið áfram: „Hvað verður um þennan þátt útreikninga á hækkun vísitölunnar og hvað skyldi verða um þá 3–4% kjaraskerðingu, sem efnahagsmálafrv. ríkisstj. átti að hafa í för með sér fyrir barnafjölskyldurnar?“ Það er m.ö.o., að vegna meintrar einstakrar reikningsskekkju hjá hagfræðingunum, sem út af fyrir sig er úr lausu lofti gripið að hafi átt sér stað, er fullyrt, að allir útreikningar sérfræðinga séu endileysa og ekkert mark á þeim takandi. En hvað mundum við hugsa, ef maður gerði það að umtalsefni eða vitnaði í það, að tilteknum lækni hefði misheppnazt læknisaðgerð eða missýnzt við greiningu sjúkdóms, — en sjálfsagt væri auðvelt að finna einhver slík tilfelli og væri ekkert sérstaklega merkilegt við það, — og byggði svo á þessu þá kröfu, að öllum spítölum ýrði lokað og allir læknar reknir úr embættum, eða ef maður vitnaði í dóm sýslumanns eða jafnvel hæstaréttar, sem telja mætti vafasaman, og byggði á því þá kröfu, að allir dómstólar og öll réttarvarzla væri lögð niður? Ég býst við, að við, sem hér erum inni, værum sammála um, að það væri viðkomandi manni fyrir beztu, að hann yrði sendur til geðrannsóknar, t.d. til hv. 9. þm. Reykv. eða einhvers annars vel metins sérfræðings á þessu sviði.
En hver er eiginlega skýringin á þessum svo mjög fáránlega málflutningi, sem öllum hlyti að þykja stórfurðulegur og varla bera vott um heila geðsmuni, ef um hliðstæðu væri að ræða frá einhverjum öðrum sérgreinum en hagfræðinni? Ég tel, að á þessu sé til skýring. Hún er nefnilega sú, að hv. stjórnarandstæðingar virðast með sjálfum sér hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að það, sem mannleg þekking hefur til málanna að leggja á sviði efnahagsmála, ófullkomin eins og hún auðvitað er á þessu sviði eins og öðrum, sé þeim andstætt og þess vegna beri að leggja megináherzlu á það að skapa þá trú hjá almenningi, að allt sé vitleysa, sem sérþekking í þessum efnum hefur að segja. Það er þetta, sem ég efast ekki um að er hin sanna skýring á þessum furðulega málflutningi, sem ég hef sýnt hér nokkrar myndir af.
En hvað sem þessu liður, er kjarni þessa máls sá, að hér er um að ræða breyt. eða tilfærslu á skattstofnum. Það má suðvitað um það deila, hvort réttara sé að halda gömlu skattstofnunum, þannig að hægt væri að komast hjá því að leggja á þann skatt, sem hér um ræðir, eða gera breytinguna. Ef hv. stjórnarandstæðingar segðu sem svo, að þeir kysu heldur 9% söluskattinn en þann, sem nú á að leggja á, að þeir séu andvígir því, að bæjarog sveitarfélög fái hluta af söluskattinum, og enn fremur andvígir því, að afnuminn sé tekjuskattur af almennum launatekjum, þá væri það a.m.k. ábyrgur málflutningur, hvað sem um hann mætti segja að öðru leyti. En þetta hafa þeir ekki sagt hingað til, enda mundi það brjóta mjög í bága við málflutning flestra þeirra fram að þessu.
Þegar það var til umræðu fyrir jólin hér á hæstv. Alþingi að framlengja 9% söluskattinn um nokkra mánuði, höfðu hv. stjórnarandstæðingar allt á hornum sér í sambandi við það og töldu vandfundinn svo ranglátan skattstofn sem gamla söluskattinn. Ekki töldu þeir þá, að það væri misráðið að ráðstafa hluta af söluskattinum til bæjar- og sveitarfélaga, heldur töldu þeir þvert á móti, að slík ráðstöfun þyldi ekki þá bið að vera frestað fram yfir áramót, heldur bæri þegar að lögfesta hana, og báru fram till. þess efnis. Hvað lækkun á tekjuskatti snertir, þá má vel vera, að sumir hv. stjórnarandstæðingar telji, að skemmra beri að ganga í þeim efnum en hæstv. ríkisstj. áformar. En jafnve] þótt slíkt yrði gert, væri á þeim grundvelli aðeins hægt að fella niður hluta þeirrar tekjuöflunar, sem hér er til umræðu, og varla hefur verið ágreiningur um það, að álagning tekjuskatta hér á landi er komin út í öfgar, þar sem þeir eru aðaltekjustofn bæjar- og sveitarfélaga jafnhliða því, sem ríkið leggur á tekjuskatt allt að því 40%.
Það mætti rifja það upp í þessu sambandi, að þegar sú breyting var gerð á tekjuskattslögunum árið 1942 að afnema þá reglu að heimila að draga útsvar og tekjuskatt frá skattskyldum tekjum, þótti hæfilegt að færa hámark skattstigans úr 40%, sem það var þá, niður í 22%. Sumir voru þeir, sem þá létu í ljós ótta um, að slík breyting væri varhugaverð, þar sem þess yrði sennilega skammt að bíða, að skattstiginn á tekjum án frádráttar þessara skatta yrði hækkaður upp í það, sem hann var, meðan skattfrádrátturinn var heimilaður, og reynslan hefur sýnt, að þessir svartsýnu menn höfðu á réttu að standa, því að nú er skattstiginn aftur orðinn 40% eða það sama og hann var, áður en umrædd breyting var gerð. Hann er m.ö.o. kominn upp í það sama, eftir að búið er að afnema frádráttarheimildina, eins og hann var, meðan henni var haldið.
Það er líka alger misskilningur, að hinir háu tekjuskattar bitni eingöngu á hálaunamönnum og öðru hátekjufólki. Órækasta sönnun þess, að svo er ekki, er breyting, sem samþ. var á skattalögunum á síðasta þingi þess efnis að undanþiggja eftirvinnu í þágu útflutningsframleiðslunnar tekjuskatti. Þó að sá hængur væri að vísu á umræddri breytingu á skattalögunum, að hún er óframkvæmanleg frá skattatæknilegu sjónarmiði, kom það glöggt fram í umræðum hér á hv. Alþingi þá, að þm. úr öllum stjórnmálaflokkum gerðu sér ljóst, að hér var vandamál fyrir hendi, sem leysa þurfti á einhvern hátt. Það hefur því ekki verið ágreiningur um það, að brýna nauðsyn bæri til vegna þarfa framleiðslustarfseminnar í landinu að létta að einhverju leyti af þeim tekjusköttum, sem nú hvíla á almenningi. Hvað langt eigi að ganga í því efni, má hins vegar auðvitað deila um, og það getur vel verið, að margir hv. stjórnarandstæðingar haldi því fram, að nægilegar lagfæringar megi fá á tekjuskattinum með því að lækka hann um 50–60 millj. kr. í stað þeirra 110 millj., sem ríkisstj. mun leggja til. En þá nær sá ágreiningur aðeins til lítils hluta af þeirri heildarfjárhæð, sem afla á með því móti, sem þetta frv. leggur til, þannig að það getur ekki verið mikilvægt hagsmunamál fyrir alþýðu manna, hvort þess fjár er aflað með tekjusköttum eða með því að hækka söluskattana frá því, sem ella þyrfti að vera.
Auðvitað væri líka hægt að fella niður þá tekjustofna, sem hér er um að ræða, og leggja á nýja skatta í einhverri annarri mynd en þeirri, sem hér er gert. En á meðan engar ábendingar hafa komið fram um það né till. um, hverjir slíkir skattar ættu að vera, sé ég ekki ástæðu til þess að ræða þá möguleika.
Þá tel ég rétt að síðustu að fara um það nokkrum orðum, hver áhrif þær ráðstafanir, sem hér liggja fyrir, hafi á kjör þjóðarinnar og einstakra stétta.
Það leiðir auðvitað af því, sem sagt hefur verið, að þar sem hér er eingöngu um það að ræða að innheimta á annan hátt en áður tiltekna skattupphæð, getur ekki verið um að ræða auknar skattabyrðar á þjóðina í heild. Það er því úr lausu lofti gripið, að hér sé verið að rýra kjör almennings umfram það, sem efnahagsmálalöggjöfin gerði ráð fyrir.
Um áhrif þessara ráðstafana á verðlagið er rétt að upplýsa það, sem fram kom við meðferð málsins í n., að vísítala framfærslukostnaðar mun hækka um 3% vegna þessara ráðstafana, og yfir það skal engin fjöður dregin, að þessi hækkun er umfram þær verðhækkanir, sem gert var ráð fyrir í efnahagsmálafrv., en auðvitað þýðir þetta ekki, að um sé að ræða 3% kjaraskerðingu umfram það, sem þar var gert ráð fyrir. Það, sem skeður, er, að innheimtar eru 166 millj. í söluskatt, en tekjusköttum og útsvörum er létt af sem þeirri upphæð nemur. Sú lækkun kemur að vísu ekki fram í vísitölunni, ef hún er reiknuð á þann hátt, sem nú er gert. En mikið álitamál er, hvort svo beri ekki að gera.
Núverandi vísitölugrundvöllur var sem kunnugt er tekinn upp með löggjöf þeirri um efnahagsmál, sem sett var í jan. 1959. Við þær umræður, sem þá fóru fram, var á það bent af hv. núv. 3. þm. Reykv. (EOl), að rétt væri í vísitölunni að taka tillit til útsvars og skatta, og tel ég, að hann hafi þar haft mjög mikið til síns máls. Fram til 1939 voru skattar með í vísitölunni. Sú vísitala, sem þá var tekin upp og var í gildi þangað til á s.l. ári, var eingöngu verðlagsvísitala, þannig að ekki var tekið tillit til skatta og ekki heldur til fjölskyldubóta né þess háttar. Með því að taka tillit til fjölskyldubóta, svo sem gert er í núverandi vísitölu, er því horfið frá því, að vísitalan sé eingöngu verðlagsvísitala, hún gerð að eins konar lífskjaravísitölu. En þá virðist líka eðlilegt að taka tillit til skatta í vísitölunni, og hlýtur það mál að verða til athugunar, meðan þetta þing situr. En hvort sem tekið er tillit til skattalækkunarinnar í vísitölunni eða ekki, er ljóst, að til hennar ber að taka tillit, er meta skal áhrif þeirra efnahagsmálaráðstafana, sem gerðar verða á þessu þingi, á lífskjör almennings.
Það lætur nærri, að áhrif söluskatts þess, sem nú er til umræðu, muni auka meðalútgjöld þeirrar fjölskyldu, sem vísitöluútreikningurinn er miðaður við, um 1800 kr. á ári. Hvort kjör hverrar einstakrar fjölskyldu versna eða batna eða standa í stað, verður svo auðvitað komið undir því, hve mikið tekjuskattur og útsvar viðkomandi fjölskyldu lækkar, sem auðvitað er komið undir tekjum, barnafjölda og öðrum aðstæðum.
Meginrök okkar, sem styðjum þær breytingar á skattheimtunni, sem hér er verið að gera, fyrir því, að þær verði til bóta, eru í fyrsta lagi þau, að hinir háu tekjuskattar, sem nú eru á lagðir, dragi svo úr starfsvilja manna, að líklegt sé, að þjóðartekjurnar muni aukast að öðru óbreyttu, sé þeim létt af, en það mundi verða fleirum til hagsbóta en þeim einum, sem skattalækkunarinnar njóta beinlínis. Í öðru lagi er það vitað, að hinir háu tekjuskattar skapa þjóðfélagslegt ranglæti vegna þess, að fjölmennar starfsstéttir í þjóðfélaginu hafa þá aðstöðu, að ekki er kleift að hafa neitt eftirlit með því, er að gagni má verða, að tekjur þeirra séu rétt taldar fram, þannig að þeir, sem þessum stéttum tilheyra, geta í rauninni ákveðið skatta sína sjálfir. En þar sem þessi hlið málsins mun verða nánar rædd, þegar tekjuskattsfrv. kemur fyrir þessa hv. d., sé ég ekki ástæðu til þess að ræða hana nánar að svo stöddu. En af þeim ástæðum, sem hér hafa verið greindar, mælir meiri hl. fjhn. með samþykkt þessa frumvarps.