27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (2628)
79. mál, hagnýting síldaraflans
Karl Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vil sem 1. flm. þessarar till. þakka hv. fjvn. fyrir einróma meðmæli hennar, enn fremur þakka frsm. n. fyrir grg. hans, og ég vil líka lýsa því yfir, að ég vænti þess, að þingheimur fallist á að samþykkja till. Enn fremur vænti ég þess, að hæstv. ríkisstj. taki verklega höndum á móti till. og komi skrið með opinberum aðgerðum á það, að síldarafli landsmanna verði betur hagnýttur til sölu en átt hefur sér stað að undanförnu, og það því fremur, sem nú virðast sérstaklega slæmar horfur með það, að létt sé að koma síldaraflanum í gott verð sem þeirri vöru, sem hann hefur venjulega verið gerður að til útflutnings.