27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í D-deild Alþingistíðinda. (2651)
87. mál, símgjöld bæjarsíma Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Svo sem till. þessi ber með sér, er efni hennar að skora á ríkisstj. að hlutast til um að samræma símgjöld og fyrirkomulag símtala á tilteknu svæði hér í nágrenni Reykjavíkur. Fjvn. er sammála um það, að sanngjarnt sé, að þessi breyting verði á gerð, þar sem svæði þetta allt er á sama símakerfi. Hins vegar má gera ráð fyrir því, að það þurfi ýmsar tæknilegar ráðstafanir og breytingar að gera, til þess að þetta geti á komizt, og þykir því n. rétt að leggja til, að inn í till. verði bætt, svo sem segir á þskj. 425, þeim fyrirvara, að þetta verði gert svo fljótt sem auðið er, þannig að það er ekki hugmyndin þó með þessu, að það verði á neinn hátt óeðlilega dregið, heldur er það sem sagt aðeins eðlilegur fyrirvari, til þess að fáist nægilegt svigrúm til að koma þessum framkvæmdum og breytingum á.