27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í D-deild Alþingistíðinda. (2694)
74. mál, dvalarheimili í heimavistarskólum
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Ég mun ekki fara að ræða þessa till. í löngu máli, enda er ekki ástæða til þess, En í sambandi við það vildi ég þó mega benda hér á tvö atriði.
Á stríðsárunum var sá háttur upp tekinn að koma börnum héðan úr bænum til dvalar í skólum víðs vegar um landið. Á ýmsum skólasetrum voru nokkrir tugir barna, og hafði ég af þessu nokkur kynni. Heimili mitt var þá staðsett á einum slíkum stað, svo að ég fylgdist allvel með, hvernig framkvæmd var á þessu máli. Ef að því ráði yrði horfið, sem till. þessi gerir ráð fyrir, að slíkir hópar yrðu settir út um landið aftur, þá vildi ég mega benda á það, að mjög þarf að vanda til undirbúnings um þá framkvæmd. Þegar búið er að safna saman nokkrum tugum af börnum, sem ekki hafa verið saman áður, og senda á slíka staði, þá er mikil hætta á ferðum, ef þar er ekki vel stjórnað og vel undirbúið. Þetta vildi ég mega benda á, og það gæti orðið allur annar árangur af ferðinni en til er ætlazt, ef þetta er ekki haft í huga í upphafi málsins.
Ég vil líka mega benda á, að á þessum skólasetrum mörgum eru heimili bæði skólastjóra og kennara. Þeir dveljast þar allt árið í sama húsnæði og skólarnir eru reknir í með sínar fjölskyldur. Sumir skólamenn eru orðnir allþreyttir á starfinu eftir að hafa verið með sitt heimili í slíku nábýli í 9 mánuði ársins og óska þess vegna eftir einhverri hvíld til þess að búa sig undir næsta skólaár. Þess vegna vildi ég líka mega benda á það, að hér má ekki ganga hart fram í samningum um, að skólahúsnæðið sé notað í þessu skyni, og verður að taka fullkomið tillit til þeirra manna, er fyrir skólastöðunum standa.
Mér er kunnugt um, að það hefur verið sótt á suma af þessum skólastöðum einmitt um að koma þangað slíkum dvalarhópum, þó að forráðamenn hafi ekki óskað eftir því. En það væri miður farið, ef þannig væri að þessu staðið, að þetta gæti orðið til þess, að hinir beztu starfskraftar yrðu að hætta störfum vegna þess, að svo er á sótt um að koma slíkri starfsemi fyrir. Þess vegna finnst mér, að orðalagsbreyt., sem allshn. hefur lagt til, sé mjög til bóta, þar sem athugaðir skulu möguleikar á samningum um þetta. Og út af fyrir sig er ég ekki mótfallinn því, að börn njóti þess, sem hægt er að njóta í sveitum landsins, og veit, að þau hafa af því gagn að komast í samband við hina frjálsu náttúru landsins. En til þess, að það megi verða, þarf að undirbúa málið vel, og það verður að vera í fullu samráði og fullu samkomulagi við þá, sem á stöðunum starfa.