14.03.1960
Efri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (271)

88. mál, söluskattur

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér smábrtt., sem er á þskj. 189.

Það mun öllum lýðum ljóst, að veitinga- og gistihúsastarfsemi hér á landi á við allerfið kjör að búa, og ekki sízt þegar þarf að auka eða endurbyggja húsakostinn. Sem betur fer eru allmargir hér á landi, sem búa nú í mjög góðum húsakynnum. En því miður getur maðar ekki sagt hina sömu sögu um öll þau gistihús, sem rekin eru hér á landi. Þau virðast ekki hafa haft svo góð kjör, að þau hafi af starfi sínu getað fylgzt með í þægindum hvað húsakynni og annað snertir þar að lútandi. Það mun enginn sá aðili hér á landi, sem beinlínis telur sér skylt að lána, ef um hótelbyggingu er að ræða, og þar af leiðandi er ákaflega erfitt um vik fyrir þá, sem hafa áhuga á veitinga- og gistihúsarekstri hér. Hins vegar er ljóst, að með sívaxandi fólksfjölda og mjög auknum ferðamannastraumi um landið þarf að bæta við og endurbyggja þann húsakost, sem notaður er í veitingaskyni. Og það eru líka miklir möguleikar á því, að við getum aflað okkur mikils gjaldeyris með því að bæta hótelin í landinu og geta veitt fleiri erlendum ferðamönnum þess kost að kynnast landi og þjóð, því að Ísland er tiltölulega lítið þekkt meðal annarra þjóða, og margir, sem hafa viljað ferðazt um landið, hafa ekki átt þess kost sakir þess, að við höfum ekki haft nægan húsakost eða þá þjónustu á boðstólum, sem við höfum getað veitt þessum mönnum.

Við Íslendingar höfum löngum verið taldir gestrisnir og gestrisni verið í hávegum höfð hér á landi hjá öllum almenningi. Og það eitt er því þeirri gestrisnu þjóð samboðið að sjá þeim ferðamönnum, sem um landið ferðast, innlendum og erlendum, fyrir góðum húsakynnum og fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum. En til þess að geta veitt þessa þjónustu, verður þjóðfélagið sem heild að leggja eitthvað af mörkum, svo að hægt sé að bæta úr því, sem á skortir í þessum efnum. Og mér finnst, um leið og verið er að skattleggja íslenzku þjóðina í jafnríkum mæli og nú er gert að heita má daglega, að þá hljóti einhvers staðar að vera hægt af að taka til þess að bæta úr í þessum efnum, og af þeim ástæðum hef ég leyft mér að flytja þessa brtt., en hún er um það, að sá skattur, smásöluskattur, sem veitinga- og gistihúsin eiga að greiða af sinni þjónustu, renni í sérstakan sjóð, sem verður aftur notaður til þess að byggja upp hótelin í landinu. Ég skal engu um það spá, hversu mikill þessi skattur kann að verða, en það mun sýna sig síðar meir. Og ég tel æskilegast, að ferðaskrifstofa ríkisins, sem hefur fylgzt einna bezt með þessum málum á undanförnum árum, hafi aðalframkvæmd þessa máls, en að sjálfsögðu verði sett reglugerð um alla nánari tilhögun varðandi lánveitingar úr þessum sjóði. En ég legg ríka áherzlu á, að þau lán, sem kunna að verða veitt, verði til langs tíma og með hagkvæmum kjörum, svo að hægt verði að reisa þau hús af grunni, sem lengi munu standa og þurfi ekki strax endurbóta við.

Mér er kunnugt um, að það eru margir hér á landi, sem þurfa að byggja hótel og eru að byggja hótel og eiga hvergi von í nokkrum peningum. Og einn aðili, sem um langt skeið hefur rekið hótel, er nú að endurbæta húsakost sinn, en það kostaði með því verðlagi, sem gilt hefur allt fram á þennan dag, um 11/2 millj. kr., og lán átti hinn sami aðili kost á að fá, 150 þús. kr., hjá einum banka hér gegn 1. veðrétti í sömu byggingu. Slíkt er algerlega óviðunandi ástand. Það hlýtur að vera hlutur hinnar gömlu og gestrisnu þjóðar að bæta betur úr í þessum efnum en gert hefur verið til þessa, og ég sé ekki ástæðu til að ætla annað en hæstv. ríkisstj. taki þessu máli vinsamlega og mæli með því, að þessi brtt. verði samþykkt.

En úr því að ég hef sagt hér nokkur orð varðandi brtt. þá, sem ég flyt, vil ég almennt segja nokkur orð um þetta mál.

Þegar hæstv. fjmrh. hafði framsögu fyrir þessu söluskattsfrv. nú fyrir skemmstu, taldi hann, að hér væri eingöngu um tilfærslu á gjöldum að ræða á milli þjóðfélagsþegnanna, en ekki um nýja skatta að ræða. Ég skal ekki ræða þá hlið málsins, hvort þar sé rétt með farið. En það mun síðar sannast og hefur raunar þegar verið sannað í þessum umræðum, að það er ekki einungis um tilfærslu að ræða, heldur einnig um stóraukna skattabyrði. Hv. 11. þm. Reykv. upplýsti enn fremur í dag, að þessi söluskattur mundi auka á útgjöld vísitölubúsins, að mig minnir, um ca. 1800 kr., og ef söluskatturinn eykur útgjöld vísitölubúsins um 1800 kr., þá er hinn hlutinn, sem hlutaðeigendur verða að greiða, margfalt, margfalt meiri. En báðir til saman, hæstv. fjmrh. og hv. 11. þm. Reykv., hafa í raun og veru sannað það, að lífskjör láglauna- og efnaminna fólks versni til muna frá því, sem nú er, en að lífskjör aftur á móti hinna, sem betur mega sín, versni ekki neitt eða miklu minna.

Láglaunafólkið, verkamenn og tekjurýrir bændur, eiga nú með söluskattinum að taka á sig það, sem á að minnka tekjuskattinn á þeim, sem hafa borið hann á undanförnum árum. Það eru þeir, sem eiga að taka á sig skattinn, sem nú skal lækka, og í flestum tilfellum eru það einmitt mennirnir, sem eru að byggja upp heimili sín og brjótast áfram í lífinu og það e.t.v. fjölskyldumenn með mörg börn. Það eru þeir, sem nú eiga að taka á sig byrðarnar, sem hinir eiga að sleppa við, sem þegar eru búnir að koma upp sínum börnum og byggja upp sin heimili og fylla sín heimili af lífsþægindum. Þessir menn, sem nú eru búnir að koma sér fyrir í lífinu, eru mennirnir, sem losna við skattabyrði, svo að tilfærslan liggur frá þeim, sem hafa greiðslugetuna, og til hinna, sem þurfa meira að kaupa og eiga eftir að byggja upp heimili sín. Ég álít, að þetta sé algerlega röng þjóðfélagsstefna, sem beri að útrýma við fyrsta tækifæri og það áður en hún nær frekari útbreiðslu. En hæstv. fjmrh. boðaði í framsöguræðu sinni fyrir þessu máli, að lengra skyldi haldið áfram á þessari braut, áður en langir tímar liðu. Hann boðaði, að beinum sköttum skyldi af létt, en að sama skapi og í ríkara mæli lagðir á nýir tollar og ný aðflutningsgjöld eða nýir veltuskattar.

Ein af ástæðunum, sem ráðh. taldi að væru þess valdandi, að leggja bæri niður beinu skattana, er sú, að þau framtöl eða sá grundvöllur, sem skattakerfið nú byggist á, sé svo ótraustur og aðstaða manna svo misjöfn, þar sem sumir geti sloppið við að gera grein fyrir tekjum sínum, á meðan aðrir verða að gera grein fyrir hverjum einasta eyri, að þá sé ekki viðunandi að hafa svona skattakerfi áfram, þar sem ekki sé hægt að gera alla jafna fyrir lögunum, eins og það heitir. En beinu skattarnir hafa þó þann kost, að það er hægt að skattleggja það, sem ekki næst með tekjuskatti, ef eignaframtöl væru þannig úr garði gerð, að eignarskatturinn næði til allra eigna, en svo er ekki nú. T.d. verð ég sem bóndi að telja fram allan minn búpening, en þó að ég ætti inni hundruð þúsunda á sparísjóðsbókum, þá ber mér ekki samkv. núgildandi skattalögum að telja neitt af því fram til skatts, og vegna þess, að núverandi skattakerfi er þannig upp byggt, sleppa mennirnir, sem sluppu við tekjuskattinn, einnig við að greiða eignarskatt af því, sem þeir hafa eignazt. Eignarskattsformið og eignarskattslögin eru þannig, að það er hægt að fara hringinn í kringum þau, og sjálfstæðismenn hafa barizt leynt og ljóst fyrir þessari stefnu í skattamálum, þannig að þeir geta í þessum efnum sannarlega sjálfum sér um kennt.

Það er því þannig, að sá, sem hefur möguleika á að telja ekki allar tekjur sínar til skatts, hefur einnig mikla möguleika til þess að losna við að greiða skatt af eignum sínum. En ég spyr: Er engin leið fyrir menn að stinga söluskattinum í eigin vasa? Er grundvöllurinn, sem lagður er nú með þessu nýja kerfi, þessu eins stigs kerfi og söluskattsfyrirkomulagi, svo traustur, að það sé engin leið fyrir þá, sem innheimta skattinn fyrir ríkið, að stinga neinu í vasann og að ríkið fái hverja einustu krónu, sem því ber? Er engin leið þarna? Ég býst við, að samkv. þessu nýja eins stigs kerfi séu einmitt opnaðir nýir möguleikar og það miklu meiri möguleikar en nokkru sinni hafa þekkzt í landinu til þess fyrir vissa aðila í þjóðfélaginu að stinga söluskattinum í eigin vasa og að standa ríkinu, sem á að fá hann, ekki skil á honum, þannig að þegar verið er að ræða um ótraustan grundvöll, sem beinu skattarnir hvíla á, þá er sá grundvöllur, sem nú er lagður með söluskattsfyrirkomulaginu, engu traustari, svo að það er nákvæmlega eins og að fara úr öskunni í eldinn.

Með smásöluskattinum er verið að opna leið fyrir kaupmenn að innheimta fjármagn fyrir ríkissjóðinn og standa svo aldrei skil á öllu saman. Á þennan hátt er einnig verið að breikka bilið á milli hins ríka og fátæka manns. Ég er sannfærður um það, að ef þetta á ekki að fara á þennan veg, verður að vera það strangt verðlagseftirlit, að það er næstum óhugsandi og óframkvæmanlegt að halda því uppi. Á sama tíma og verið er að auka og íþyngja almúganum með nýjum álögum og sköttum, er verið að létta skattabyrði þeirra ríku og skapa þeim mörgum hverjum nýja leið til að draga fé þess opinbera í eigin vasa.

Hvar sem borið er niður, blasir við aukin skriffinnska. Það er sama, hvar maður ber niður í þeim frv., sem hæstv. ríkisstj. hefur borið fram til þessa á Alþingi, að þá blasir alls staðar við veruleg útþensla á ríkisbákninu.

Þótt það sé að vísu hjálp fyrir bæjar- og sveitarfélögin í landinu að fá 1/5 hluta af söluskattinum, mundi einnig vera hjálp í því að lækka eða fella niður sumt af gjöldum bæjarog sveitarfélaganna, þ.e.a.s. það, sem rennur til ríkissjóðs eða ríkisstofnana, t.d. þann hluta bæjar- og sveitarfélaga, sem fer til Tryggingastofnunar ríkisins, eða hluta sveitarfélaganna, sem fer til sjúkrasamlaganna í landinu. Það mundi koma að jafnmiklu gagni að minnka útgjöld sveitar- og bæjarfélaganna eins og að halda þeim háspenntum og verða svo að afla þeim nýrra tekna til þess að halda þessu eitthvað gangandi. Nei, þessi leið er ekki athuguð, heldur þarf að finna nýja skatta og setja nýtt fólk niður til að reikna í stað þess að breyta lögum á þann veg, að skriffinnskan gæti eitthvað minnkað.

Ég bendi á þetta hér til þess að sýna, hvað margt af því, sem frá hæstv. ríkisstjórn hefur komið, er fráleitt til þess, að það sé nokkurs staðar hægt að draga úr útþenslunni, sem ríkisstj. boðaði fyrir kosningarnar. Þá átti að halda öllu í skefjum, ríkisútgjöldum sem öðru. En nú er stefnt í öfuga átt, eins og margir hv. þm. hafa bent hér á í umræðum um þetta mál.

Það er enginn vafi á því, að nú á fyrst og fremst að framkvæma þá stefnu, sem Sjálfstfl.-menn hefur lengst af dreymt um, en það er kenning foringja sjálfstæðismanna, hæstv. forsrh., Ólafs Thors, er hann sagði, að fyrst bæri að hugsa um einkahagsmuni, þar næst um hagsmuni sjálfstæðismanna og síðast og í þriðja lagi um hagsmuni þjóðarheildarinnar. Þarna er verið að koma með frv. hvert á fætur öðru til þess að gera foringjum sjálfstæðismanna kleift að auðga nokkra einstaklinga og þar næst Sjálfstfl., og svo kemur þjóðin síðar og hún á að fá leifarnar af þessu öllu saman. Það má nú, segja, að þetta sé pennastrik í lagi: Ólafur Thors, hæstv. forsrh., sagði, að dýrtíðin í landinu jafnaði kjör fólksins og hana væri hægt að lækna með einu pennastriki, og sannarlega er þetta pennastrik hæstv. forsrh. það strik, sem segir sex.

Á þeim 10 árum; sem ég hef setið hér á hv. Alþingi og efnahagsmál hafa komið til endurskoðunar og umræðu, hefur ávallt verið lagður sérstakur skattur á hin breiðari bök í þjóðfélaginu þar til nú. 1950, þegar genginu var breytt, og 1958, þegar yfirfærslugjaldið var tekið upp í staðinn fyrir bátagjaldeyrinn, var í bæði skiptin lagður á sérstakur skattur á stóreignir, lagður skattur á þá menn, sem umfram aðra höfðu hagnazt á dýrtíðinni í landinu, og þessu fjármagni átti að verja og var varið til þess að gera hinum efnaminni þegnum í þjóðfélaginu kleift að byggja upp sína starfsemi og koma sér upp sómasamlegum heimilum. En nú er stefnt í þveröfuga átt. Um leið og íslenzka krónan er felld, þá er ekkert gert til þess að láta þá, sem hafa breiðari bökin, bera þyngri byrðar, nema síður sé, en hina, sem minna mega sín í þjóðfélaginu.

Ég held, að það hafi verið í gær, sem ég las eftirfarandi í Morgunblaðinu, með leyfi hæstv. forseta:

„Hið nýja Ísland verður að byggja framtíð sína á því, að atvinnuvegir þess séu allir reknir á heilbrigðum grundvelli með sem fullkomnustum tækjum.“

Hv. 5. þm. Austf. (PÞ) lýsti því mjög greinilega hér áðan, hvernig aðstaðan er nú hjá bændastétt landsins til þess að veita sér nýtízku og fullkomin tæki til búrekstrar. Það er þægilegt fyrir Morgunblaðið og sjálfstæðismenn að tala um það, að menn kaupi fullkomin og nýtízku tæki á hinu nýja Íslandi, eins og þeir segja; á sama tíma og þeir eru að skattpína þjóðina svo mikið, að það er útilokað fyrir allan almenning í landinu að veita sér nokkuð af hinum nýjustu tækjum, sem e.t.v. verður hægt að bjóða upp á. Og á sama tíma eru þeir hinir sömu, sem fjær og fjærst búa innflutningshöfnum landsins, látnir bera þennan smásöluskatt með margföldum þunga, því að þótt því sé haldið hér fram, að flutningar séu ekki söluskattsskyldir, þá hygg ég, að þegar varan er seld víðs vegar um landið, þá séu flutningarnir og farmgjöldin komin inn í verðlagið, og söluskatturinn verður þeim mun hærri, sem flutningarnir eða farmgjöldin kosta meira, og þeir, sem eru verst settir og búa við mesta örðugleika í þjóðfélaginu, verða á þennan hátt að greiða mest af þessum söluskatti, og það á sama tíma og hæstv. ríkisstj. fellir gengi ísl. krónu um rúmlega 132% og hækkar fjárlög um nálægt 50%. Þá þykir það ekki nóg að gert, heldur er þessum söluskatti bætt ofan á allt saman, og hann á eftir að verka eins og eldur í sinu í öllum þeim ráðstöfunum, sem hæstv. ríkisstj. er nú að gera.

Þeir stjórnmálaflokkar, sem fara með völdin í landinu nú, hétu þjóðinni gulli og grænum skógum, ef hún væri svo góð að veita þeim meiri hluta á Alþingi. En er það gull ag þeir grænu skógar, sem hæstv. ríkisstj. er nú að bjóða þessum kjósendum sínum? Nei, það er þveröfugt, eins og allt annað, sem hæstv. ríkisstj. gerir þegar miðað er við það, sein hún lofaði fyrir, kosningar.

Alls staðar; þar. sem borið er niður, blasir þetta við. Það er eymd og það er auðn, minnkandi framkvæmdir, minnkandi atvinna, minnkandi framleiðsla og eymdarlíf hjá öllum almenningi í landinu. Hvað er nú orðið af stefnu og baráttu alþýðumannsins Jóns Baldvinssonar, sem var alltaf á verði fyrir þá, sem áttu bágt og vildu bjarga sér? Hann myndaði pólitískan flokk; Alþfl., til þess að standa vörð um hagsmuni alþýðunnar í landinu. Jón Baldvinsson er fallinn frá, og Alþfl. í þeirri mynd, eins og hann var mótaður í upphafi, er líka fallinn frá. Hann er smoginn inn í það versta afturhald, sem til er í landinu, íhaldið, sem lýsti því með mörgum fögrum orðum fyrir skemmstu, „að leiðin til bættra lífskjara væri að kjósa Sjálfstfl,“, en þjóðin hefur nú gefið leið hæstv. ríkisstj. rétta nafnið, þar sem hún kallar hana stjórn eymdar og afturhalds. Á sama tíma og Alþfl.-menn, sem nú telja sig, eru að halda mikla ráðstefnu um jafnaðarstefnuna og fara um hana mörgum fögrum orðum, eru þeir um leið að samþ. hinar mestu og verstu álögur á þjóðina, sem nokkru sinni hefur verið gert í landi voru á einu einasta ári. Það stóð í Alþýðublaðinu, að mig minnir í gær, með leyfi hæstv. forseta:

„Margt hefur breytzt, frá því að jafnaðarstefnan var að skjóta sínum fyrstu frjóöngum. Ný úrræði hafa komið fram, er óþekkt voru áður. Nú er unnt að koma í framkvæmd ýmsum stefnumálum jafnaðarmanna eftir)eiðum, er áður voru óþekktar. Að sjálfsögðu hafa þessi breyttu viðhorf orðið til þess, að jafnaðarmenn hafa orðið að endurskoða ýmis eldri úrræði sín, en það breytir engu um það, að markmiðið er hið sama og áður. Markmið jafnaðarmanna er og verður alltaf það sama, réttlátt þjóðfélag, þar sem öllum líður vel.“

Já, réttlátt þjóðfélag, þar sem öllum líður vel. Sannarlega er þetta réttlátt þjóðfélag, þar sem öllum líður vel! Já, mikil er trú þín; kona, vil ég segja, — mikil er trú Alþfl.-manna, ef þeir trúa því, að þeir séu að skapa réttlátt þjóðfélag, þar sem öllum líður vel, eins og upprunalega var markmið þeirrar Alþfl.-stefnu, sem starfaði hér á landi; á meðan Jóns Baldvinssonar og hans förunauta naut við. Nei, það stefnir áreiðanlega allt í öfuga átt við það, sem Alþfl.-menn eru að boða og trúa. Áttaviti þeirra er löngu bilaður, og enn þá dansa þeir samt eftir honum: Það er því ekki að undra, þótt þeir hafi hafnað lengst inni í hring íhaldsins: í landinu, enda er íhaldið ákaflega ánægt með að nota Alþfl.-menn sem sína þjóna, því að þeir geta þar sannarlega í danssalnum innt sitt hlutverk fyrir íhaldið af hendi, en ekki fyrir alþýðuna í landinu, það er öðru nær.

Það væri synd að segja, að vitleysa hæstv. ríkisstj. ríði við einteyming. Það er öðru nær. Svo hastarlega er sorfið að lífskjörum alls almennings í landinu, að ótti og kvíði er þegar farinn að búa um sig í hugarfari almennings, enda hvílir sú ógæfa yfir hæstv. ríkisstj., að þegar eitthvað kemur frá henni af málum, styrkir hún jafnan þennan ótta og kvíða, fremur en að gera hið gagnstæða. En á meðan lifir sjálf hæstv. ríkisstj. í allsnægtum, um leið og hún er að leggja legstein á allt framtak alls almennings í landinu. Önnur eins afturhalds-, kreppu- og óstjórnarstjórn hefur aldrei setið að völdum hér á landi áður, aldrei nokkurn tíma áður. Valdafíknin er svo mikil, að hún drepur alla heilbrigða skynsemi. Það er ekki undarlegt, þótt það lagi mikið á að breyta kjördæmunum og á þann hátt að geta slætt inn á Alþingi mönnum, sem aldrei hefðu komið til greina að sitja þar annars, mönnum, sem alls ekki hugsa um velferð þjóðarinnar, en í einhverju hugsunarleysi og blindni ekki einungis svíkja gefin fyrirheit, heldur skapa komandi kynslóð svo þunga bagga, að hún fær varla undir því risið í framtíðinni. Það var sannarlega þörf á því að breyta kjördæmaskipuninni, til þess að þetta gæti átt sér stað!

Hér er verið að rífa niður áratuga uppbyggingarstarf, brjóta á bak aftur sjálfsbjargarviðleitni og menningu æskunnar í landinu. Hvert skref, sem stjórnarflokkarnir stíga, er skref aftur á bak. Hér er ekki einungis ráðizt á framfarir og framkvæmdir, heldur í miklu stærri stíl á lífskjör fólksins í landinu. Hin unga og óborna þjóð á ekki lengur að njóta gæða landsins, því að nú er verið að bjóða henni upp á þau lífskjör, sem varla munu hafa þekkzt hér á landi nema á þeim mestu niðurlægingartímum, sem þjóðin hefur lifað, og kannske hjá þeirri stétt manna, sem kallaðir voru þrælar að fornu. Lífskjörin eiga að vera svo aum, að fólk fórni hugðarefnum sínum á altari hæstv. ríkisstjórnar og dýrki hana gamla þrælsóttanum, sem þekktur var á landnámsöld.

Nei, hæstv. ríkisstj. verður sannarlega ekki öfundsverð, þegar þjóðin rífur sig úr þeim fjötrum, sem verið er að vefja hana inn í núna. Hún má sannarlega biðja fyrir þeim dögum, því að þeir koma áreiðanlega, áður en langir tímar líða.