14.03.1960
Efri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (275)
88. mál, söluskattur
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af ýmsum aths., sem komið hafa hér fram við það, sem ég sagði í framsöguræðu minni.
Ég vil nú fyrir það fyrsta taka það fram út af ummælum, sem ég vitnaði í og las hér upp úr Frjálsri þjóð, að auðvitað er það mjög fjarri mér að vita það, hvorki hjá Frjálsri þjóð né öðrum vinstri málgögnum, þó að gagnrýndir séu þeir útreikningar, sem hagfræðingar hafa gert, bæði í sambandi við undirbúning efnahagsmálafrv. og á öðrum sviðum. Auðvitað verða hagfræðingar að sætta sig við það eins og aðrir, sem við opinber mál fást, að útreikningar þeirra séu gagnrýndir, og þeir hafa gott af því. Það var mér ekki heldur nein sérstök hneykslunarhella, þó að vinstri málgögnunum hafi skjátlazt í því, að hér hafi verið um reikningsskekkju að ræða.
Það er með vinstri málgögnin eins og aðra, að það er mannlegt að skjátlast, og út af fyrir sig getur það komið fyrir þau eins og aðra, að þeim yfirsjáist, þannig að þau telji sig finna reikningsskekkju, þar sem ekki er um það að ræða, eins og hefur glöggt sannazt í þeim umræðum, sem hér hafa farið fram. Hitt taldi ég aftur ómenningarvott, og þar hefur Frjáls þjóð ekki neina sérstöðu, því að þau ummæli, sem ég las upp hér, eru ekki annað en það, sem staðið hefur í vinstri málgögnunum öllum undanfarna daga, svo að ég var víss um það, að hér mundu nægir forsvarsmenn fyrir þessi sjónarmið, eins og líka hefur komið í ljós. En það, sem ég taldi ómenningarvott, var, að fullyrt skyldi vera, að af því að einhverjir hagfræðingar hefðu gert reikningsskekkju, væru allir útreikningar hagfræðinga tóm vitleysa. Mér finnst þetta alveg hliðstætt því, ef kennari, — en það munu sjálfsagt vera hér inni margir, sem hafa fengizt við kennslu, — sem væri að leiðrétta dæmi hjá nemanda sínum og sæi, að fyrsta dæmið væri skakkt hjá honum, slægi þá rauðu striki yfir allt saman, en slíkt hygg ég að flestir mundu fordæma. Ég tók það líka fram, að ef þetta kæmi fyrir á einhverju hliðstæðu sviði, t.d. á það væri bent eða í það vitnað, að einhverjum lækni hefði mistekizt við læknisaðgerð, sem auðvitað getur komið fyrir, og læknar og þeir, sem við heilbrigðismál fást, verða auðvitað að sætta sig við að geta mætt gagnrýni eins og aðrir, og á þessu væri byggð krafa um það, að öllum spítölum væri lokað og allir læknar reknir úr embættum, þá hugsa ég, að margir mundu hugsa sem svo, að menn, sem þetta gerðu, væru í þörf fyrir það, að sérfræðingur athugaði, hvort þeir væru við fulla geðheilsu. Því fer hins vegar fjarri, og það kom skýrt fram í minni ræðu, að ég sé að halda því fram, að það, sem liggur að baki málflutningi vinstri manna varðandi hagfræðingana, sé sama eðlis. Nei, þvert á móti, þetta er gert að yfirveguðu ráði, og það, sem hér skeður, er það, að verið er að fiska í því grugguga vatni, að þessir menn telja, að dómgreind almennings í þessum efnum sé takmörkuð og þess vegna sé hægt að vekja þá trú hjá almenningi, að öll mannleg þekking á þessum sviðum, sem ég veit og geri mér fulla grein fyrir að er ófullkomin, sé einskis virði og hana beri að hafa að engu.
Annars hefur málflutningur af því tagi, sem fram hefur komið í mörgum vínstri blöðunum undanfarna daga, ekki skotið upp kollinum hér, og er það þm. stjórnarandstöðunnar til sóma, hvað sem öðru líður, og því ekki ástæða til þess að fjölyrða meira um það.
Þá eru það örfá einstök atriði í því, sem fram hefur komið, sem ég vildi fara nokkrum orðum um.
Það er nú e.t.v. aukaatriðl. að hv. 9. þm. Reykv. (AGl), sem nú er ekki viðstaddur í bili, fór mörgum hörðum orðum um það, að hér væri verið að taka upp sams konar afturhaldsstefnu og Adenauer fylgdi í Þýzkalandi. Ég er ekki sérstaklega kunnugur stjórnarfarinu í Þýzkalandi. Ég mun hvorki taka undir þessi ummæli né fara að verja Adenauer. En eitt tel ég þó að megi fullyrða, og það er það, að hvað snertir þróun kjara verkamanna í Þýzkalandi annars vegar frá því að styrjöldinni lauk og Íslandi hins vegar, þá hugsa ég, að Þýzkaland standist fullkomlega þann samanburð. Það eru engir, sem hafa eins mikið haldið því fram og margir flokksbræður þessa hv. þm., að kaupmáttur launa hér á Íslandi hafi staðið í stað síðan 1947. Nú ber að mínu áliti að vísu að taka allar slíkar upplýsingar með varúð, en hitt er víst, að kaupmáttur verkamannslauna í Þýzkalandi hefur ekki staðið í stað á þessum tíma, heldur stórkostlega aukizt, svo að hvað það atriði snertir þolir þýzka hagkerfið áreiðanlega fullkomlega samanburð við okkur á þessu sviði. Hitt er annað mál, að kauphækkanir í Þýzkalandi hafa að sjálfsögðu ekki orðið eins miklar og hér, en það skiptir ekki máli í þessu sambandi. Aðalatriðið er þróun lífskjaranna eða kaupmáttur launanna.
Það, sem ég ætlaði aðallega að gera að umræðuefni, eru þær fullyrðingar, sem hér hafa komið fram um, að þær ráðstafanir, sem gerðar séu með söluskattsfrv., raski algerlega þeim niðurstöðum, sem komizt var að í grg. þeirri, sem fylgdi efnahagsmálafrv. um áhrif þess á lífskjör almennings. Það er fullkominn misskilningur, er einn hv. þm. hafði það eftir hagstofustjóranum, að söluskattsfrv. mundi hafa í för með sér 3% kjaraskerðingu. Hitt væri hins vegar rétt haft eftir, að það var gert ráð fyrir því, að vísitala framfærslukostnaðar kæmi til með að hækka 3% vegna söluskattsins. (BjörnJ: Þetta eru ósannindi, hrein ósannindi.) Hvað eru ósannindi? (BjörnJ: Það, sem ræðumaður er að segja.) Að hagstofustjóri hafi haldið því fram, að vísitalan hækkaði 3% vegna söluskattsins? (BjörnJ: Hann talaði um kjaraskerðingu og ekkert annað.) Nei, það er ekki satt, eins og fram kemur líka í þeim útreikningum, sem hagstofan hefur gert um þetta efni. Hagstofan hefur reiknað það út, og það upplýsti hagstofustjóri á fundi n., að verðlagið mundi hækka um 3% vegna þessara aðgerða, en þá er auðvitað ekki tekið tillit til þeirrar skattalækkunar, sem þarna er um að ræða, og það er aðalatriðið í þessu sambandi.
Hæstv. fjmrh. hefur nú annars gert grein fyrir því, hvaða áhrif þessar aðgerðir, að viðbættu því, að tekið sé tillit til þeirrar skattalækkunar, sem ætla má að af þessu leiði, muni hafa á afkomu vísitölufjölskyldunnar.
Þær tölur hafa ekki verið vefengdar, enda gerðar af þeim mönnum, sem bezta aðstöðu hafa til þess að dæma um áhrif þessara aðgerða. Hér er það auðvitað vísitölufjölskyldan, sem miðað er við. Auðvitað væri hægt að setja upp önnur dæmi. Ef maður hugsaði sér t.d. barnlaus hjón, mundi útgjaldahækkunin vegna söluskattsins verða sú sama og hvað snertir vísitölufjölskylduna, en lækkun á útsvari og skatti yrði þá að krónutölu meiri, þannig að þau mundu hagnast meira. Auðvitað væri ekki heldur neinn vandi að finna fjölskyldur, þar sem útkoman yrði ekki eins hagstæð, en það stendur óhaggað, að einmitt ef tekið er meðaltal, þá gengur þetta hvað upp á móti öðru: annars vegar sú útgjaldahækkun, sem leiðir af söluskattinum, og hins vegar sú útgjaldalækkun, sem leiðir af því, að aðrir tekjustofnar eru felldir niður. Það er hlutur, sem leiðir af sjálfu sér.
Nei, það virðist sem það sé svo, að hv. stjórnarandstæðingar vilji helzt gera þetta dæmi upp á þann veg að taka eingöngu tillit til þeirra hækkana, sem af söluskattinum leiðir, og áætla hann þá helzt töluvert miklu hærri en ástæða er til. En hins vegar telja þeir ekki neina ástæðu til að taka tillit til þeirra lækkana, sem leiðir af því, að aðrir skattstofnar eru felldir niður. Þeir hafa bent á, að það sé alls ekki víst, að bæjar- og sveitarfélögin fari að lækka útsvörin, þó að þau fái þennan nýja tekjustofn. Slíkt verður auðvitað á valdi bæjar- og sveitarstjórna. En ef þær óska eftir því að ráðstafa þessu fé til fjárfestingar, verður auðvitað ekki um lækkun útgjalda fyrir borgarana að ræða að sama skapi. Það er augljóst mál. En þá verður það mat viðkomandi bæjar- og sveitarstjórnar, sem liggur því að baki, að þær telja þá, að borgarar viðkomandi sveitarfélags hafi ráð á því að bæta við sig útgjöldum fram yfir það, sem leiðir af efnahagsmálaaðgerðunum. En sá möguleiki er auðvitað fyrir hendi, þegar bæjar- og sveitarfélögin fá nýja tekjustofna, að þau geti þá lækkað þá tekjustofna, sem þau hafa fyrir. (ÓlJ: Hvenær á þessu ári skyldu sveitarstjórnirnar fá þennan hluta úr jöfnunarsjóði?) Hvenær á þessu ári? Það ætti í sjálfu sér ekki að hafa nein áhrif á það, hvort þær ákveða að lækka útsvörin eða ekki. Þetta á að vera tryggur tekjustofn, og ætti þá að vera hægt að fá lán út á hann í bili o.s.frv. ( ÓlJ: Háir vextir og ekki svo auðvelt að fá lán — Forseti: Ekki samtal.)
Þá vekur það mikla furðu mína, þegar það kemur fram hjá hv. stjórnarandstæðingum, að það sé í rauninni ekki ástæða til þess að taka neitt tillit til þess, þó að gamli söluskatturinn sé felldur niður, og rökstuðningurinn fyrir því er sá, að þar sem gengið hafi verið fellt, ætti útflutningssjóðurinn ekki að þurfa þann skattstofn lengur. Þetta sýnist nú algerlega fyrir utan það, sem er efni málsins, því að í grg. fyrir efnahagsmálafrv. var reiknað með því, að gamli söluskatturinn héldist. Það var reiknað út, hve miklar verðhækkanir mundu verða vegna gengislækkunarinnar að öllu öðru óbreyttu, og það væri auðvitað enginn vandi að fá út mikla kjaraskerðingu, ef það væri bæði reiknað með því, að söluskattinum yrði haldið, og líka með þeirri verðhækkun, sem leiðir af hinum nýja söluskatti, því að þá fær maður auðvitað tvöfalda þá kjaraskerðingu, sem raunverulega verður. Það ætti ekki að þurfa neinnar skýringar við, að slíkur málflutningur er fráleitur.
Þá vil ég aðeins koma að þeirri gagnrýni, sem hv. 4. þm. Vestf. (SE) bar fram á þeim tölum, sem hæstv. fjmrh. fór hér með, þar sem sýnt var fram á, hver áhrif söluskattsfrv. hefði á útgjöld vísitölufjölskyldunnar. Meginskekkjan í útreikningum hv. 4, þm. Vestf. var sú, að hann reiknaði með, að tekjur vísitölufjölskyldunnar yrðu aðeins þessar 60 eða 61 þús. kr., sem reiknað er með í núv. vísitölugrundvelli, hins vegar mundu útgjöld fjölskyldunnar hækka til samræmis við þær verðhækkanir, sem verða, og komast þannig upp í rúmlega 70 þús. Nú mun það að vísu vera þannig, að upplýsingar liggja ekki fyrir um það, hverjar séu tekjur vísitölufjölskyldunnar. Þegar vísitölugrundvöllurinn hefur verið lagður, hefur það aðeins verið gert á grundvelli útgjaldanna, en ekki safnað upplýsingum um tekjur þeirra fjölskyldna, sem búreikningana héldu, eða að því leyti sem upplýsingum hefur verið safnað um tekjurnar, þá hafa þær ekki verið birtar. En þetta dæmi og önnur svipuð eru gerð upp á þeim grundvelli, að tekjurnar séu þó a.m.k. jafnháar útgjöldunum, þannig að það verða ekki 60–61 þús. kr. tekjur, sem þarna er reiknað með, heldur rúmlega 70 þús. kr. tekjur.