14.03.1960
Efri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

88. mál, söluskattur

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Það var aðeins út af ræðu hv. frsm. meiri hl. fjhn., sem ég vildi segja nokkur orð.

Hann viðurkenndi, að það væri rétt hjá mér, að reiknað væri með 51 þús. kr. kaupum á vörum og þjónustu hjá vísitölufjölskyldu, sem þyrfti að greiða af 3% söluskatt, og ég tek undir það með hæstv. fjmrh., að ég býst við, að þetta sé rétt reiknað hjá ríkisstj., að svona há upphæð fari í kaup á nauðsynjum samkv. þeim reglum, sem hagstofan hefur til að reikna út vísitöluna. Þetta er það magn af nauðsynjum, sem vísitölufjölskyldan er talin þurfa, og reiknað er með því verði, sem á þeim verður, og þá koma út þessar 1525 kr. í söluskatt.

Hv. frsm. viðurkenndi líka, að það mundi vera rétt eða mjög nálægt því, að slík fjölskylda þyrfti að greiða um eða yfir 20 þús. kr. til annars en þess, sem söluskattskylt væri.

Þá hefur hv. frsm. viðurkennt, að útgjöld vísítölufjölskyldunnar hljóti að fara yfir 70 þús. samkv. þessum reikningi, sem hæstv. fjmrh. birti sjálfur. Og ég efast ekkert um, að þessi útgjöld verða a.m.k. þetta, því að ég sleppti mörgum atriðum, sem ekki á að greiða söluskatt af mörgum hlutum, sem fjölskyldan verður að greiða og ekki eru söluskattskyldir, svo að mér er nær að álykta, að þessi útgjöld fjölskyldunnar geti nálgazt 80 þús. frekar en 70 þús. En hv. frsm. segir: Hér er reiknað með útgjöldunum, en ekki tekjunum. — Það er rétt. En ég var að spyrja að því áðan og ég spyr að því enn: Hvaðan á þessi fjölskylda að fá þessa upphæð, milli 10 og 20 þús. kr., sem er umfram 60 þús. kr. tekjurnar hennar, því að samkv. nýafgreiddum lögum á kaupgjaldið að standa í stað? Þetta hélt ég að væri ekkert aukaatriði í dæminu. Hvaðan fær þessi fjölskylda 10–20 þús. kr. tekjur til að greiða með þessi útgjöld, því að útgjöldin verða þetta samkv. þeim áætlunum, sem vísitala framfærslukostnaðar er byggð á? Ekki munu hv. stuðningsmenn þessa frv. ætlast til þess, að fjölskyldan fari að minnka það magn af lífsnauðsynjum, sem hún kaupir, og ekki á fjölskyldan að fá hærri laun. Hvaðan á þá þetta að koma? Það var það, sem ég var að spyrja um. (Gripið fram í: Það eru margar fjölskyldur, sem hafa 70 þús. króna tekjur núna.) Þessi fjölskylda, sem er með 60 þús. kr. tekjur og þarna er reiknað með, hefur ekki nema 60 þús. kr. tekjur, ef allt fer eftir áætlun hæstv. ríkisstjórnar. Ekki á hún að fá kauphækkun. Það er þetta, sem ég er að spyrja um. Það er ekki nóg að viðurkenna, að útgjöldin verði svona há. Það verður líka að sýna fram á, hvernig þessi fjölskylda á að greiða útgjöldin, og það er það, sem ég hef ekki séð enn.