27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í D-deild Alþingistíðinda. (2805)
21. mál, jarðboranir í Krýsuvík og á Reykjanesi
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Við afgreiðslu fjárl. bar ég fram till. um ákveðna fjárveitingu til raforkumálastjórnarinnar til framkvæmda í þeim efnum, sem þáltill. þessi fjallar um. Flm. þáltill. greiddu þá atkv. gegn þeirri till. í trausti þess, að því er þeir greindu, að hv. fjvn. mælti með samþykkt þessarar þáltill., þingið síðan samþykkti hana og ríkisstj. framkvæmdi síðan þær rannsóknir, sem í till. fælust.
Nú liggur fyrir álit hv. fjvn., og það er því miður ekki í samræmi við það traust, sem hv. flm. sýndu n. við atkvgr. um till. mína í sambandi við fjárl. Ég treysti sjálfur ekki á, að till. fengi þá afgreiðslu, sem flm. gerðu sér vonir um og flutti þess vegna till. mína um sérstaka fjárveitingu. Mér þykir miður, að fyrst mín till. var felld, m.a. af hv. flutningsmönnum þessarar þáltill., þá skuli hv. fjvn. ekki mæla með þáltill.
Mál það, sem hér er um að ræða, er aðkallandi og þjóðin tapar stórfé á ári hverju við það að greiða olíu til húshitunar, þar sem þétt byggð er, en jarðhiti skammt undan, og hef ég því talið, að rétt væri að samþ. þáltill. sjálfa vegna sérstöðu þessara svæða, sem um er að ræða.
Um seinni hluta þáltill. er það að segja, að þar hafa einnig brugðizt vonir mínar að nokkru leyti. Ég taldi, að með flutningi þessa hluta till. væru flm. að sýna ráðh. sínum óverðugt vantraust, þar sem fyrir lægju loforð núv. og fyrrv. raforkumálaráðh. um, að boranir yrðu hafnar í Krýsuvík í þessum mánuði. Sýnilegt er, að af því verður því miður ekki, þótt boranir hefjist vonandi í næsta mánuði, en sýnilegt er þó, að vantraust hv. flutningsmanna hefur átt nokkurn rétt á sér.