01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (2819)
27. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Frsm. minni hl. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl. allshn. tók fram, er till. á þskj. 36 um að fela ríkisstj. að útvega fiskveiðasjóði sem fyrst það lánsfé, sem stjórn sjóðsins telur nauðsynlegt, til þess að bæta úr brýnustu þörf, en hv. flm. þessarar till. flutti við hana þegar á öndverðu þingi viðaukatill. þess efnis, að ríkisstj. væri einnig falið að beita sér fyrir þeirri breyt. á lögunum um Fiskveiðasjóð Íslands, að heimilt verði að lána fé sjóðsins til kaupa á verðmiklum veiðarfærum, sem hefðu nokkra endingu. Ég tel að í raun og veru sé því till. sú, sem fyrir nefndinni lá, á tveimur þingskjölum, á þskj. 36 og 144, enda var nefndinni kunnugt efni þeirra beggja, þar sem langur tími leið, frá því að þær voru fram bornar og þar til nefndin tók þær til meðferðar.
Minni hl. n., hv. 5. þm. Norðurl. v., hv. 4. landsk. og ég, hefur ekki fallizt á að afgreiða málið á þann hátt að vísa því til ríkisstj., heldur teljum við fulla ástæðu til þess að afgr. till. með því að samþ. hana og leggjum það til, þó þannig, að við leggjum til, að hún verði samþ. með nokkurri orðabreyt., sem tilgreind er í nál. minni hl. á þskj. 387. Við leggjum til, að ríkisstj. verði falið í fyrsta lagi að beita sér fyrir því, að Fiskveiðasjóður Íslands fái á þessu ári það fjármagn til umráða, sem stjórn sjóðsins telur nauðsyn til bera að lána út samkv. lögum sjóðsins og starfsreglum, og í öðru lagi að láta athuga, hvort unnt sé að skipuleggja hjá einni eða fleiri lánastofnunum veitingu fastra lána til kaupa á sérstaklega verðmiklum veiðarfærum, sem hafa þá endingu, að hægt sé að taka þau að veði fyrir slíkum lánum. Við höfum ekki séð sérstaka ástæðu til þess að binda athugun á slíkum lánsmöguleikum við Fiskveiðasjóð Íslands eingöngu, en teljum rétt, að það sé einnig til athugunar, að slíkri skipulagðri lánastarfsemi verði komið fyrir í öðrum lánastofnunum.
Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta nál. eða till. okkar minnihlutamanna um, að þáltill. verði samþ. en ég vil leyfa mér að benda á það, sem ég hef raunar bent á áður nú nýlega, að stjórn fiskveiðasjóðs hefur gert áætlun um fjárþörf sjóðsins á því ári, sem nú er að líða. Hún hefur gert ráð fyrir, að allmikið muni á skorta, að sjóðurinn geti fullnægt því hlutverki, sem hann er vanur að fullnægja, að veita lán út á skip og annað það, sem lögin kveða á um. Ég vil benda á það í þessu sambandi, að nú nýlega hefur hér í hv. d. verið samþ. breyt. á fiskveiðasjóðslögunum, þar sem hlutverk sjóðsins er enn aukið og honum er heimilað að veita bráðabirgðalán skipasmíðastöðvum, sem taka sér fyrir hendur að smíða fiskibáta. Þetta lá ekki fyrir, þegar stjórn sjóðsins gerði áætlun sína, og hefur það í för með sér, ef þessa heimild á að nota, að fjárþörf sjóðsins hefur vaxið síðan sjóðsstjórnin gerði áætlunina, þar sem hún taldi nokkuð á skorta, ég ætla kringum 30 millj. að sjóðurinn mundi geta fullnægt hlutverki sínu á þessu ári. Samkvæmt skýrslum frá skipaskoðun ríkisins voru í smíðum erlendis 1. jan. s.l. eitthvað rúmlega 50 fiskibátar, stórir og smáir, flestir stórir, og gera má ráð fyrir, að eitthvað hafi við bæzt, að samið hafi verið um smíði á bátum erlendis samkvæmt leyfum, sem höfðu verið út gefin, en ekki samið um smíði á um áramót.
Þetta er bara dæmi um þörfina. Öllum er kunnugt um það, að fiskibátar erlendis hafa stórhækkað í verði. Svo er einnig um vélar, sem keyptar eru til að setja í eldri fiskibáta, þær hafa einnig hækkað mjög í verði og að sjálfsögðu einnig endurbætur á fiskibátum, sem sjóðurinn lánar út á, og yfirleitt hvers konar framkvæmdir, sem lánað er út á.
Það er að vísu rétt, að stjórn sjóðsins hefur skýrt frá því, að þetta mál hafi verið til athugunar hjá ríkisstj. En ég get ekki séð, að hæstv. ríkisstj. ætti að hafa neitt á móti því að vita vilja Alþ, í þessu máli. Því þykir okkur minnihlutamönnum rétt, að hann komi fram. Við álítum nauðsynlegt, að reynt verði að sjá svo um, að þessi lánastarfsemi haldi áfram, án þess að þar verði truflun á. Þess vegna leggjum við til, að till. verði samþ. með þeirri breyt., sem ég hef gert grein fyrir.