24.02.1960
Sameinað þing: 17. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (2833)
12. mál, byggingarsjóðir
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð í sambandi við þessa till. Ég geri ráð fyrir, að till. fari til n., og ef hún ætti að samþykkjast, þarf að bæta við hana, til þess að hún nái tilgangi sínum.
Það er sagt hér síðast í till: „Enn fremur að útvega nú þegar byggingarsjóði Búnaðarbankans fé, til þess að hann geti bætt úr aðkallandi þörfum vegna íbúðabygginga í sveitum“, og við þetta þarf að bætast: „og greitt óreiðuskuldir vinstri stjórnarinnar við seðlabankann“. Annars nær till. ekki tilgangi sínum, því að áður en byggingarsjóðurinn getur staðið við skuldbindingar sínar og lánað, verður hann að greiða þessar óreiðuskuldir.
Hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ), sem talaði hér áðan, minntist á það, að byggingarsjóður Búnaðarbankans hefði innt hlutverk sitt af hendi áður, og hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG) sagði hér fyrir nokkrum dögum, að þetta hefði verið gert til ársloka 1958. En ég upplýsti þá, hvernig fjár hefði verið aflað til sjóðanna á árunum 1957 og 1958. Það var gert með því að taka bráðabirgðalán í seðlabankanum bæði þessi ár, en hvorugt þessara lána hefur verið greitt. Þetta var fjáröflunin. Og þegar ég átti tal við seðlabankann í desemberbyrjun s.l. til þess að fá bráðabirgðalán út á 12.5 millj. kr., sem Búnaðarbankinn ávísar og lofaðar, en ekki hafa enn verið greiddar, þá var því svarað til, að það væru fyrir hendi 2 óreiðulán í seðlabankanum frá byggingarsjóði Búnaðarbankans og það yrði að greiða þessi óreiðulán, áður en unnt væri að hlaupa undir bagga fyrir byggingarsjóð í þriðja sinn. Ég tel ástæðu til þess að upplýsa þetta hér, vegna þess að það er eins og hv. 7. þm. Reykv. haft ekki haft hugmynd um það. Hann talaði alveg eins og þarna hefði verið hreint borð og að framsóknarmenn, á meðan þeir stjórnuðu þessum málum, hafi gert það vel og að núv. stjórn hafi ekki tekið við neinum arfi, sem þurfi að ráða bót á.
Það er alveg nauðsynlegt, þegar einn hv. þm. kemur hér upp í ræðustólinn að tala fyrir einhverju ákveðnu máli, að hann kynni sér fyrst, áður en hann talar, hvernig málinu er varið, en hv. 7. þm. Reykv. hefur ekki gert það. Ég þekki hann nægilega vel að því að vilja hafa það, sem sannara reynist í þessu. Hér er aðeins ókunnugleiki eða þá það, að hann hefur tekið trúanlega suma flokksbræður sína, sem hafa farið með rangt mál hér í þinginu. Það er þó ekki vegna þess, að það sé svo stutt síðan hann komst í þennan félagsskap, að hann ætti þess vegna að láta sér bregða, þó að þyrfti að fara undir sigti það, sem þessir hv. flokksbræður hans oft segja, áður en það er haft eftir.
Nú veit ég það, að þrátt fyrir þetta fylgist hv. 7. þm. Reykv. það vel með, að hann veit, hvað er að gerast í sambandi við lánastarfsemi Búnaðarbankans nú. Ég er sannfærður um, að hv. 7. þm. Reykv. veit það, að Búnaðarbankinn er núna á næstunni að fá fé til þess að ljúka því, sem bíður nú þar óafgreitt. Ég er hér um bil viss um það. En hv. 7. þm. Reykv. segir þetta, sem hann sagði hér áðan, þrátt fyrir þetta, ekki aðeins til þess að það komi í þingtíðindin né heldur til þess að verði sagt t.d. í Tímanum á morgun: Þórarinn Þórarinsson, hv. 7. þm. Reykv., talaði vel fyrir fjáröflun, ekki aðeins til húsnæðismálasjóðs ríkisins, heldur einnig til þess að afla byggingarsjóði Búnaðarbankans fjár, — og þetta er náttúrlega ágætt að geta sagt. En ég held, að hv. þm. ætti næst, þegar hann kemur hér, að vanda mál sitt betur að þessu leyti, sigta það, sem flokksbræður hans ýmist hvísla að honum eða segja í heyranda hljóði, gera sér grein fyrir því, hvort það var satt, sem þeir voru að segja, eða hvort þeir voru að skrökva, hvort það eru staðreyndir, sem þeir fóru með, eða hvort það var bara áróður. Það er áreiðanlega hollt fyrir hv. 7. þm. Reykv. að gera sér grein fyrir þessu, áður en hann fer að tala í málum, sem koma inn á það svið, sem áróðurinn hefur snert.
Ég vil svo upplýsa það, að hvað snertir byggingarsjóð Búnaðarbankana, þá er þessi till. óþörf, vegna þess að sá sjóður fær fé, og eins og upplýst hefur verið, hefur ríkisstj. lofað því að útvega byggingarsjóði ríkisins 40 millj. í nýju fé auk hinna föstu tekna. En hv. 7. þm. Reykv. sagði það hér áðan, að þetta væri allt of lítið, það væri ekki hægt að fullnægja eftirspurninni með þessu, og ef það hefði verið farið að ráðum okkar framsóknarmanna og tillögur okkar framsóknarmanna á síðasta þingi hefðu verið framkvæmdar, vantaði ekkert fé, því að okkar till. voru bara um að útvega nóg fé. — Það er sannleikur, ef það hefði verið útvegað nóg fé, þá mundi ekkert fé vanta. En gallinn var bara sá, að þegar hv. Framsfl. var í stjórn og valdamikill, tókst honum ekki ævinlega að útvega nóg fé. Það vantaði oft fé til hinna nytsömustu framkvæmda, og ef hv. Framsfl. hefði ávallt getað útvegað nóg fé, væru ekki þær óreiðuskuldir fyrir hendi í seðlabankanum og annars staðar, sem ég áður hef lýst.
Það er enginn vafi á því, að ríkisstj. mun gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að útvega byggingarsjóði ríkisins og byggingarsjóði Búnaðarbankans nægilegt starfsfé. Hún hefur fullan hug á því, og ég hygg, að það megi alveg fullyrða, að það, sem núv. stjórn geri í þessu efni, verði ekki minna en það, sem vinstri stjórnin gerði, og ég ætla, að það geti orðið talsvert meira.