01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (2843)

12. mál, byggingarsjóðir

Frsm. meiri hl. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Allshn. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu á þessari till. Meðan till. hefur verið í athugun hjá n., hefur það verið upplýst í umr. hér á Alþ.,ríkisstj. hafi gert ráðstafanir til að tvöfalda það fé, sem húsnæðismálastjórn hefur til útlána á þessu ári, svo og að ríkisstj. vinni að lausn á málum byggingarsjóðs sveitabæja. Meiri hl. n. leggur því til, að till. verði vísað til ríkisstj.