17.02.1960
Sameinað þing: 16. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í D-deild Alþingistíðinda. (2851)
1. mál, Byggingarsjóður ríkisins
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Tillaga sú, sem hér um ræðir, er á þskj. 1, það er að segja, hún er fyrsta mál þessa þings. Og þar sem hún fjallar um þýðingarmikið og bráðaðkallandi mál, hefði víst mátt ætla, að hún hefði komið til umr. á fyrstu dögum þingsins í nóvembermánuði, en svo varð samt ekki. Hún fékkst þá ekki tekin á dagskrá, og svo var þingið, eins og alkunnugt er, rekið heim frá þessu svo og öllum öðrum aðkallandi málum, sem úrlausnar þingsins biðu í haust, þegar það kom saman. Till. er nú að koma til 1. umr., þegar komið er fram yfir miðjan febrúarmánuð.
Húsnæðismálastofnun ríkisins er vissulega í mikilli fjárþröng. Húsbyggjendur hundruðum saman eru stöðvaðir með íbúðabyggingar sínar, og þeir eru einnig fjöldamargir, sem eru í þann veginn að missa hálfgerðar íbúðir sökum þess, hversu biðtíminn eftir lánum frá húsnæðismálastofnuninni er orðinn langur. Fastar árlegar tekjur stofnunarinnar eru um 40 millj. kr., og hefur í engu verið úr bætt um tekjuöflun til hennar síðan á tímum vinstri stjórnarinnar. En tekjur þessarar stofnunar þyrftu að óbreyttri lánsupphæð að vera miklu meiri, það sýnir reynslan nú, a.m.k. ef takast ætti að veita öllum þeim lán, sem rétt eiga á því, eftir að íbúðir þeirra eru orðnar fokheldar, en miðað við núverandi byggingarkostnað þyrfti hámark lánanna óumdeilanlega að færast úr 100 þús., sem það nú er á íbúð, í að ég hygg um 150 þús. kr., en það eitt mundi auka lánsfjárþörf stofnunarinnar um þriðjung eða eitthvað um það bil.
Eftir að sú gífurlega gengislækkun. sem talið er að nú sé að skella yfir, er orðin, er því ekki hægt að ímynda sér annað en að flestir efnaminni menn. sem eru að byggja, verði að fá miklu hærri lán vegna aukins byggingarkostnaðar, ef þeir ættu ekki að stöðvast algerlega. En þá kemur að þeirri gífurlegu vaxtahækkun, sem nú er boðuð. Ef til vill verður hún ein nægileg til þess að sliga ýmsa þá, sem nú standa í byggingum, og til þess að gera öðrum ómögulegt að hefjast handa um að byggja sér íbúð.
Að öllu óbreyttu er fjárþörf húsnæðismálastofnunarinnar bæði brýn og aðkallandi, en eftir gengislækkunina verður hún í senn enn þá brýnni og jafnframt miklu stórfelldari, ef bygging íbúðarhúsnæðis á ekki að dragast stórlega saman.
En nú kynni einhver að segja, að viðhorf séu breytt í þessum efnum síðan í haust í þingbyrjun, þegar þessi till. var flutt, því að ríkisstj. hafi útvegað 15 millj. kr. til húsnæðislána. Þetta er þó mikill misskilningur, satt að vísu að nafninu til, en enn þá hefur ríkisstj. samt ekki aukið lánamöguleika húsnæðismálastofnunarinnar um eyris virði á árinu 1960. Það var látið heita svo, að seðlabankinn hefði lánað húsnæðismálastofnuninni 15 millj. kr. í janúarmánuði, en sá böggli fylgdi skammrifinu, að lánið skyldi borgast upp eftir 3 mánuði, og til tryggingar skilvísri greiðslu þess var tekið veð í jafnhárri upphæð af öruggustu tekjum stofnunarinnar á árinu. Þær tekjur verða því ekki til ráðstöfunar á þessu ári, nema ríkisstj. sæi sóma sinn í því að fyrirskipa seðlabankanum að breyta þessu sýndarláni í varanlegt og venjulegt byggingarlán a.m.k. til 15 eða 20 ára og helzt lengri tíma. Svona lánsútveganir til húsnæðismála eru vægast sagt til skammar, aðeins til að sýnast, einskis annars. Og þó voru held ég málgögn tveggja flokka að metast um það, hvorum flokknum það væri að þakka, að seðlabankinn hefði veitt þetta þriggja mánaða byggingarlán. Ég held, að það færi bezt á því, að þeir kæmu sér saman um að skipta með sér sæmdinni af þessu alveg hnífjafnt til helminga.
Það sýnir svo enn þá betur hina taumlausu frekju og blygðunarleysi frá seðlabankans hendi, að þriggja mánaða lánið var krossbundið skilyrði um það, hverjum mætti úthluta lánum af þessari upphæð. Hvað vinnst svo við þess konar lántöku? Það eitt, að húsnæðismálastjórn gat úthlutað lánum 2–3 mánuðum fyrr á árinu en ella hefði orðið. En svo takast líka 350–400 þús. kr. af árstekjum stofnunarinnar og renna til seðlabankans sem vextir. Þetta er það, sem vinnst við þessa svokölluðu fjárútvegun hæstv. ríkisstj. til húsnæðismálanna enn sem komið er. Ég tel því viðhorf í engu breytt frá því, sem var, þegar ég flutti þessa till. á öndverðu þingi.
Þessu næst vil ég þá víkja beint að efni till. Fyrsta atriðið í till. minni er um útgáfu B-flokksbréfa veðdeildarinnar, en það er aðeins framkvæmdaratriði.
Í öðrum lið till. er lagt til, að seðlabankanum verði falið að tryggja sölu á bankavaxtabréfum A- og B-flokks fyrir 40 millj. kr. samtals. Þetta getur vissulega þýtt það, að seðlabankinn sjálfur verði að láta af óhóflegri fjárfestingu sinni og kaupum á stóreignum í miðbænum og honum verði gefin fyrirmæli ríkisstj. um að verja nokkrum hluta af eigin ársgróða sínum til aðstoðar við lausn íbúðarhúsnæðismálanna. Þetta teldi ég ekki aðeins réttlátt, heldur blátt áfram sjálfsagt. Það mundi líka mælast vel fyrir, að æðsti yfirmaður seðlabankans, sem mjög hefur krafizt þess af öðrum, að dregið sé úr fjárfestingu, sýndi örlítinn lit á því sjálfur í sinni stofnun að lifa eftir kenningum sínum.
Þriðji þáttur till. er um það, að ríkisstj. leiti til stjórnar atvinnuleysistrygginganna og fái þær til að kaupa A-flokksbréf veðdeildar fyrir allt að 10 millj. kr., — eða, ef þær treystist ekki til að binda slíka fjárhæð til svo langs tíma, að fá þá nefnda upphæð hjá atvinnuleysistryggingunum í formi umsamins láns til eitthvað skemmri tíma.
Í síðasta lið till. er svo lagt til, að tekið verði 50 millj. kr. erlent lán til húsnæðismálanna. Hugmynd mín er sú, að ríkissjóður taki sjálfur slíkt lán, en endurláni það síðan byggingarsjóði ríkisins. Sjálfstfl. hefur hvað eftir annað lagt til, að tekið væri 100 millj. kr. lán erlendis til þess að ráða fram úr fjárskorti til byggingar íbúðarhúsnæðis. Minnist ég þess t.d., að núverandi hæstv. forseti Nd., Jóhann Hafstein, hefur oftar en einu sinni borið fram slíka till. Vænti ég þess því, að þessi till. um helmingi lægri upphæð fái fullan stuðning Sjálfstfl, nú.
Því miður vill það stundum brenna við hjá okkur, að lánsfé það, sem hið opinbera veitir, sem er 70–100 þús. kr. á íbúð, nægi rétt til að greiða upp gróðahluta þann, sem þeir menn taka í ýmsum tilfellum, sem fást við byggingarstarfsemi í gróðaskyni og selja síðan íbúðirnar hálfgerðar t.d., eins og oftast er, venjulega fokheldar. Þess munu ófá dæmi, að slíkir menn ætli sér 70–100 þús. kr. sem söluhagnað á íbúð. 2 slíkum tilfellum stendur kaupandinn þá uppi þannig, að hann verður sjálfur að standa undir öllum byggingarkostnaðinum þrátt fyrir fengin lán, en lánsféð er horfið í gróðahlut seljandans. Slíkt sem þetta gæti naumast gerzt hjá nágrannaþjóðum okkar, sem þó veita miklu hærri lán til íbúðarhúsnæðis. Þar annast opinber byggingarfélög langmestan hluta byggingarstarfseminnar, en síðan eru íbúðirnar annaðhvort seldar eða leigðar fyrir sannvirði. Við þyrftum að minni hyggju sem allra fyrst að koma byggingarstarfseminni hjá okkur í þetta horf. Það er engan veginn viðkunnanlegt, að menn geti gert sér neyð meðbræðra sinna í húsnæðismálum að féþúfu, né heldur að opinbert lánsfé lendi í höndum braskara, en komi ekki þeim, sem eru að berjast fyrir því að eignast þak yfir höfuðið, að neinum notum. Þess vegna er það ætlun mín, að þessu erlenda lánsfé yrði varið til byggingarstarfsemi á vegum húsnæðismálastofnunarinnar sjálfrar, henni væri falið að undirbúa vandlega tæknihlið byggingarstarfsins, efniskaup o.fl., allt með tilliti til þess að geta lækkað byggingarkostnaðinn sem allra mest, en síðan væru íbúðirnar seldar eða leigðar miðað við rétt kostnaðarverð og þeir látnir sitja fyrir húsnæði í slíkum byggingum, sem verst væru á vegi staddir í húsnæðismálum. Með slíkum vinnubrögðum teldi ég fullforsvaranlegt, að tekið væri erlent lán til húsnæðismála.
Í till. felst það í heild, að húsnæðismálastofnuninni verði sem allra fyrst útvegaðar 100 millj. kr. Með því fé mætti sennilega komast langt í þá átt að veita þeim mönnum full lán, 100 þús. kr., sem fengið hafa byrjunarlán nú þegar, og ef til vill einnig að veita flestum þeim byrjunarlán, sem nú eiga fokheldar íbúðir og eru því þannig í fullum rétti um að fá lán og þurfa endilega að geta fengið lánsfé til áframhaldsins. Þá væru þessi mál komin nokkurn veginn á hreint í bili. En samt sem áður væri það verkefni óleyst að auka svo árlegar tekjur húsnæðismálastofnunarinnar, að sams konar hali myndaðist ekki á ný.
Ég skal nú láta máli mínu lokið, en ég vil undirstrika það, að það fólk, sem er að brjótast í að byggja yfir sig og sína af litlum efnum, en af ótrúlegu harðfylgi, dugnaði og seiglu, á vissulega heimtingu á, að þjóðfélagið komi því til hjálpar, og vissulega yrði því veruleg hjálp að samþykkt þessarar till., ef framkvæmd ríkisstjórnar á henni yrði með myndarbrag.
Ég legg til, að till. verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.