17.02.1960
Sameinað þing: 16. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í D-deild Alþingistíðinda. (2853)

1. mál, Byggingarsjóður ríkisins

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Hv. 5. þm. Reykv. vék að því, að það væri athyglisvert, að það væri fyrrv. félmrh., sem nú bæri fram till. í húsnæðismálum, og virtist það vera eitthvað furðulegt fyrir honum. Ég álít, að einmitt með tilliti til þess, að ég gegndi því starfi áður, þá sé ekki óeðlilegt, að ég leiði hugann enn sem fyrr að húsnæðismálum og ástandi þeirra og beri fram till. til úrbóta, eins og málin blasa við nú, og það hef ég gert. Þetta tel ég, a.m.k. frá mínu sjónarmiði, vera mjög eðlilegt. Og hvernig er viðhorfið nú? Það er þetta, að á ævidögum fyrrv. ríkisstj., sem Sjálfstfl. var yfirstjórnandi í, þótt ekki ætti hann neinn ráðh. í ráðherrastóli, var ekki útvegaður einn eyrir til húsnæðismála. Og það, sem liðið er, síðan núverandi hæstv. ríkisstj. tók við völdum, hefur ekkert verið gert annað en útvegun þessa sýndarláns, sem ég nefndi svo og ég hygg að flestir muni telja réttnefni, þegar útvegaðar eru að nafninu til 15 millj. kr., sem eiga að borgast af árstekjum stofnunarinnar, sem menn látast vera að hjálpa. Og afleiðingin er ekkert annað en sú, að það verður hægt að afgreiða úr umsóknabunkanum 2–3 mánuðum fyrr nokkuð af umsóknum, en það kostar 300–400 þús. kr. í aukna vexti af tekjum stofnunarinnar á árinu. Það er vafasamt, hvort menn vilja meta þetta til hagræðis eða ekki í húsnæðismálum.

Hv. 5. þm. Reykv. taldi, að það væri von, að í óefni væri komið, vegna þess að hinu ágæta veðlánakerfi, sem hefði verið komið hér upp á fyrri stjórnarárum Ólafs Thors, núverandi hæstv. forsrh., hefði öllu verið umturnað og öllu spillt með húsnæðismálalöggjöfinni, sem vinstri stj. setti. Sannleikur þessa máls er sá, að þær litlu tekjur, sem veðlánakerfinu voru tryggðar, eru allar áframhaldandi tryggðar húsnæðismálastofnun og byggingarsjóði ríkisins, svo miklar sem þær voru, en það voru einkum tekjurnar af innkomandi smáíbúðalánum og ekki stór peningur. En þetta voru þær einustu föstu tekjur, sem húsnæðismálunum voru tryggðar, þegar ríkisstj. tók við völdum 1956. Bætti vinstri stj. nokkuð úr með lagasetningunni um byggingarsjóð ríkisins. Byggingarsjóði ríkisins voru tryggðar nær 130 millj. kr. sem stofnfé. Árlegur tekjuliður skyldu vera hjá húsnæðismálastofnuninni og byggingarsjóði tekjurnar af smáíbúðalánunum. 1% af tolltekjum ríkissjóðs skyldi renna til húsnæðismálanna og hefur gert það síðan. Hv. þm. getur metið það sem mínus eða plús, eftir því sem hann lítur á þessi mál. En enn fremur var svo skyldusparnaðurinn lögfestur, og hann hefur gefið, síðan hann var lögfestur, um 20 millj. kr. nettó á ári og myndar þannig nú um helminginn af þeim tekjum, sem húsnæðismálin njóta. Og enn fremur var svo ákveðið, að 2/3 hlutar af stóreignaskattinum skyldu falla til húsnæðismálanna, og var það næsta eðlilegt. Það var verið að skattleggja þá menn, sem höfðu auðgazt á verðbólgunni, á fasteignum fyrst og fremst, og þeir skyldu láta nokkuð af þessum gróða til aðstoðar við það fólk, sem væri að brjótast í að byggja yfir sig.

Með þessu hef ég nefnt aðalþættina í þeirri tekjuöflun, sem húsnæðismálunum var tryggð sem varanlegar, áframhaldandi árlegar tekjur, og hika ég ekkert við að fullyrða, að það, sem gerzt hefur í húsnæðismálunum síðan, er þó einkum að þakka því, að þessu fasta kerfi var komið á og húsnæðismálunum tryggðir fastir tekjustofnar.

Hitt er svo annað mál, að það hefur komið í ljós, að þetta var ekki nóg, þarna hefði þurft við að bæta. En það er auðveldara að styðja en reisa. Það var minna verkefni að bæta þarna úr, og það hefði átt að gerast á dögum ríkisstj. Emils Jónssonar og Alþfl., og þá, úr því að það var ekki gert, átti þetta auðvitað að vera eitt af fyrstu verkefnum hæstv. núverandi ríkisstj., um það er ekki hægt að deila.

Þá vék hv. 5. þm. Reykv. að því, að það hefði verið á vissum tímum áður réttlætanlegt að taka erlend lán til húsnæðismála. Svo hefði verið 1927, þegar Jón Þorláksson efldi veðdeildina, og það hefði líka verið 1950, þegar hann hefði borið fram till. um erlendar lántökur vegna húsnæðismála. En hví nefndi hv. þm. ekki líka 1957? Þá bar hann einnig fram till. um 100 millj. kr. lántöku erlendis til húsnæðismála, og hvað er breytt síðan? Þá hélt hv. þm. því líka, fram eins og nú, að á árinu 1957 væri tekið fyrir allan vöxt sparifjár. En skýrslur Landsbankans sýndu annað, færðar á sama hátt og verið hafði. Það var áframhaldandi vöxtur sparisjóðsinnstæðna þá, og svo hefur lengstum verið, þó að það hafi verið breytilegt. Ég held, að ef það hefði verið rétt að taka 100 millj. kr. erlent lán til húsnæðismálanna 1957, sé það rétt nú 1960, a.m.k. þegar ekki er um að ræða annað en að taka helmingi lægra lán, 50 millj. kr. lán. Það sem hefur breytzt síðan, er það, að þá var hv. 5. þm. Reykv. í stjórnarandstöðu, nú er hann í stjórnaraðstöðu. Nú mælir hann gegn því, sem hann þá lagði til. Þörfin er brýn nú, og það var hún þá einnig. En ætti ekki læknandi máttur gengislækkunarinnar nú að gera það að sjálfsögðum hlut, að það væri ekkert áhættusamt að taka erlent lán? Væri kannske ekki hægt að klípa þetta af 800 millj. kr. lántökunni, sem heitin er? Væri það nokkurt glapræði að fá að verja 50 millj. af henni til húsnæðismála? Fólk þarf að hafa þak yfir höfuðið í þessu kalda landi, það skilja þeir jafnvel suður í París, vænti ég, kannske í Washington líka.

Sem sé, hv. þm. ræddi um húsnæðismálin á þeim grundvelli, að þær tekjuaflanir, sem vinstri stj. stóð að og nú bera uppi þær 40 millj., sem húsnæðismálastofnunin hefur nú sem fastar tekjur, það fannst honum allt til hins verra. Erlendu lántökurnar taldi hann alveg ómögulegar, af því að nú væri tekið fyrir allan vöxt sparifjár. Með gengislækkuninni ætti þetta líklega að vera læknað, við ættum að vera komnir á það stig nú, að nú væri þetta sjálfsagt, nú væri hinn vaxandi sparnaður fram undan og auknar sparifjárinnstæður vissar. Mér virðist því, að tíminn ætti að vera alveg út frá hana sjónarmiðum tilvalinn til þess að taka nú erlent lán.

Að lokum gerðist svo hv. þm. sanngjarnari en hann hafði verið í upphafi ræðu sinnar og játaði, að það væri rétt, að lítið hefði verið gert að útvegun fjár í húsnæðismálum að undanförnu. Og það er sannarlega lítið, það er eingöngu þessi 15 millj. kr. útvegun til þriggja mánaða með veði í árstekjum stofnunarinnar sjálfrar, og það er sannarlega of lítið.

Ég hafði verið að gera mér vonir um það, að ástæðan til þess, að þessari till. hefði verið bægt frá umr. fund eftir fund, eftir að þing kom saman aftur, tekin út af dagskrá núna tvívegis, væri kannske sú, að ríkisstj. væri með fjárútvegun í burðarliðnum og gæti tilkynnt það, þegar till. loks kæmi til umræðu, að nú væri búið að kría t.d. út úr atvinnuleysistryggingunum 15 eða 20 millj. því að það hef ég heyrt haft við orð að stæði til. En sá gleðiboðskapur hefur ekki mætt mér enn, og harma ég það. En ég harma einnig, að menn, sem áður hafa mælt með erlendri lántöku til þess að bæta úr fjárskorti í húsnæðismálunum, skuli nú gerast til þess að mæla gegn því, því að á því átti ég ekki von. Ég hafði vonað, að áhugi þessara manna í húsnæðismálum entist, þó að þeir væru komnir í stjórnaraðstöðu.