15.03.1960
Neðri deild: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

88. mál, söluskattur

Einar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég er nýliði hér og ætlaði ekki að fara að taka þátt í þessum umr., þegar ég kom á fund í dag, en hv. 1. þm. Austf. gaf mér tilefni til að standa upp. Hann var að reikna hér og reikna, og hann nefndi margar tölur, og ég ætla líka aðeins að reikna, en ekki að nota margar tölur. Það er þeim mun einfaldara að melta þær. Ég ætla aðeins að nota eina tölu, töluna 200.

Það er viðurkennt og ekki vefengt, að við höfum á undanförnum árum tekið lán erlendis, sem nemur 200 millj. kr. árlega, og lifað þannig 200 millj. kr. um efni fram. 200 millj. kr. eru 20% af útflutningi þjóðarinnar, ef við miðum við venjulegt gengi eða gamla gengið. En nú er komið að skuldadögunum, og þetta er ekki nein smáræðisskuld, sem þarf að greiða. Hún er þeim mun stærri, þegar við þurfum að borga hana tvöfalda. Hafi það verið áður 10% á útflutningnum, þá verða það nú 20%, þegar við þurfum að fara að endurgreiða.

Það fannst mér einna broslegast hjá hv. 1. þm. Austf., þegar hann var hér að fordæma skattana. Hann hefur aldrei séð aðra björg en skatta. Hann á vafalaust líka heimsmetíð í skattaálagningu.

Þegar Framsókn komst fyrst til áhrifa hér á fjórða tug aldarinnar, byrjaði hún valdaferil sinn á því að leggja í rúst myndarlegan atvinnurekstur, einkarekstur, í mörgum byggðarlögum. Hún ofsótti einkaatvinnureksturinn leynt og ljóst, og henni varð mikið ágengt. Hún notaði alla aðstöðu, jafnvel banka, og ég, sem er úr Vestmannaeyjum, þekki kannske eitt gleggsta dæmið, hversu svívirðilega var farið að því að ofsækja einkareksturinn, þegar atvinnurekstur Gísla J. Johnsens var lagður í rúst. Hann var í miðri uppbyggingunni. Hann var að fá sér nýtízku báta af allra fullkomnustu gerð, sem þá gerðist á Íslandi, með meiri nýtízkutækjum en áður þekktust. Hann var í miðri byggingu á þurrkhúsi, sem var auðvitað framfaraspor og kom seinna. Hann var að byggja nýtízkulifrarbræðsluna, og hann var nýbúinn að endurbyggja fiskimjölsverksmiðju. Allt þetta var stöðvað í miðjum klíðum af Framsfl., sem þá komst til valda. Og við skulum hugsa okkur það, að þeir framsóknarmenn hefðu nú komið og bjargað byggðarlaginu með atvinnurekstri. Nei, þeir gerðu það ekki. Það liðu tíu ár, það leið alveg að stríðinu, og það kom enginn þarna til þess að taka við því myndarlega verki, sem var stöðvað í miðjum klíðum.

Aðeins varð þó vart við lítils háttar anga. Það var KEA, sem kom til Vestmannaeyja á vetrarvertíð til þess að kaupa saltfisk. Og til hvers? Til þess að ná í gjaldeyri. Þeir voru undanþegnir að hlíta sömu reglum og aðrir um meðferð gjaldeyris. Þeir gátu látíð sér nægja að gera skil á gjaldeyrinum, senda skýrslu um það, hvernig þeir höfðu varið honum.

Þá minntist hv. 1. þm. Austf. á bankana og var að tala um það, hve menn og að manni gat skilizt ekki hinir réttu menn hefðu mikinn og góðan aðgang að bönkunum. En hvað skeði nú, — við skulum ekki fara langt aftur í tímann, — þegar vinstri stjórnin tók við? Lét hún ekki samþykkja nýja bankalöggjöf til þess að geta fengið fullkomin yfirráð yfir bönkunum, og við skulum ætla, að það hafi ekki verið hinir vondu menn. Ótrúlegt er, að búið sé að ausa svo miklu fé úr bönkunum síðan, það er ekki svo langt síðan vinstri stjórnin hrökklaðist frá, að það ætti að vera komið þannig eins og hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, vildi draga myndina upp. Nei, það var ramakvein þess manns, sem finnur, að hann hefur ekki sömu tök þarna og hann hafði áður.

Þá var þessi hv. þm. hér að feila krókódílstár yfir álögunum á almenning, sköttunum á soðninguna og kjötíð, eins og hann var að tala um. Ég velt ekki til, ég hef nú ekki horft á hann hér í ráðherrastól, — að hann hafi nokkurn tíma, þegar hann var ráðherra, fellt tár yfir álögum á almenning. Og ekki var nein fordæming á gengislækkun, þegar hann sat í ríkisstj. og Framsókn lagði til, að gerð yrði gengislækkun. Nei, nú er það eitthvað það versta, sem á að hafa verið gert. Nú mátti laga allt á annan hátt en að framkvæma gengislækkun. Ef þetta er ekki tvískinnungur, þá veit ég ekki, hvað tvískinnungur er. Eystein Jónsson hefur aldrei klígjað við sköttum.

Í sambandi við skattana og tollana getum við sagt, að þeir séu allt of miklir, og ég vil segja það fyrir mig, að ég hefði kosið, að hætt hefði verið niðurgreiðslum og tollarnir lækkaðir. Ég álít, að það hefði verið heilbrigðara. En þar kemur margt til greina, það hefði sjálfsagt lagzt miklu þyngra á almenning en með því að fara þá leið, sem farin var.

Lífsafkoma almennings mætti áreiðanlega vera betri. Það eru allir menn þannig hugsandi, að þeir vilja lífsafkomu almennings sem bezta, hvað svo sem hv. 1. þm. Austf. segir um hinn vonda tilgang efnahagsfrv. og núv. ríkisstjórnar og stjórnarflokka. En ég held, að höfuðmeinsemdin í því, að afkoma almennings er ekki betri en hún er, sé sú, að yfirbyggingin er allt of mikil. Það er yfirbyggingin og hin mikla skriffinnska, sem lamar lífsafkomu almennings og dregur allt of mikið til sín. En ég held, ef við eigum að fara að rekja orsakirnar til þess, þá sé það fyrst og fremst til vinstri flokkanna. Þeim hefur aldrei fundizt nóg komið af nefndum og opinberu eftirliti og hafa ungað út einni stofnuninni á fætur annarri, sem hefur orðið að launa og halda uppi, ekki aðeins með kaupgjaldi, heldur húsnæði, svo að ríkisstofnanir eru hér dreifðar út um allan bæ. En það er auðvitað á fleiri sviðum, sem léleg lífsafkoma segir til sin, og það mætti nefna mjög mörg dæmi um það, hvernig gálaust líferni vinstri flokkanna og vinstri stjórnarinnar kemur nú niður á almenningi, þegar þarf að fara að reisa hlutina við.

Hv. 1. þm. Austf. minntist hér á eina af sögupersónum Halldórs Kiljans Laxness, Bogesen. Bogesen var góðlátur kaupmaður um 1920, og það er ekki óskemmtileg mynd eða endurminning, sem menn hafa um Bogesen úr sögu Laxness, síður en svo. Hann var atvinnurekandi og kaupmaður og lifði þá breytingu, sem varð, þegar verkalýðsfélögin fóru að láta til sín taka, og hann beið á vissan hátt sinn ósigur. En Íslendingar höfðu annan yfirdrottnara yfir atvinnulífi sínu og lífi heldur en Bogesen og alla Bogesenana, sem voru og hétu um 1920. Fram um aldamótin og fram yfir þau voru selstöðukaupmennirnir öldum saman allsráðandi í lífi íslenzku þjóðarinnar. Þeir gátu haft hlutina alveg eins og þeir vildu. Þeir gátu haft búðina opna tvo tíma á dag, ef þeim svo sýndist, og þeir sátu náttúrlega yfir hlut manna, eftir því sem þeim fannst að þeir þyrftu, til þess að fá sínar krónur heim. Þeir neituðu sjómönnum, sem reru til fiskjar á opnum skipum, um salt í fiskinn sinn, ef þeir vildu ekki selja selstöðukaupmönnunum hann upp úr sjó, af því að meira var fyrir þá upp úr honum að hafa þannig. En hvað er verið að minnast á þessa hluti hér? Eru nokkrar hliðstæður 1960 við það, sem var fyrir 60 árum eða mörgum öldum? Jú, það eru einmitt hliðstæður í dag, svo einkennilegt sem það er. Og eru það þessir harðsvíruðu kaupmenn, atvinnurekendur, frystihúsamenn og braskarar, eins og þeir heita á máli þeirra Tímamanna? Nei, það er hinn græni laukur, samvinnufélögin. Í haust, þegar stóð til að fara að ráða til sín báta, þá sagði kaupfélagsstjórinn á Hornafirði við smáatvinnurekanda þar, sem hafði haft einn eða tvo báta: Heyrðu, góði minn, ég ætla ekki að kaupa af þér beinin eða lifrina í vetur. Þú getur lagt árar í bát. — Þetta minnir mann átakanlega á atferli selstöðukaupmannanna öldum saman gagnvart Íslendingum. Ég er ekkert að fara lengra aftur í tímann, en Hornafjörður er frægur úr sögunni fyrir slíkar hliðstæður. En engin ástæða er til að rifja upp þær syndir. En það er víða svo hér á landi, þar sem kaupfélögin eru algerlega einráð á sama hátt og Bogesen. Þau náttúrlega beita valdi sínu misjafnlega og nota aðstöðuna. Það fer eftir mönnunum. En þetta er til og sjálfsagt víðar en þarna, þar sem einokunin er. Þess vegna viljum við, sem unnum frjálsu framtaki, fyrst og fremst samkeppni og teljum hana beztu leiðina til þess að skapa lágt vöruverð og þar með góða lífsafkomu, fjölbreytni í framleiðsluháttum o.s.frv. Þó að leitt sé að þurfa að segja það, hefur Framsfl. gert allt, sem hann hefur getað, til að skapa samvinnufélögunum aðstöðu til þess að útiloka samkeppni og skapa þeim þannig sömu aðstöðu og einokunarkaupmennirnir höfðu. Framsóknarmenn hafa árum saman haft það í lögum, sem komið var á fyrir þeirra atbeina, að banna byggingu sláturhúsa, þar sem sláturhús var fyrir, og það voru oftast nær kaupfélagshúsin. Þannig gátu þeir útilokað samkeppni um afurðir bænda, og þetta hefur verið ómetanlegt fyrir kaupfélögin. Á áratugnum fyrir stríð var bannað að byggja frystihús og flytja inn frystivélar, og það var notað miskunnarlaust gegn einkaframtakinu, sem mátti ekki komast af stað með slíkt. Mörg dæmi eru um það, hvernig menn í stórum verstöðvum urðu að kaupa gamlar vélar úti á landi og setja þær í gömul hús til þess að reyna á einhvern hátt að komast áfram fram hjá þessum ákvæðum, sem áttu að hindra samkeppnina.

Í sambandi við ráðstafanirnar skal ég segja það, að auðvitað eru atvinnurekendur ekki hrifnir af því, að vextirnir séu hækkaðir. Það getur hver maður sagt sér sjálfur. Og auðvitað erum við ekki hrifnir af því, að dregið sé úr lánunum. Haldið þið, að við séum hrifnir af því, að Seðlabankinn ætlar nú ekki að lána okkur nema helming út á framleiðsluna, en lánaði okkur áður 2/3 ? Nei, við erum ekki hrifnir af þessu. En við erum eins og sjúklingur, sem tekur inn bragðvont lyf. Við erum jafnvel eins og sjúklingur, sem gengur undir skurðaðgerð. Við viljum þola bragðvont lyf, og við viljum þola sársauka í von um bata. Við viljum ekki vera háðir ríkisvaldinu jafnmikið og við höfum verið, þó að hv. 3. þm. Reykv., — þið fyrirgefið, ef ég ruglast í röðinni, — lofi það og vilji halda við þessu sama skipulagi. Við viljum það ekki. Við viljum burt með afskipti ríkisvaldsins. En það er skiljanlegt, að hann sjái hilla undir sigur stefnu sinnar við aukin afskipti ríkisvaldsins. Það getur maður vel skilíð. En ég held, að allir séu sammála um, að þetta fyrirkomulag a.m.k., sem við höfum búið við nú frá því í lok stríðsins með sífelldum breytilegum uppbótum, sem hafa borið þessi og hin heiti, var búið að ganga sér fullkomlega til húðar.

Okkur langar ekki, að smámurkað sé úr okkur lífið, en verið var á góðri leið með það. Okkur langar ekki, að atvinnurekstur einstaklinganna fari yfir til bæjarfélaganna eða ríkisins, þegar búið er með rangindum að koma okkur fyrir kattarnef eða atvinnurekstri okkar. Nei, við trúum ekki á, að bæjarfélög eða ríkið geti náð betri árangri og skapað almenningi betri lífsafkomu. Við trúum því ekki, og ég er sannfærður um, að svo er ekki. Það er alveg rétt, að það hafa verið erfiðir tímar hjá útgerðinni og fiskverkuninni nú í haust og framan af vertíð, á meðan lítið aflaðist. Hv. 3, þm. Reykv. minntist á það, og hann sagði, að það hefði gengið erfiðlega að greiða kaup, og það er alveg rétt. Það er margur atvinnurekandi, sem hefur átt erfitt með að greiða kaup í haust og í vetur, þó að hann hafi ekki verið krossfestur í Þjóðviljanum eða Tímanum, ef munað hefur tíu mínútum. En það er ekki efnahagsráðstöfunum núv. ríkisstj. að kenna, það var komið til áður. Það var allt of illa búið að fiskvinnslunni og útgerðinni í byrjun s.l. árs, og af því var verið að súpa seyðið. En við skulum vona, að gæftir og góður afli létti undir, ekki aðeins með útgerðarmönnum, heldur líka með ríkisstj., því að það er nú einu sinni svo, að ekkert blessast, ef forsjónin heldur ekki í höndina á manni. Og við skulum vona, að forsjónin haldi í höndina á þjóðinni með því að gefa henni meiri og betri afla og betri gæftir en hún hefur lengi gert. Við getum þurft að þola tímabundið tap, og við getum þurft á lánum að halda til þess að fleyta okkur yfir erfiðleikana eða dauða tímann.

Okkur ber öllum saman um, að mikilvægast af öllu sé kannske sjávarútvegurinn, og ég þarf ekkert að segja: kannske, því að fyrir hverja krónu, sem við kaupum erlendan varning fyrir, fáum við 95 aura frá sjávarútveginum. En þó er nú viðurkenning þjóðarinnar eða forráðamanna hennar á þessum atvinnuvegi ekki meiri en það, að helzt er algerlega útilokað að fá nokkur stofnlán, t.d.. til fiskvinnslu. Bankarnir mega ekki heyra nefnd stofnlán. Þeir geta hugsað sér að fara kannske allt upp í 100% rekstrarlán, en stofnlán, guð hjálpi okkur, nei, ekki krónu. Þetta er auðvitað ekki heilbrigt, það er langt, langt frá því, við atvinnuveg, sem er jafnnauðsynlegur og sjávarútvegurinn, hvernig sem á málið er litíð.

Í sambandi við vextina, sem hv. 3. þm. Reykv. var að minnast á, hefði ég nú álitíð, — það þýðir ekkert að vera að segja það nú, þetta er klappað og klárt og engu verður breytt, en það getur hver sagt sína skoðun á hlutunum fyrir því hreinskilnislega og afdráttarlaust, –að vextirnir af lánum út á sjávarafurðir eða þessi seðlabankalán, sem við köllum og verða nú ekki nema helmingur, — látum það vera, –hefðu ekki átt að hækka. Refsivextirnir hefðu þá verið 12%, eins og gert var ráð fyrir. Það hefði þó a.m.k. náð þeim tilgangi að pína þá, sem voru í þessum atvinnurekstri til þess að eiga sem mest fé í þessu sjálfir. Þegar mismunurinn er orðinn svona gífurlegur eins og milli 5 og 111/2 eða 51/2 og 12, þá segir það sig sjálft, að hver einasti maður hefði lagt sig allan fram um að reyna að skulda ekki neitt á þessum refsivöxtum. Ég minnist þess, þegar ég kom stundum inn í bankann og var að reyna að slá fyrir vinnulaunum, lán, sem ég átti kannske lítinn rétt á, af því, hvernig búið var að sjávarútveginum með stofnlán, heyrði ég það oft, að bankarnir yrðu að vera með sin lán á refsivöxtum, 12%, og lánuðu svo aftur féð út á 71/2 eða 8%. Og þetta fannst náttúrlega bankastjóranum hreinasta goðgá, og ég skal alveg játa, að það var það. En auðvitað hefði atvinnurekendum fundizt nákvæmlega það sama og lagt sig alla fram um að þurfa ekki að sæta slíkum refsivöxtum. Þetta er nú klappað og klárt. En það kemur dagur eftir þennan dag, og það getur vel verið, að augun opnist á öðrum fyrir þessu sama, þó að ég skuli ekkert um það segja. En ég trúi því, að menn séu svo réttsýnir og glöggskyggnir á þarfir útflutningsframleiðslunnar, að þeir sjái, að það er mjög mikilvægt að létta undir með henni, ekki aðeins með aðgang að stofnlánum, heldur með hæfilegum rekstrarlánsvöxtum og rekstrarlánum.

En það er þó kannske enn annað, sem er miklu mikilvægara fyrir okkur, af því að það er grundvallaratriði, og það er jafnrétti rekstrarformanna. Það er ekkert gaman að stunda atvinnurekstur í þjóðfélagi, þar sem annar er ofhlaðinn sköttum á öllum sviðum, en hinn skattfrjáls, og ekki aðeins skattfrjáls, heldur styrktur á allan hátt, eins og opinberi reksturinn er. Ef það er sveitar- eða bæjarfélag, sem hefur atvinnurekstur með höndum, greiðir það auðvitað ekkert útsvar, það greiðir auðvitað engan skatt og fær venjulegast styrk í útsvörum frá borgurunum, en á sama tíma má einkareksturinn stynja undir þungum veltuútsvörum og sköttum og margs konar öðrum gjöldum. Alveg sama má segja um ríkisreksturinn. Víðast hvar er hann algerlega skattfrjáls. Þetta er kannske eitthvað það allra versta. Lítils háttar útsvar, sem er þó ekkert sambærilegt við einkareksturinn, ber hann sums staðar, eins og á Siglufirði. Og þó er ekki fullupptalið misrétti rekstrarformanna, því að samvinnufélögunum, þó að þau séu þarna einhvers staðar mitt á milli, er sannarlega hyglað í þessum efnum. Ég man ekki betur en við síðustu útsvarsálagningu væri Samband ísl. samvinnufélaga útsvarsfrjálst í Reykjavík, en hefði það verið einkarekstur, hefði það þurft að borga margar millj. kr., og alveg það sama er að segja um kaupfélögin úti um land. Þau verða að vísu sums staðar að bera eitthvert veltuútsvar, eða eitthvert útsvar, af því að þau hafa tekið við af einkarekstrinum, sem oft og einatt var lagður í rúst. Það hefur orðið að leggja á þau útsvar, af því að þau hafa orðið að bera uppi gjöld til bæjarfélaganna eða sveitarfélaganna. Það var óhjákvæmilegt. En það er samt sem áður ekkert borið saman við það, sem einkareksturinn verður að bera, og sjálfsagt eru þau ekki skyld til þess samkv. lögum, að greiða útsvar nema af verzlun utanfélagsmanna, sem alltaf er hægt að hnika til, eins og hverjum sýnist. Alveg það sama er að segja um skattana. Þau eru í mun lægri skatti eða svo að segja alveg hverfandi skatti borið saman við einkareksturinn. En þrátt fyrir þetta þótti framsóknarmönnum, sem eru eins og skjaldborg um samvinnufélögin, — og látum það gott heita, — ekki nóg að gert, heldur þurftu þeir að beita sér fyrir setningu laga, sem voru hreint rán hjá einkarekstrinum og einstaklingunum, og það er stóreignaskatturinn, sem mun halda uppi nafni hv. 1. þm. Austf., á meðan reynt verður að berjast fyrir verndun eignarréttarins á Íslandi.

En það er kannske margt, sem hefur hjálpað til að gera lífsafkomu almennings verri en hún gæti verið. Og fyrst og fremst er það ráðdeildarleysi þeirra, sem hafa stjórnað undanfarið, t.d.. í tíð vinstri stjórnarinnar. Ég minnist þess t.d.. að á þingmálafundi, — ég hef aldrei getað gleymt því, — sagði hv. 1. þm. Austf.: Ég mokaði og mokaði atvinnubótafé í þetta og þetta sveitarfélagið eða útgerðina, sem þar var um að ræða. — Já, hann mokaði og mokaði eftir þörfum. Haldið þið, að það hafi bætt lífsafkomuna að vera að moka fé í t.d. útgerð Austfjarðatogaranna, til þess að þeir gætu lagt upp hérna í Reykjavik, eins og þeir gerðu þetta ár allt? Ég held, að 4.4 millj. hafi það verið, ég man það ekki almennilega, nefni þessa tölu, til þess að menn fái einhverja hugmynd um það. Ekki er furða, þó að almenningur súpi seyðið af því í dag. Og það virðist vera mælt af söknuði, að ekki væri hægt að halda slíku áfram nú, þegar hann hafði ekki lengur tögl og hagldir á ríkissjóði.

En það er auðvitað á fleiri sviðum en í sambandi við skattana, sem hefur verið mismunað, t.d. opinberum rekstri og samvinnurekstri. Við vitum, að í sambandi við innflutninginn hafa þessir aðilar haft allt aðra aðstöðu en einkareksturinn. Og það eru ótal eftirlitsnefndir og skrifstofubákn, sem Framsfl. fyrst og fremst hefur beitt sér fyrir til þess að geta hlúð að þessum atvinnurekstri fram yfir aðra. En við, sem trúum á einkaframtakið og einkareksturinn fyrst og fremst, neitum því að vísu ekki, að opinber rekstur geti verið nauðsynlegur á vissum sviðum. En ég fyrir mitt leyti trúi ekki á, að atvinnurekstur í venjulegum skilningi geti nokkurs staðar náð betri árangri undir stjórn þess opinbera heldur en undir stjórn einstaklinganna, ef á það er litíð, hvað bezt er fyrir almenning í landinu og lífsafkomuna í heild. Við trúum á það, að samfara þessum efnahagsráðstöfunum, sem nú er verið að gera, hversu erfiðar sem þær eru, fyrst og fremst vegna þeirra synda, sem við verðum nú að gjalda fyrir og voru drýgðar í tíð vinstri stjórnarinnar, fáum við aukið frelsi, og við trúum á það, að við fáum meira jafnrétti eða kannske fullkomið jafnrétti í atvinnurekstri og verzlun. Við trúum á það, að farsælasta leiðin til betri lífskjara sé afnám skriffinnskunnar, afnám haftanna og afnám forréttindanna og jafnrétti atvinnurekstrarformanna í skattheimtu og útsvörum.