15.03.1960
Neðri deild: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1305 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

88. mál, söluskattur

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Áður en ég vík almennt að því frv., sem hér liggur fyrir, ætla ég að minnast nokkrum orðum á 1. gr. frv., það atriði, sem þar kemur fram. Í 1. gr. frv. segir á þá leið, að ríkissjóður skuli greiða jöfnunarsjóði sveitarfélaga um fimmta hluta skatts þess, sem um ræðir í 1. tölulið gr. Á hæstv. fjmrh. var svo að skilja, að þær tekjur, sem bæjar- og sveitarfélögin mundu fá samkvæmt þessu, yrðu notaðar til þess að lækka útsvörin, og ef það væri mögulegt, þá er það vitanlega sjálfsagt, en þá er spurningin sú: Hvaða útsvör eru það, sem þessi lækkun ætti þá fyrst og fremst að beinast að?

Í því sambandi finnst mér rétt að rifja það upp, að fyrir réttum tveimur árum, í apríl 1958, beittu nokkur félagssamtök sér fyrir því að fá hingað erlendan sérfræðing í skattamálum til þess að segja álit sitt á beinum sköttum hér á landi. Þau samtök, sem áttu hlut að þessu, voru Verzlunarráð Íslands, Vinnuveitendasamband Íslands, Félag íslenzkra iðnrekenda, Félag ísl. stórkaupmanna, Samband smásöluverzlana, Landssamband iðnaðarmanna. Þau fengu Iðnaðarmálastofnun Íslands til þess að útvega þennan sérfræðing, og hún sneri sér til framleiðniráðs Evrópu, og fyrir milligöngu þess kom hingað sænskur skattasérfræðingur, prófessor Nils Västhagen, sem skilaði síðan allýtarlegri skýrslu um skattamálin hér á landi.

Í sambandi við útsvörin vakti hann alveg sérstaka athygli á einni grein útsvaranna, sem að hans dómi eða samkv. hans upplýsingum átti sér hvergi stað nema hér á Íslandi og hann taldi að öllu leyti hina fjarstæðustu. Hann segir t.d. á einum stað í áliti sínu, með leyfi hæstv. forseta: „Það er einkennileg og sérstæð regla í útsvarsálagningu á Íslandi, að sveitarfélögin leggi einnig útsvar á veltu fyrirtækjanna.“ Á öðrum stað segir hann svo á þessa leið: „Í kafla B er getíð þess sérkennilega skatts, veltuútsvarsins, sem lagt er á veltu fyrirtækjanna. Ókostir skattakerfis sveitarfélaganna, sem drepið var á hér rétt áður, eiga sérstaklega við um þennan skatt.“ Svo segir hann enn fremur: „Með því að leggja á þennan veltuskatt, geta sveitarstjórnirnar lamað verulega þróun fyrirtækja og gert vissar atvinnugreinar algerlega óarðbærar. Skattlagning á veltu virðist hafa slíkar efnahagslegar afleiðingar, að sveitarfélögunum ætti ekki að vera heimilt að beita henni.“ Fleira segir hann um veltuútsvarið í þessari grg. sinni eða þessu áliti sinu, sem ég tel ekki ástæðu til þess að rifja frekar upp, en niðurstaða hans var í stuttu máli sú, að veltuútsvarið hefði þau áhrif í mörgum tilfellum, að það ekki aðeins lamaði starfsgetu fyrirtækjanna, heldur gengi oft og tíðum á eignir þeirra, vegna þess að það æti upp allar tekjurnar og meira til.

Í framhaldi af þessu finnst mér rétt að vekja athygli á grein, sem birtist í Morgunblaðinu s.l. sunnudag, þar sem nokkuð er rætt um þetta mál. Þar er það rifjað upp, að nýlega hafi fallið dómur í máli út af veltuútsvari, og svo nokkuð lagt út af því. Í þessari grein segir m.a., með leyfi hæstv. forseta: „Margur maðurinn hefur oft og einatt borið sig illa út af veltuútsvarinu og það ekki að ástæðulausu. Ranglátari skattur er ekki til í þjóðfélaginu.“ Svo er sagt frá þessum dómi, sem ég minntist á áðan, og segir síðan, með leyfi hæstv. forseta: „Athyglisverðast við dóm þennan er það, að niðurjöfnunarnefndum virðist heimilt samkvæmt landslögum að taka upp allar eignir manna eða félaga með veltuútsvari á fáum árum. Hvar eru nú ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins? Skeljungur“ — það var félagið, sem fór í málið — „Skeljungur sýndi fram á undir rekstri málsins, að með sama áframhaldi í útsvarsálagningu yrði svo komið innan fjögurra ára, að allt stofnfé félagsins væri gengið til þurrðar. Í þjóðfélagi, sem lögverndar slíkt, er ekki unnt að búast við, að heilbrigður atvinnurekstur þrífist til lengdar. Það er verið að setja ýmis lög, reglur og fyrirmæli, sem miða eiga að því að efla traust manna á eignarréttinum og krónunni og hvetja menn til sparnaðar, en svo á sér stað óátalið slíkt rán sem veltuútsvarið. Það er ekki von, að vel fari. Hver reynir eftir beztu getu að koma sér undan refsivendi slíkra laga og reglna, þótt margir séu ofurseldir og eigi sér enga undankomu.“

Ég held, að það sé alveg óhætt að taka undir það, sem segir í þessari Morgunblaðsgrein, að veltuútsvarið verkar í mörgum tilfellum þannig, að það eyðir ekki aðeins öllum þeim tekjum, sem fyrirtækin hafa, heldur gengur stórkostlega á eignir þeirra og lamar þar með starfsgetu atvinnufyrirtækjanna, og það leiðir svo aftur til atvinnuleysis og versnandi afkomu almennings í landinu. Og það verða menn að gera sér ljóst, að fyrst búið er við kapítalískt kerfi á annað borð, þá þýðir ekki að búa þannig að atvinnufyrirtækjunum, að þeim sé gert ókleift að starfa, en það er óneitanlega gert í mörgum tilfellum með veltuútsvarinu. Og á það má alveg sérstaklega benda, að veltuútsvarið leikur oft og tíðum þau fyrirtæki verst, sem leysa bezta þjónustu af hendi, t.d. verzlunarfyrirtæki, sem hafa lága álagningu, fá því mikla veltu, en þetta verður svo aftur til þess, að skatturinn á þeim verður hærri en ella. Veltuútsvarið fer oft og tíðum mjög illa með ný fyrirtæki, sem verið er að byggja upp og eiga erfitt með að rísa undir þeim álögum, sem af því hljótast. Ég held þess vegna, að ef mögulegt væri vegna þessa ákvæðis í því frv., sem hér liggur fyrir, að láta bæjar- og sveitarfélögin fá nokkurn hluta af söluskattinum, ef það gæti leitt til þess, að það væri hægt að lækka útsvörin að einhverju leyti, þá ætti það fyrst og fremst að verða til þess að draga úr veltuútsvarinu. Heppilegast væri, að það væri hægt að afnema það með öllu, en a.m.k. lækka það og gera það frádráttarhæft.

Ríkisstj. hefur boðað, að hún muni gera breytingar á tekjuskattslögunum, sem verði til þess að lækka álögur á einstaklingunum. En það væri þó ekki óeðlilegt, fyrst slík lækkun er gerð á annað borð, að þetta næði að einhverju leyti líka til atvinnufyrirtækjanna, ekki sízt þegar þannig er ástatt, að nú er verið að gera ýmsar ráðstafanir og leggja á ýmsar álögur, sem koma til með að gera þeim erfiðara að starfa en áður. Það gæti komið til mála í sambandi við þetta frv., að sett yrði eitthvert ákvæði um, að þær tekjur, sem sveitar- og bæjarfélögin fá samkv. því, yrðu til þess að draga að einhverju leyti út veltuútsvarinu eða a.m.k. gera það frádráttarhæft. En nú heyrist, að ríkisstj. hafi í undirbúningi lagasetningu eða sennilega frv., sem verður lagt fyrir þetta þing um skattamál bæjar- og sveitarfélaga, og ef svo er, þá má e.t.v. sleppa því að koma með sérstaka breytingu um þetta í sambandi við þetta mál. Þess vegna vildi ég gera þá fsp. til hæstv. fjmrh., hvort það væri ekki rétt, að ríkisstj. mundi leggja fram frv. á þessu þingi um skattamál bæjar- og sveitarfélaganna, og eins spyr ég hann að því, hvort ríkisstj. hefði þá ekki hugsað sér einhverjar breyt. í því sambandi, einhverjar breytingar á veltuútsvarinu í samræmi við það, sem ég hef nú sagt. Ef það lægi fyrir, að ríkisstj. hefði einhverjar slíkar áætlanir á prjónunum, væri óþarft að hreyfa þessu frekar í sambandi við þetta mál.

Ég vil enn fremur spyrja hæstv. fjmrh. að því vegna þeirra upplýsinga hans, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, hafi verið borið undir samtök ýmissa aðila, eins og t.d. iðnrekenda og kaupmanna, hvert væri heildarálit þessara samtaka á því frv., sem hér liggur fyrir, t.d. hvort það er yfirleitt álit kaupmanna og iðnrekenda, að það sé heppilegt skattafyrirkomulag, sem ætlunin er að taka upp með hinum nýja almenna söluskatti, og hvort þessi samtök hafi ekki bent á einhverjar aðrar leiðir, sem þau teldu heppilegri til þess að ná þeirri tekjuöflun, sem hér er stefnt að. Ég teldi mjög æskilegt, að hæstv. fjmrh. gæfi upplýsingar um þetta.

Hv. 3. þm. Austf. (EinS) flutti hér áðan að ýmsu leyti athyglisverða og skemmtilega ræðu, og mér fannst það sérstaklega koma fram hjá honum, að hann væri hygginn maður að því leyti, að hann leiddi það hjá sér að ræða það mál, sem hér liggur fyrir, eða ræða um efnahagsráðstafanir ríkisstj. yfirleitt, heldur talaði um flesta hluti aðra, og það gefur að sjálfsögðu auga leið um það, hver afstaða hans muni vera í raun og veru eða hvað hann telur þessar ráðstafanir vera hyggilegar, því að ef hann teldi það, þá mundi hann vafalaust hafa eytt meira af máli sínu til þess að tala um þær heldur en tala um ýmsa óviðkomandi hluti. Ég sé ekki ástæðu til þess að minnast á þau atriði hjá honum, sem snertu ekki máliðsjálft, en vildi aðeins minnast á tvö atriði og annað þeirra vegna þess, að mér finnst það lýsa miklum misskilningi og undarlegum hjá manni, sem þekkir jafnvel til atvinnuvega og atvinnurekstrar og hann áreiðanlega gerir.

Hann var að tala um það í sinni ræðu, að þjóðin hefði á undanförnum árum lifað um efni fram, og byggði það m.a. á því, að það hefði verið tekið talsvert mikið af lánum erlendis á undanförnum árum. En nú má segja það nokkurn veginn undantekningarlaust um öll þessi lán, að þau hafa farið til ákveðinna atvinnuframkvæmda í landinu, sem flestar standa undir sér og meira en það, þ.e.a.s. þær ýmist afla gjaldeyris eða spara gjaldeyri, sem nemur miklu meiri upphæðum en sem svarar vöxtum og afborgunum af þessum lánum. Ég held, ef við gerum samanburð í þessum efnum, að hv. þm. gæti ekki orðað það þannig, að þegar hann hefur verið að byggja upp sín atvinnufyrirtæki og fengið lán til þess að koma þeim upp, þá hafi hann sjálfur lifað persónulega um efni fram, þó að hann hafi stofnað til skulda vegna þessara atvinnufyrirtækja sinna. Ég hygg þvert á móti, að í staðinn fyrir það að lifa um efni fram, þá hafi hann með þessum skuldum, sem síðar meir hafi svo lagt grundvöllinn að því, að hann er nú talinn ríkasti maður landsins, verið að styrkja og bæta sinn efnahag, en ekki verið með sérstakan eyðslulifnað og lifað um efni fram. Og það er nákvæmlega það sama, sem gerzt hefur með þessum lánum, sem þjóðin hefur tekið erlendis á undanförnum árum. Hún hefur verið að byggja upp margvíslegar atvinnuframkvæmdir og atvinnustarfsemi, sem gera það að verkum, að hún getur haft miklu betri afkomu á næstu árum en ella. Þess vegna er algerlega rangt að tala um það í þessu sambandi, að hér hafi þjóðin verið að lifa um efni fram eða eyða einhverju í óhag. Þvert á móti hefur hún verið að byggja upp atvinnulíf sitt og lagt með því grundvöllinn að því, að hún getur haft betri afkomu í framtíðinni og jafnframt lagt grundvöll að því, að það er síður en svo þörf fyrir þær ráðstafanir, sem nú er verið að gera.

Þá var þessi hv. þm. að tala um það, að Eysteinn Jónsson hafi verið mikill skattakóngur og lagt á skatta öðrum mönnum meir o.s.frv. Ég held, að hv. þm. fylgist ekki nægilega mikið með því, sem nú er að gerast, ef hann vill halda því fram, að Eysteinn Jónsson eigi eitthvert met í skattaálögum hér á landi. Ég vil aðeins nefna nokkrar tölur í þessu sambandi. Í seinasta fjárlagafrv., sem Eysteinn Jónsson lagði fram hér á Alþingi, haustíð 1958, fjárlagafrv. fyrir 1959, eru allar rekstrartekjur ríkisins áætlaðar um 900 millj. kr. Nú í því frv., sem var lagt fram af Guðmundi Í. Guðmundssyni sem fjmrh. á s.l. hausti fyrir árið 1960, eru rekstrartekjurnar komnar upp í 1000 millj. kr. Þar með er gert ráð fyrir hækkandi álögum um 100 millj. kr. á einu ári. En einn kemur öðrum meiri, og það urðu fjmrh. skipti hér nokkru fyrir áramótin, og hinn nýi fjmrh. lagði svo fram nýtt fjárlagafrv. nú eftir áramótin. Í því frv. eru álögurnar ekki áætlaðar 1000 millj., eins og hjá Guðmundi Í. Guðmundssyni, heldur eru þær áætlaðar 1464 millj. kr. eða hafa í meðförum þessa manns á tveimur mánuðum hækkað um hvorki meira né minna en 464 millj. króna. Þessar nýju álögur, sem hér eru lagðar á og eiga að leggjast á nú á þessu ári, eru þær langsamlega mestu álögur eða hækkun á álögum, sem nokkru sinni hefur átt sér stað í íslenzkri sögu, og það er algert met. Hæstv. fjmrh. er með þeim fjárlögum, sem nú eru til meðferðar á Alþingi, að setja algert met í þessum efnum, langsamlega meira met en nokkru sinni hefur áður verið sett hér. Þetta er langsamlega stærsta stökk í álögum ríkisins, sem nokkru sinni hefur átt sér hér stað. Og það skrýtna er með þennan hv. þm., hv. 3. þm. Austf., sem þykist vera mjög mikið á móti opinberum álögum og sköttum, að hann virðist vera þessu mjög fylgjandi og telja þetta í alla staði hið ágætasta ástand, að hækka álögurnar, hinar opinberu álögur, á einu ári um hvorki meira né minna en 400–500 millj. kr. ofan á aðrar álögur, sem eru lagðar á landsmenn eða felast í gengislækkuninni, vaxtahækkun og öðru slíku.

Ég held, að þegar hv. þm. fer að athuga það, sem er að gerast nú í landinu og hann er að hjálpa til að gera, þá ætti hann að minnast á eitthvað annað en það, að það hefðu verið lagðir á háir skattar á undanförnum árum, vegna þess að hann er hér að hjálpa til þess, að þetta verði svo stórkostlega aukið frá því, sem áður var, að það, sem þekktist t.d. í tíð vinstri stjórnarinnar, er að verða að smáræði í samanburði við þær álögur, sem núv. ríkisstjórn er að leggja á.

Þá var það ákaflega mikill misskilningur hjá hv. þm., þegar hann var að tala um það, að með þeim ráðstöfunum, sem nú væri verið að gera, hinum svokölluðu efnahagsráðstöfunum hæstv. ríkisstj., væri verið að draga úr höftum og auka frjálsræði í landinu og skapa mönnum betri aðstöðu til þess að njóta framtaksins. Þetta er hinn herfilegasti misskilningur. Svo að segja allar þessar ráðstafanir, sem ríkisstj. er að gera, miða að því og eru miðaðar að því að skerða framtak og sjálfsbjargarmöguleika allra hinna minni máttar einstaklinga í landinu. Gengislækkunin, sem gerir allar framkvæmdir dýrari, skerðir að sjálfsögðu framtaksmöguleika þeirra einstaklinga, sem hafa ekki þeim mun sterkari efnahagslega aðstöðu. Vaxtahækkunin gerir nákvæmlega hið sama. Þær skattaálögur, sem felast í því frv., sem hér liggur fyrir, stefna að nákvæmlega sama marki. Þannig er undantekningarlaust með öllum þessum ráðstöfunum, svokölluðum efnahagsráðstöfunum, sem hæstv. ríkisstj. er að gera, stefnt að því að draga úr einkaframtakinu, lama það og skerða, nema kannske örfárra einstaklinga, sem eru svo vel efnum búnir, að þeir þola þetta. Þess vegna er einkennilegt, að maður, sem er jafngreindur og hv. 3. þm. Austf., skuli láta sér fara það um munn, að með þessum ráðstöfunum sé verið að greiða fyrir einkaframtakinu í landinu. Þvert á móti er verið að skerða það og lama á allan hátt, nema kannske örfárra hinna allra fjárhagslega sterkustu einstaklinga.

Ég held, að það sé ekki úr vegi í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, og þær svokölluðu efnahagsráðstafanir, sem ríkisstj. er að gera, að rifja upp frétt, sem maður heyrði nýlega í morgunútvarpinu og var um, að það hefði verið auglýst hernaðarástand í einu landi Suður-Ameríku, Argentínu. Saga þessa máls er sú, að fyrir einu–tveimur árum fóru þar fram forsetakosningar. Sá maður, sem var kosinn, gaf þjóðinni alls konar fögur loforð um framfarir og endurbætur á hennar lífskjörum og vann kosningarnar út á þessi loforð. Eftir að hins vegar var búið að kjósa hann sem forseta, var alveg snúið við blaðinu, og það var leitað til bandarískra hagfræðinga og óskað þeirra tillagna, m.a. hjá hinum svokallaða Alþjóðabanka, um þær ráðstafanir, sem ætti að gera í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það var farið eftir þessum ráðleggingum, sem hinir bandarísku sérfræðingar gáfu, og að sjálfsögðu gáfu þeir eins og sérfræðingar Alþjóðabankans yfirleitt fyrirmæli um það eða ráðleggingar um að taka upp samdráttarstefnu í margs konar myndum. Afleiðingarnar hafa orðið þær, að það hefur þrengt mjög að kjörum manna í þessu landi síðan og dregið þar úr framkvæmdum, og forsetinn, sem var mjög vinsæll fyrir tveimur árum, þegar hann var kosinn, er nú orðinn mjög óvinsæll. Það standa þar fyrir dyrum kosningar til efri deildar þingsins, og nú er forsetinn og hans fylgismenn orðnir svo hræddir við úrslit þessara kosninga, að þeir búa til sögur um, að það séu einhverjir vondir menn að undirbúa uppreisn í landinu. Og til þess að koma í veg fyrir það og í raun og veru til þess að koma í veg fyrir kosningarnar, þá er nú lýst yfir hernaðarástandi í þessu landi.

Þetta er aðeins lítið dæmi um það, sem er að gerast í ýmsum þeim löndum, sem nú fara eftir ráðleggingum hinna bandarísku kreppuhagfræðinga, og hefur gerzt miklu víðar en í Argentínu, enda ef maður flettir upp og les greinar um alþjóðleg mál í vestrænum blöðum, þá sést þar, að það gægist fram verulegur ótti um, að hin lýðræðislegu ríki, lýðræðislöndin, kunni að verða undir í hinni efnahagslegu samkeppni við kommúnistaríkin. Það er ekki svo mjög óttazt um það nú eins og áður var, að þessi lönd verði undir í hinni hernaðarlegu samkeppni, heldur miklu frekar í hinni efnahagslegu samkeppni. Þetta ætti þó að vera mjög undarlegt, vegna þess að lýðræðisríkin búa yfirleitt við miklu öflugra og betra framleiðslukerfi en kommúnistaríkin. En þrátt fyrir það er það nú yfirleitt upp á teningnum, að framleiðsluaukningin er tiltölulega meiri í kommúnistaríkjunum en í hinum ríkjunum, og það sem er kannske ekki siður um vert, að framleiðsluaukningin í kommúnistaríkjunum beinist meira að þeim verkefnum, sem telja verður nauðsynleg og þurfa að ganga fyrir, heldur en í lýðræðisríkjunum.

Hvað er það, sem veldur því, að þrátt fyrir það, þó að lýðræðisríkin eigi að hafa betri aðstöðu í þessum efnum, vegna þess að þau búa við sterkara og öflugra framleiðslukerfi, hvað er það, sem veldur því, að þróunin virðist nú ganga þeim svo mjög í óhag? Svarið við þeirri spurningu er ákaflega einfalt. Það er vegna þess, að í aðalríkjum hins lýðræðislega heims er nú fylgt fjármálastefnu kreppuhagfræðinganna. Í Bandaríkjunum — og raunar í Bretlandi líka, þó að það sé ekki í eins ríkum mæli, er fylgt fjármálakerfi kreppuhagfræðinganna, samdráttarstefnunni, og þetta verður til þess, að framleiðslugeta þessara landa notast miklu verr en skyldi, og verður líka til þess, að framleiðsluaukningin í þessum löndum beinist að ýmsu leyti að verkefnum, sem bæta ekki aðstöðuna í samkeppninni við kommúnistaríkin.

Ég held, að ef ætti að dæma nú um það, hverjir það væru, sem væru í raun og veru beztu liðsmenn og bandamenn kommúnistanna og kannske vinna meira að því en kommúnistarnir sjálfir að skapa stefnu þeirra betri aðstöðu í samkeppni við lýðræðisríkin, þá væru það kreppuhagfræðingarnir, sem nú stjórna fjármálum flestra hinna vestrænu þjóða. Og það má telja nokkurn veginn víst, að þessi þróun heldur áfram að verða lýðræðisríkjunum í óhag, nema því aðeins að þau beri gæfu til þess að taka upp aðra stefnu en nú er fylgt í þeirra fjárhagsmálum, taki upp stefnu, sem meira beinist að því að hafa sem mest not af því framleiðslukerfi og þeim framleiðslutækjum, sem þau hafa, og beina þeim að þeim verkefnum, sem eru nauðsynlegust, þó að það séu ekki alltaf þau verkefni, sem séu gróðavænlegust. Það, sem þessi lönd þurfa að stefna að tvímælalaust, er að taka upp í vaxandi mæli meiri áætlunarbúskap, meiri skipulagningu, sem feist í því að nýta þeirra framleiðslumöguleika sem mest og beina þeim að þeirri framleiðslu, sem mestu máli skiptir. En innan þess ramma á að sjálfsögðu að skapa einkaframtakinu sem bezta aðstöðu til að njóta sín, og þar er það, sem meginmunurinn á að koma fram í kerfi vestrænu ríkjanna og kommúnismans. Með því að beina einkaframtakinu þannig að réttum viðfangsefnum og láta það þá hafa hæfilegt svigrúm til að njóta sín þar og þrengja ekki of mikið að því með þungum sköttum eða verðlagshömlum, næst áreiðanlega langsamlega mestur árangur í þessum efnum. En meðan lýðræðisríkin fylgja samdráttarstefnunni í jafnríkum mæli og nú er gert, má búast við, að sú hættulega þróun haldist áfram, að kommúnistaríkin sæki á í samkeppninni við þau frekar en hið gagnstæða. Og það, sem ég tel að sé ekki sízt hættulegt í sambandi við þær efnahagsráðstafanir, sem nú á að fara að framkvæma hér á Íslandi, er, að það er verið að taka upp þessa samdráttarstefnu, sem hefur gefizt svo illa úti í heiminum hjá öðrum lýðræðisþjóðum, sem henni hafa fylgt, og hefur t.d. þær afleiðingar í för með sér, að nú eru í Bandaríkjunum um 4 milljónir atvinnuleysingja, að framleiðslugeta Bandaríkjanna er mjög illa hagnýtt á mörgum sviðum og henni ekki heldur alltaf beitt að réttum viðfangsefnum.

Það má líka benda á það í þessu sambandi, að það eru fjölmargir hinna framsýnni kapítalista, sem sjá, að þessi stefna er röng, að samdráttarstefnan er röng. T.d. hefur sérstök stofnun, sem vinnur að því að afla upplýsinga um efnahagsmál almennt og er rekin af tveimur Rockefeller-bræðrum, birt álit um þetta, þar sem því er haldið fram, að framleiðsluaukningin í Bandaríkjunum sé helmingi minni en hún gæti verið og þyrfti að vera, til þess að þau héldu sínum hlut í samkeppninni við kommúnistaríkin. Og í þessu áliti er bent á ýmsar leiðir til að ná þessu marki, sumar, sem eru allróttækar og jafnvel íhaldssamari kapítalistar í Bandaríkjunum telja að nálgist hálfgerðan kommúnisma. En hér er hins vegar um framsýna kapítalista að ræða, þá Rockefeller-bræður og þeirra hagfræðinga, sem loka ekki augunum fyrir því, sem er að gerast í heiminum, loka ekki augunum fyrir því, sem er rangt í þeirra skipulagi, loka ekki augunum fyrir þeirri hættu, sem felst í samdráttarstefnunni, og vilja þess vegna knýja fram breytingar til bóta.

Það, sem ég tel alveg sérstaklega skaðlegt og jafnvel enn verra en sjálfa kjaraskerðinguna við þær svokölluðu efnahagsráðstafanir, sem ríkisstj. er að gera, er einmitt þetta, að það er stuðlað að stórfelldum samdrætti á mörgum sviðum atvinnulífsins og það er verið að brjóta á bak aftur framtak fjöldamargra efnaminni einstaklinga, sem mundu hafa ráðizt í ýmsar framkvæmdir og vildu ráðast í ýmsar framkvæmdir, en geta það ekki, eftir að þær ráðstafanir, sem ríkisstj. hefur undirbúið, koma til framkvæmda.

Hv. 3. þm. Austf. talaði um það í sinni ræðu, að takmarkið væri að koma á frelsi með þessum ráðstöfunum, sem ríkisstj. hefði undirbúið, og það má að því leyti til sanns vegar færa, að þegar með þessum ráðstöfunum er búið að brjóta niður framtak og sjálfsbjargarviðleitni hinna mörgu einstaklinga í landinu, þá verður meira olnbogarúm og frelsi fyrir hina fáu útvöldu einstaklinga, þessa einstaklinga, sem telja sig sérstaklega hæfa til þess að hafa svo að segja öll mannaforráð í landinu, og þá verði komið á það frelsisástand, sem þessir menn stefna að. Manni skilst, að aðalsjónarmiðið eigi þá að vera það, að það eigi fyrst og fremst að snúa sér að þeim atvinnugreinum og efla þær atvinnugreinar, sem eru gróðavænlegastar í það og það skiptíð, enda mundi þá að sjálfsögðu fyrst og fremst vera stefnt að því. En við höfum reynslu af því, hvernig þetta frelsi gefst, þegar komið er á þetta stig. Þetta kerfi var reynt til fulls í Bandaríkjunum fyrir 30–40 árum. Þá ríkti þar slíkt frelsi, að hinir stóru og fjárhagslega sterku einstaklingar gátu farið að eins og þá lysti og fyrst og fremst stundað þær atvinnugreinar, sem voru gróðavænlegastar, en látíð hinar eiga sig. Hver var niðurstaðan? Niðurstaðan var sú, að þegar vissar atvinnugreinar voru lengi búnar að vera vanræktar og búið var að offylla markaðinn af framleiðslu þeirra vara, sem hafði verið gróðavænlegast að framleiða á vissu tímabili, þá hófst þar kreppan, heimskreppan mikla. Hana leiddi af þessu ástandi, sem fólst í því, að þær atvinnugreinar voru algerlega vanræktar, sem ekki voru gróðavænlegar í það og það skiptið, en fyrst og fremst snúið sér að framleiðslu þeirra atvinnugreina, sem voru gróðavænlegastar í svipinn. Svo þegar ofþenslan kom til sögunnar á sviði þeirra, dróst hún saman. Þetta var orsökin að hinni mestu heimskreppu, efnahagslegu kreppu, sem yfir heiminn hefur gengið.

En lærdómarnir af þessu eru nú yfirleitt þeir, að menn óska ekki eftir því, að þetta ástand verði tekið upp aftur. Meira að segja Bandaríkin gera margháttaðar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir, að þetta fyrirkomulag komi þar upp aftur, vegna þeirrar reynslu, sem þau fengu af því. Þar í landi eru styrktar ýmsar atvinnugreinar, sem þykja ekki sérstaklega gróðavænlegar, til að koma í veg fyrir, að þær dragist óhæfilega saman og það valdi svo samdrætti á öðrum sviðum. Hér á nú hins vegar að taka upp þá stefnu samkv. kenningu ríkisstj., að það eigi bara að stunda þá atvinnuvegi og þær atvinnugreinar, sem séu gróðavænlegar í það og það skiptið, en hitt eigi að mæta afgangi. Í samræmi við þetta er stefnt að því að leggja niður bátaútgerðina, bæði vestan-, austan- og norðanlands, vegna þess að sjávarútvegurinn þar eða bátaútgerðin þar er svipt uppbótum, sem hún hafði áður og námu meira en gengislækkuninni. Þetta verður til þess, að þarna dregst atvinnan saman.

Aðrar þjóðir fara öðruvísi að en við í þessum efnum. Það má t.d. minna á það í þessu sambandi, að Norðmenn leggja fram úr ríkissjóði mikið fé til þess að styrkja útgerðina á ýmsum afskekktari stöðum, þar sem um sérstakar fisktegundir er að ræða, sem þurfa á slíkum styrk að halda. Ég sá það nýlega í norskum blöðum, að t.d. uppbætur til sjávarútvegsins í Norður-Noregi verða auknar á þessu ári um 19 millj. kr. Bretar styrkja sinn sjávarútveg í stórum stíl. Ég held, að það sé rétt hjá mér, að á þessu ári muni Bretar veita í uppbætur til sjávarútvegsins um 19 millj. sterlingspunda.

Það, sem þarf að gera í þessum efnum, er, að þegar einni atvinnugrein kann að vegna miður, en nauðsynlegt er samt að halda henni við, þá þarf að færa til hennar frá þeim atvinnugreinum, sem eru gróðavænlegar í það og það skiptíð, og skapa þannig jöfnuð milli atvinnuveganna og atvinnugreinanna í landinu. En þetta verður að sjálfsögðu ekki gert með því fyrirkomulagi, sem nú á að taka upp, að skipta sér eingöngu af þeim atvinnugreinum, sem eru gróðavænlegar í svipinn, en láta svo allt annað mæta afgangi. Við höfum líka reynslu af því í ýmissi okkar atvinnuuppbyggingu, hvernig það hefur gefizt að haga sér á þennan hátt. Þegar t.d.. síld hefur veiðzt á vissum stöðum hér á landi og gefið sæmilegan arð að stunda síldveiðar þar, þá hefur verið rokið í það að byggja upp síldarverksmiðjur í stórum stíl, sem svo hafa reynzt algerlega arðlausar, vegna þess að síldin hefur ekki komið til þessara staða aftur. Gleggsta dæmið um þetta er báknið mikla, sem er úti í Örfirisey, Faxaverksmiðjan svokallaða. Það var rokið í að byggja hana með ærnum kostnaði og hún látin hafa forgangsrétt að erlendu lánsfé, vegna þess að síld kom einu sinni í Hvalfjörð. Svo hefur síldin ekki komið aftur og verksmiðjan hefur ekki enn þá komið að neinu gagni, en búið að setja í hana tugi og jafnvel hundruð millj. kr., miðað við núverandi skráningu krónunnar. Þetta sýnir, hvernig sú atvinnuuppbygging er, sem miðast eingöngu við það, eins og vakir fyrir núverandi ríkisstj., að stunda eingöngu þær atvinnugreinar, sem eru gróðavænlegar í svipinn, en láta annað mæta afgangi.

Það, sem þarf að koma í staðinn fyrir þessa stefnu, er að halda hæfilegu jafnvægi á milli atvinnugreinanna og jafna á milli þeirra, þannig að ef ein stendur höllum fæti, þá fái hún styrk frá hinum, sem betur standa. Vel getur þetta svo orðið öfugt eftir lítinn tíma, að þær atvinnugreinar, sem stóðu höllum fæti fyrir nokkru, verði orðnar veitandi og geti hjálpað þeim, sem áður höfðu betri útkomu. En þetta verður að sjálfsögðu ekki gert með því svokallaða frjálsa fyrirkomulagi, sem hér á nú að taka upp, heldur verður þetta ekki gert nema með því, að við hverfum meira, eins og ég minntist á áðan, að áætlunarbúskap til þess að jafna á milli atvinnugreinanna og beina framtaki bæði félaga og einstaklinga að þeim verkefnum, sem mestu skipta, en gefa þá hins vegar framtaki manna aðstöðu til þess að njóta sin innan þess ramma.

Fjöldamargt annað mætti nefna, þó að ég geri það ekki frekar að þessu sinni, til að sýna fram á, að það, sem þarf að hverfa að í vaxandi mæli í stað þess fyrirkomulags, sem hér er tekið upp, er að koma á meiri áætlunarbúskap til þess að tryggja sem bezta nýtingu framleiðslutækjanna og til þess að beina framtaki fyrirtækja og einstaklinga að þeim verkefnum, sem mestu skipta á hverjum tíma, og leyfa þeim þá að njóta sín sem bezt innan þess ramma, en ekki að láta þetta verða algerlega óheft og skipulagslaust, með afleiðingum, sem geta oft og tíðum orðið svipaðar og þær, sem leiddu til heimskreppunnar miklu og eru nú að leiða til þess, eins og ég hef rakið hér á undan, að lýðræðisríkin standa höllum fæti í hinni efnahagslegu samkeppni við kommúnistaríkin, af þeim ástæðum, að þau fylgja nú samdráttarstefnu og nýta ekki sína framleiðslumöguleika eins vel og skyldi. En það vil ég taka fram alveg sérstaklega, að á sama tíma sem ég álít nauðsynlegt að koma upp meiri áætlunarbúskap, þá á að gefa einstaklingum og félögum og líka ríkisfyrirtækjum sem bezta aðstöðu til að njóta sin innan þess ramma, sem áætlunarbúskapurinn setur, og í samræmi við það tel ég það rétt, sem ég minntist á hér í upphafi, að veltuútsvarið verði að mestu eða öllu afnumið og a.m.k. komið í það form, að það hafi ekki í för með sér hreint eignarán, eins og nú á sér oft stað.

Ég ætla, áður en ég lýk máll mínu, að víkja nokkrum orðum að því, sem oft hefur verið haldið fram af stjórnarflokkunum og þeir nota nú helzt til réttlætingar þessum svokölluðu efnahagsráðstöfunum sínum, að það hafi verið nauðsynlegt og óhjákvæmilegt að gera þetta. Ég hef sýnt það áður, með því; sem ég sagði í svari mínu til hv. 3. þm. Austf., að það var óþarft að gera þessar ráðstafanir vegna erlendu skuldanna, vegna þess að þær standa undir sér sjálfar og miklu meira en það, með því að þær ýmist afla gjaldeyris eða spara gjaldeyri, sem nemur miklu meira en vöxtum og afborgunum af þessum lánum. Þá er það, sem er annað atriðið eða önnur röksemdin fyrir þessum efnahagsráðstöfunum, að þetta hafi verið nauðsynlegt að gera vegna atvinnuveganna, að afkoma ríkissjóðs og útflutningssjóðs hafi verið slík nú um áramótin, að það hafi verið nauðsynlegt að ráðast í þessar framkvæmdir, þessa miklu röskun, sem hér er stefnt að. En það vill nú svo vel til, að það liggur fyrir vitnisburður hæstv. fjmrh. um, að það hafi engin nauðsyn verið til þess að ráðast í jafnvíðtækar ráðstafanir og þær efnahagsráðstafanir, sem ríkisstj. er nú að framkvæma.

4. des. s.l. var verið að ræða hér í Nd. um bráðabirgðafjárgreiðslur ríkisins á næsta ári, og þá var sú fyrirspurn lögð fyrir hæstv. fjmrh., hvað mikið mundi vanta í ríkissjóð og útflutningssjóð, til þess að þessir sjóðir mundu geta staðið undir eðlilegum greiðslum á næsta ári, og svar hæstv. fjmrh. var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég hef svarað því áður, að eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, sem því miður eru ekki nákvæmar enn, mun að óbreyttu skipulagi vanta milli 200 og 300 millj, kr. handa ríkissjóði og útflutningssjóði á næsta árl.“

M.ö.o.: samkv. þessum upplýsingum fjmrh. 4. des. s.l. vantaði á milli 200 og 300 millj. kr. í ríkissjóð og útflutningssjóð, til þess að þessir sjóðir gætu staðið undir eðlilegum greiðslum á næsta árl. Þetta þýddi það, ef maður tekur þessar upplýsingar góðar og gildar, að það hefði þurft að afla nýrra tekna handa ríkissjóði og útflutningssjóði sem svaraði þessari upphæð, og ef það hefði verið gert, þá hefði ekki verið nauðsynlegt að gera frekari ráðstafanir eða frekari tekjuöflun, til þess að atvinnuvegirnir gætu haldið áfram rekstri sínum með sama hætti og verið hefði.

En hvað er það, sem hæstv. ríkisstj. hefur gert? Hefur hún bara aflað þeirrar upphæðar, sem hæstv. fjmrh. taldi nauðsynlega vegna útflutningssjóðs og ríkissjóðs fyrir 3 mánuðum? Nei, ríkisstj. hefur gert allt annað og miklu meira en þetta. Í stað þess að afla þessara 200–300 millj. kr., sem var nauðsynlegt að afla, ef gamla kerfinu var haldið áfram, samkv. upplýsingum fjmrh., þá hefur hún ráðizt í að leggja á álögur, sem er hægt að færa skýr rök að að nema allt að 1100 millj. kr. á ári eða fjórfaldri þessari upphæð. Hér er því margfalt lengra gengið en nokkur nauðsyn er á. Og það skiptir engu máli í þessu sambandi, hvort menn kalla þetta heldur álögur, eins og venjulegt er, eða hvort menn vilja kalla þetta tilfærslur og það sé verið að færa þetta úr einum vasa í annan. Hvort orðið sem er heldur notað, þá má fullyrða það, að hér er lengra gengið í álögum eða tilfærslum en nokkru hófi gegnir, og þessu hlýtur að fylgja svo stórkostleg röskun í okkar efnahagsmálum og á tekjuskiptingunni innbyrðis milli landsmanna, að það er engin von til þess, að þetta fái staðizt. Alveg elns og sá ræðumaður sýndi fram á, sem talaði hér á undan mér, hlýtur þetta fyrr en seinna að enda með því, að það springur.

Hæstv. núv. dómsmrh. hefur fyrir nokkru skrifað grein í danskt blað um þessar svokölluðu efnahagsráðstafanir ríkisstj. Hann segir svo í niðurlagsorðum greinarinnar, að það muni skapast mikið hættuástand á Íslandi, ef þessar ráðstafanir misheppnist. Og það er vitanlega hverju orði sannara. En það mun líka skapast mikið hættuástand og enn þá verra ástand á Íslandi á mörgum sviðum, ef hæstv. ríkisstj. heppnast að ná fram þeim tilgangi, sem raunverulega er stefnt að með þessum ráðstöfunum, þ.e. að koma á nýju efnahagskerfi, sem miðar að því að skapa frjálsræði og olnbogarúm fyrir aðeins örfáa útvalda einstaklinga, á kostnað allra annarra landsmanna. Það er að sjálfsögðu það langsamlega versta, sem gæti leitt af þessum aðgerðum. En hitt er líka alveg rétt, að það getur skapazt við það mikil hætta, ef þessar ráðstafanir verða brotnar niður með miklum átökum og verkföllum, sem annars er hætt við að komi til sögunnar. Þess vegna er áreiðanlegt, að það eina rétta, sem hæstv. ríkisstj. gæti nú gert, er að reyna að taka sönsum, að íhuga sitt ráð að nýju og hverfa frá því að framkvæma þær fyrirætlanir, sem felast í þessum svokölluðu efnahagsráðstöfunum hennar. Ríkisstj. hefur enn þá tækifæri til að breyta hér um stefnu. Hún hefur enn þá tækifæri til að bæta úr þeim vandræðum, sem munu fylgja ráðstöfunum hennar, ef hún framkvæmir þær. Hún hefur enn þá möguleika til að draga úr ýmsum þeim álögum, sem hún ætlar að leggja á. Hún hefur tækifæri til þess að létta af vaxtaokinu. Og hún hefur tækifæri til að gera ýmsar fleiri ráðstafanir til endurbóta á þeim fyrirætlunum, sem hún hefur haft á prjónunum, þó að hún sé þegar búin að framkvæma nokkuð af þeim. Þetta er áreiðanlega eina leiðin og eini möguleikinn til að forða vandræðum og vaxandi erfiðleikum í þjóðfélaginu. Þess vegna á hæstv. ríkisstj. að taka sönsum, meðan tækifæri er til, en stefna þjóðfélaginu ekki út í það óefni, sem hlýtur að leiða af því, ef hún ætlar að framfylgja þessum fyrirætlunum sínum.