27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í D-deild Alþingistíðinda. (2903)

35. mál, Siglufjarðarvegur ytri

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal nú reyna að lengja ekki þessar umr. mikið, en tel þó nauðsynlegt að koma hér að nokkrum athugasemdum varðandi þá hugsun, sem liggur að baki till. fjvn. um afgreiðslu þessa máls.

Mig satt að segja furðar nokkuð á því, að þeir hv. alþm. Norðurl. v., sem hér hafa talað um málið, skuli hafa tekið till. fjvn. á þann veg, sem þeir hafa gert, að með henni væri verið — að því er manni skilst — að setja fótinn fyrir framgang þessa máls og drepa því á dreif í stað þess að taka undir með tillögumönnum og samþ. till., eins og hún lá fyrir, óbreytta. Þessar ræður byggjast að mjög verulegu leyti á misskilningi á eðli málsins. Það er einróma skoðun fjvn., og byggist hún m.a. á atriðum, sem vitanlega eru kunn áður og n. hefur ekki þótt neitt undarlegt að vitna til, þó að það væru ekki ný sannindi, hversu mikla þýðingu þessar vegaframkvæmdir hefðu fyrir Siglufjörð, að það sé mjög mikilvægt, að ríkisstj. hafi forgöngu um að ýta þessum framkvæmdum áleiðis. Það er hins vegar skoðun fjvn., að það sé mjög vafasamt, að það hafi meiri þýðingu fyrir framgang þessa máls að samþ. till., sem felur í sér það orðalag eitt, eins og hér hefur verið lýst, að athuga möguleika á öflun lánsfjár. Slíkar heimildir eru til í lögum um lántökur til vegargerðar og hafa aldrei verið notaðar, og það er eins og vegamálastjóri réttilega bendir á, að það hafi út af fyrir sig litla þýðingu fyrir framgang þessa máls, það, sem á velti, sé, að fengin sé ákveðin niðurstaða um það, hvernig skuli vinna að framgangi málsins á sem stytztum tíma. Þetta er einmitt sú hugsun, sem er að baki brtt. fjvn.

Till. hefur verið misskilin af þessum hv. þm. á þann veg, að með henni sé í rauninni ekki verið að gera annað en leggja til. að gert verði það, sem vegamálastjóri sé raunverulega búinn að gera. Hér er einnig um misskilning að ræða. Vegamálastjóri hefur að vísu látið í ljós sínar hugmyndir um framkvæmd verksins. En einmitt það, að fjvn. leggur til, eftir að þær upplýsingar liggja fyrir, að gerð verði ný framkvæmdaáætlun um verkið, bendir ótvírætt í þá átt, að n. telji ekki ástæðu til að leggja þessa áætlun vegamálastjóra til grundvallar við framkvæmd verksins, heldur kanna, að það verði einmitt leiðin til þess að ljúka verkinu á skemmri tíma.

Það kann að virðast einkennilegt í fljótu bragði, að fjvn. skuli ekki vera fús til að samþ. orðalag á þessum till., að athuga möguleika um öflun lánsfjár til þessara framkvæmda. En þegar betur er að gáð, held ég, að menn átti sig á, að það er á engan hátt óeðlileg afstaða. Fyrir Alþ. liggur nú frv. um lántöku til vegagerða á Austurlandi og Vestfjörðum, og ég býst við, að flm. þess frv. telji, að þar sé um mjög brýnt nauðsynjamál að ræða. Enn fremur liggur fyrir þinginu nú till. um lántöku vegna Hvalfjarðarvegar. Það er því augljóst mál, að það verður að taka einhverja heildarafstöðu í því efni, hvort út á þá braut skuli farið, að ríkið sjálft taki lán til vegagerðar. Eins og menn vita, hefur það hingað til verið svo, að það hefur að vísu verið um lántökur að ræða í einstaka vegi, þó að í litlum stíl hafi verið, en á þann hátt eingöngu, að viðkomandi sveitarfélög hafa staðið straum af þeim lánum og þau verið veitt án nokkurra skuldbindinga frá ríkinu um það, hvenær þau yrðu endurgreidd. það færi eftir fjárveitingum hverju sinni.

Við í fjvn. höfum talið, að miðað við þær geysilegu fjárhæðir, sem hér er um að ræða. væru mjög litlar líkur til þess og raunar útilokað, að viðkomandi sveitarfélög gætu risið undir því að borga, eins og t.d. mundi verða varðandi Siglufjarðarveg, hátt á aðra millj. kr. á ári í vexti eina. Það væri a.m.k. óumflýjanlegt að taka það mál til rækilegri athugunar, áður en hægt væri að samþ. hér á Alþ. till., sem byggð væri á jafnóljósri og óraunhæfri niðurstöðu.

Því hefur verið haldið fram, að það mætti létta þessar byrðar með svokölluðum vegarskatti. Ég skal ekki út í þá sálma fara, en ég hygg þó, að skoðun vegamálastjóra um það efni sé næsta raun hæf og það sé a.m.k. næsta fráleitt að ímynda sér, að það mundi skila verulega hærri fjárhæðum en hann bendir á, og mundi þá sú fjáröflun hrökkva skammt til þess að standa straum af þessum vaxtaútgjöldum, því að hann reiknar með, að tekjur af slíkum skatti nettó yrðu ekki nema 200–300 þús. kr. á ári í mesta lagi.

Það er því rétt, að það komi skýrt fram, af því að ég álít, að annað sé málinu til tjóns, sem hv. þm. Norðurl. v. hafa verið að benda á, að með þessari till., sem hér liggur fyrir, er á engan hátt, nema síður sé, verið að draga úr aðgerðum í þessu máli. og ég álít, að till. þessi stefni að raunhæfari lausn þessa vandamáls en að samþ. það eitt út af fyrir sig að athuga þá lánsmöguleika, sem í upphaflegu till. fólust. Það er augljóst mál, að lántaka til þessara framkvæmda kemur ekki að haldi, nema lánið sé tekið í síðasta áfanga verksins, vegna þess að annars mun það beinlínis verða til þess að tefja aðra þætti þess, og því er nauðsynlegt, að það verði gaumgæfilega athugað, og það kemur þá að sjálfsögðu til athugunar við viðkomandi sveitarstjórnir, að hve miklu leyti þær eru reiðubúnar til þess að taka á sig kvaðir í sambandi við framkvæmd málsins. Ástæðan til þess, að fjvn. hefur ekki sérstaklega leitað álits þessara sveitarstjórna, sem hefði væntanlega ekki orðið til þess að greiða fyrir afgreiðslu málsins á þessu þingi, er sú, að það er einmitt hugsunin að baki þessarar till., að að framkvæmdaáætluninni verði unnið á þann veg að kanna að sjálfsögðu möguleika bæði varðandi aðild ríkissjóðs og aðild allra þessara sveitarfélaga að því að afla sem mests fjármagns á sem stytztum tíma, til þess að verkinu geti orðið lokið.

Þetta er kjarni málsins, og því sýnist mér, að séu að verulegu leyti a.m.k. og raunar að öllu leyti á misskilningi byggðar þær ræður, sem hv. þm. Norðurl. v. hafa hér flutt, þar sem þeir hafa viljað halda því fram, að með till. þessari væri fjvn. beinlínis að setja fótinn fyrir þetta mál.

Þá vil ég jafnframt taka það fram, að það hefur á engan hátt haft áhrif á afstöðu fjvn. til þessarar hugmyndar um lántöku til Strákavegar, þó að Múlavegi væri þar bætt við, og það hefur á engan hátt hindrað afstöðu eða gert afstöðu n. til málsins neikvæðari, nema síður sé. Það þótti ekki óeðlilegt, þar sem hér er um mjög hliðstæðar vegagerðir að ræða til tveggja kaupstaða, sem liggja nálægt hvor öðrum og búa við nákvæmlega sama vandamál og eru með nákvæmlega sömu erfiðleika í sambandi við dýrar vegaframkvæmdir, að þau mál væru tengd saman, og ég fæ ekki séð, að það gæti á neinn hátt orðið til þess að spilla máli Siglfirðinga, þó að vandamál Ólafsfirðinga sé athugað einnig í sambandi við hitt málið.

Því hefur verið hér haldið fram, að það megi undarlegt teljast, þar sem flm. till. um Múlaveg eigi aðild að fjvn. og ég sé m.a. formaður hennar, að ekki hefði komið fram jákvæðari niðurstaða um málið. Ástæðan til þess, að við fluttum brtt., var að sjálfsögðu sú, að við töldum eðlilegt, að málið fengi hliðstæða meðferð og málefni Strákavegar, og því tel ég ekki, að það sé á neinn hátt fráhvarf frá okkar skoðun varðandi heildarmálið, þó að okkar till. sé afgr. á þann veg, sem hér er gert, ásamt till. um Strákaveg, og ég vil nota tækifærið, herra forseti, til þess að taka fram, að till. um Múlaveg, brtt. á þskj. 208, er tekin aftur með hliðsjón af afgreiðslu fjvn. á heildarmálinu.

Varðandi þær hugleiðingar, sem hér hafa komið fram um afstöðu stjórnmálaflokka til þessa máls, skal ég ekki segja mörg orð. Ég veit ekki, hvort það yrði nokkuð sérstaklega til framdráttar flokki hv. 5. þm. Norðurl. v. (JK), þó að það yrði farið að rekja upphaf sögu baráttunnar um það að fá fjárveitingu til Strákavegar, og skal ég ekki út í þá sálma fara. En ég tel hins vegar rétt, af því að hann minntist hér á afstöðu í sambandi við afgreiðslu fjárlaga til Strákavegar og taldi, að þar hefði komið fjandskapur fram hjá stjórnarliðinu til þess máls, benda honum á það, að mér er ekki kunnugt um, þegar hans flokkur hafði forustu og fjármálastjórn hér í landi, að þá hafi hann tekið undir eða beitt sér fyrir neinum svipuðum till. um fjárveitingar og 800 þús. kr. fjárveitingartill., sem hann vék hér að áðan, og hefði það þó átt að vera auðið, eins lengi og sá flokkur hefur haft fjármálastjórnina. En það er nú eins og gengur, að það vilja stundum hækka till. um fjárveitingar, þegar menn eru í stjórnarandstöðu, og er mér ekki grunlaust um, að þessi upphæð sé komin til af þeirri ástæðu, en hefði verið allmiklu lægri, hefðu þessir hv. þm. átt að bera ábyrgð á afgreiðslu fjárlaga.

Ég get ekki heldur stillt mig um að taka það fram hér, af því að því var beinlínis yfir lýst, þegar fjvn. beitti sér fyrir því, að fjárveitingu til Siglufjarðarvegar yrði heimilað að leggja einnig til Strákavegar, sem var eðlilegt og sjálfsagt, þá var því lýst yfir af einum hv. þm. þessa kjördæmis, að hann teldi, að það væri fráleit afgreiðsla n., og andmælti því mjög og hans flokksbræður raunar í fjvn. einnig, að þessi breyting væri á gerð. Og sannleikurinn er sá, að fjárveiting af Siglufjarðarvegi var raunverulega flutt inn í Skagafjörð, og hefði það verið eðlilegt í alla staði, ef þm. kjördæmisins hefðu óskað eftir því, að það fé hefði verið flutt til baka til Strákavegar, eins og áður var, þannig að það byggðist ekki á neinni andstöðu fjvn, við það mál.

Ég vil svo aðeins að lokum segja það og veit, að ég tala þar fyrir munn fjvn. allrar, að það er einlæg ósk hennar, að þessum vegamálum geti orðið sem fyrst hrundið í framkvæmd, og það er skoðun okkar, að ef rétt verður að því farið og lagður sá grundvöllur og gerð sú áætlun um framkvæmdir, sem hér er stilað að og reynt að sameina alla aðila um fjáröflun til verksins, þá muni það verða líklegasta leiðin til þess að hrinda málinu sem fyrst í framkvæmd.