01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í D-deild Alþingistíðinda. (2908)

35. mál, Siglufjarðarvegur ytri

Forseti (SÁ):

Ég vil svara hv. 3. þm. Norðurl. v., að ég skal athuga þetta mál nánar. En það er síður en svo, að það hafi komið fram raddir frá einum eða öðrum um það, að þetta mál væri ekki tekið á dagskrá. (Gripið fram í: Hver er ástæðan?) Ástæðan er sú, að við höfum þegar 20 mál á dagskrá og það væri jafnvel möguleiki á því að taka önnur 20. Þetta er eitt af þeim málum, sem ekki var tekið á dagskrá í dag, og geta áreiðanlega margir aðrir hv. þm. kvartað yfir því sama og þeir 2 hv. þm. hafa komið hér með umkvörtun um.