27.04.1960
Sameinað þing: 43. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (2998)

117. mál, flugsamgöngur á Vestfjarðasvæðinu

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja þáltill. á þskj. 279 um að leysa flugsamgöngur innanhéraðs á Vestfjarðasvæðinu með þyrilvængju. Með því að hugmyndin, sem í till. felst, er nokkurt nýmæli, vil ég leyfa mér að fara um það nokkrum orðum.

Það er farið fram á það við ríkisstj., að hún láti fyrir næsta þing rannsaka, hvort það kunni að vera haganlegt og hagkvæmt að hafa þyrilvængju staðsetta á Vestfjörðum til að annast daglega fólksflutninga og póstflutninga um Vestfjarðasvæðið. Að minni ætlan mundi, ef að þessu ráði væri horfið, vera mjög bætt úr lélegum samgöngum Vestfirðinga, og væri á því full þörf. Sannast að segja hafa samgöngur Vestfirðinga nú á s.l. vetri verið í sérstökum ólestri. Það hefur ekki verið í förum nema annað af skipum skipaútgerðarinnar, sem bezta samgönguþjónustu hefur veitt Vestfirðingum að jafnaði, hitt skipið hefur lengstum verið í viðgerð. Allir vita, að samgöngur á landi á Vestfjörðum, einkum að vetrinum, eru mjög erfiðar. Þar eru heiða- og fjallvegir, sem loka leiðum nálega hálft árið, og flugið hefur hin síðari ár eiginlega verið bezta úrlausnin á samgöngumálum þessa landsfjórðungs að því er snertir farþega- og fólksflutninga.

En þessi þjónusta, sem Flugfélag Íslands hefur veitt, hefur verið framkvæmd með sjóflugvél, sem nú er komin svo til ára sinna, að Flugfélagið telur sig ekki geta haldið henni lengur úti, og er þá ætlun félagsins að hætta rekstri sjóflugvéla. Þegar menn horfðust í augu við þetta, var undinn að því nokkuð bráður bugur að hefja flugvallargerð við Ísafjörð, og er því verki enn þá ekki lokið, en vonir standa til, að því ljúki síðari hluta sumars. Þá mundi sem sé á ný opnast leiðin til þess, að Flugfélagið hefði beinar flugsamgöngur — væntanlega daglega eða nálega það — við Ísafjörð, en sú önnur þjónusta, sem Flugfélagið hefur veitt Vestfirðingum með sínum sjóflugvélum, mundi falla niður um óákveðið árabil, þangað til byggðir hefðu verið flugvellir sem viðast á Vestfjarðasvæðinu, en sjóflugvélarnar hafa komið oftast nær einu sinni í viku á staði eins og Patreksfjörð, Bíldudal, Þingeyri, Flateyri og Hólmavík. En það vitum við allir, að það verður ekki alveg á næstu árum, sem búið verður að byggja flugvelli á öllum þessum stöðum, og mundu þeir þá, þó að flugsambandið yrði gott við Ísafjarðarflugvöll, fá þarna um sinn miklu verri þjónustu en áður.

Núna standa Vestfirðingar þannig á tímamótum, og þá er eðlilegt, að menn fari að hugleiða: Hvernig er hægt að bæta úr þessu? Það er vitað, að þó að menn festu hugann við það úrræði að byggja flugvelli sem víðast á Vestfjörðum, þá kostar flugvöllur, þar sem stærri flugvélar líkt og sú, sem Flugfélagið mun nota til flugsins við Ísafjörð, milljónir og í mörgum tilfellum milljónatugi. Svo mikið er víst, að ef 5–6 flugvellir yrðu byggðir á Vestfjörðum af þeirri stærð, að þessi Vestfjarðaflugvél Flugfélagsins væntanlega gæti lent þar og hlotið afgreiðslu, þá yrðu það svo dýr mannvirki, að marga milljónatugi þyrfti til, auk þess sem viðhald þeirra og rekstur mundi kosta ærið fé.

En eru þá til nokkrar leiðir aðrar til þess að leysa þetta vandamál? Ég fékk þessa hugmynd, sem í tillögunni felst, á s.l. hausti, var í ferðalagi á meginlandi Evrópu, og átti þess þá kost að fljúga með þyrilvængju milli höfuðborgarinnar í Belgíu, Brüssel, og Kölnar í Þýzkalandi, og mun vera hátt í 200 km vegalengd á milli þeirra, eða nálega sú sama vegalengd og er milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Mér féll flugið með þessum farkosti mætavel, og ég fékk upplýsingar um það, að þyrilvængjurnar væru notaðar á meginlandi Evrópu til samgöngubóta milli þeirra smærri borga, sem ekki hafa stærri eða meiri háttar flugvelli í nágrenni sínu, og fljúga þær þannig á milli þeirra borga, sem eru í nánd við hina meiri háttar flugvelli. Þannig inna þær af hendi mikilvæga þjónustu um farþega- og póstflug.

Sú þyrilvængja, sem ég ferðaðist þarna með, var ekki neitt stórt fyrirtæki að sjá, en hún var þó gerð fyrir flutning 12 farþega. Í henni voru tveir farþegaklefar með sætum yfir hana þvera, sæti framan til í klefanum og annað sæti á móti, hvor bekkur um sig fyrir þrjá farþega, og annar sams konar klefi þar fyrir aftan, sem sé 12 farþegar og 2 flugmenn, svo að flugvélin gat flogið með 14 manns.

Ég hygg, að farkostur til þess að leysa það hlutverk, sem þessi tillaga fjallar um, þyrfti ekki að vera svona stór, heldur mundi henta sennilega 6 farþega vél.

Mér datt það þá þegar í hug, að það bæri a.m.k. að athuga gaumgæfilega, hvort slíkur farkostur sem þessi væri ekki lausnin á mjög erfiðum samgönguvandamálum Vestfirðinga og ef til vill einnig Austfirðinga.

Ég teldi, að hægt væri að veita mjög góða þjónustu, ef vél Flugfélags Íslands hefði beinar flugferðir á Ísafjarðarflugvöll og þaðan aftur, en þá tæki þyrilvængjan við og flygi með farþega og póst hvert sem væri á Vestfirðina, hugsum okkur t.d. um Bolungavík, Súgandafjörð, Önundarfjörð, Dýrafjörð, Arnarfjörð, Tálknafjörð, Patreksfjörð, kannske einn viðkomustað á Rauðasandi, einn viðkomustað á Barðaströndinni, einn viðkomustað í Austur-Barðastrandarsýslu, t.d. á Reykhólum, og svo á Hólmavík og þaðan til Ísafjarðar, og færi þannig hringinn daglega eða annan hvern dag, eftir því sem hentast þætti, til þess að veita sem greiðast samband við flugþjónustuna um Ísafjarðarflugvöll.

Það væri sannast sagna, að ef þetta fyrirkomulag væri framkvæmanlegt af öðrum ástæðum, vegna kostnaðar og annars, þá væri þarna fundinn möguleiki til þess að veita fólkinu, sem Vestfirðina byggir, svipaða þjónustu og þeir njóta, sem eru í miklu nánara nágrenni við Reykjavík en Vestfirðirnir eru.

Ég tek það fram í grg., að ég telji, að samskonar fyrirkomulag eigi engu síður við á Austfjörðum með Egilsstaðaflugvöll sem tengilið við Reykjavíkurflugið, og vík að því, að æskilegt væri, að sú hlið málsins yrði athuguð jafnframt af sérfræðingum ríkisstj. í flugmálum. Ég tel eðlilegast, að ríkisstj. fengi flugmálastjóra til þess að láta ásamt sínum mönnum athuga þessi mál.

Þegar till. mín hafði verið flutt. kom hv. 3. þm. Austf. (EinS) fljótlega að máli við mig og spurði mig að því, hvort ég væri því á nokkurn hátt andvígur, að hann flytti brtt. við þessa till. mína á þann hátt, að á eftir Vestfjörðum í till. kæmi alltaf „Austfjörðum“, og að inn í hana bættist líka, að þessar vélar, sem þá væru staðsettar á Vestfjörðum og Austfjörðum, skyldu auk farþega- og póstflugs einnig annast sjúkraflug. Ég tjáði honum að sjálfsögðu, að eins og hann sæi af grg. minni með till., væri mér það á engan hátt á móti skapi, að slíkar brtt. væru fluttar, því að það væri mín skoðun, að þetta gæti átt við jafnt á Austfjörðum sem Vestfjörðum. Þá væri auðsætt, að þyrilvængjan, sem Austfjörðum ætti að þjóna, hefði aðsetur á Egilsstöðum, tæki þar við framhaldsflugi yfir Austfjarðasvæðið og kæmi síðan aftur á Egilsstaðaflugvöll til þess að skila pósti og farþegum til flugs suður með þeirri flugvél sem hefði bækistöð sína á Egilsstaðaflugvelli.

Ég þarf ekki að taka það fram, að enga tæknilega þekkingu hef ég á þyrilvængjum öðrum þingmönnum fremur, og ætla ég ekki að gefa mig út sem neinn spesíalista í því, en vegna þess að mín þekking í þessum efnum nær skammt, er það, að ég vil láta sérfræðinga ríkisstj. í flugmálum taka við þessari hugmynd og athuga hana nánar, hversu framkvæmanleg hún kunni að teljast, og yrði ég auðvitað að beygja mig undir þá niðurstöðu, sem þessir sérfræðingar kæmust að.

Mér er tjáð, að þyrilvængjurnar séu nokkuð dýrar í innkaupi, stofnkostnaðurinn er því nokkur, en viðhald þeirra mun vera nokkuð sambærilegt við viðhald annarra flugvéla, eftir því sem ég hef nú fengið upplýst. Áður hafði mér verið tjáð, að það, sem væri fyrst og fremst fráfælandi við þessa hugmynd, væri það, að rekstur þyrilvængju væri mjög dýr, dýrari en annarra flugvéla, en aftur væru þær tiltölulega ódýrari í innkaupi en aðrar vélar. En skv. nýjustu upplýsingum, sem ég hef um þetta frá flugfróðum mönnum, mun þessu vera öfugt farið. Vélarnar sjálfar eru mjög dýrar, en rekstur þeirra ekki hlutfallslega dýrari en annarra véla, miðað við burðarþol. Hitt mun vera staðreynd, að þær eru ekki eins hraðfleygar og aðrar flugvélar og flugþol þeirra tæpast eins mikið. Mér er tjáð, að flugþol þyrilvængjunnar sé yfirleitt ekki meira en svona 5–6 klst.

Ég hef látið flugsiglingarfræðing fræða mig nokkuð um vegalengdirnar á Vestfjörðum, sem líklegt væri að slík þyrilvængja þyrfti að fara í hringferð hverri um Vestfirðina, og þær upplýsingar eru í örstuttu máli þessar.

Loftleiðin frá Ísafirði um Bolungavík, Súgandafjörð, Flateyri, Þingeyri, Bíldudal, Sveinseyri, Patreksfjörð og á Rauðasand segir hann vera svona hér um bil 140 sjómílur. Flughraði þyrilvængju er sagður vera 60–80 sjómílur á klst., og mundi þetta þá vera nálægt 2 stunda flugi hjá þyrilvængjunni, frá Ísafirði um þessa staði alla og vestur á Rauðasand. Og mundi ég þá vilja segja, að þetta væri um 2 stunda flug, og gæti þá ímyndað mér, að ámóta tími samtals færi í afgreiðslu á þessum stöðum. Í þetta gætu þannig farið ca. 4 tímar. Frá Rauðasandi um Barðaströnd, — ég hef helzt hugsað mér viðkomu þar á einum stað, t.d. í Haga, að Reykhólum eru ca. 45 sjómílur, segir siglingarfræðingurinn mér, og frá Reykhólum til Hólmavíkur um 20 sjómílur og þaðan til Ísafjarðar 45 sjómílur. Alls virðist þessi hluti vegalengdarinnar þá vera 1½ klst. flug. M.ö.o.: eftir þessum upplýsingum um vegalengdir og flughraða þyrilvængju að dæma telst mér til, að þyrilvængjan mundi vera 3½ klst. að fljúga hringinn um Vestfirði með þessu móti, en þar að auki kæmi svo afgreiðslutími, sem á mörgum stöðunum þyrfti áreiðanlega ekki að vera langur, afhenda einn farþega og póstpoka, og ættu ekki að þurfa að fara í það margar mínútur á ýmsum stöðum a.m.k., þó að það geti verið lengri tími í önnur skipti á öðrum stöðum.

Nú er mér kunnugt um það, að þegar varðskipið nýja, Óðinn, var keypt, þá var gert ráð fyrir því, að hann væri búinn út með palli fyrir þyrilvængju til að setjast á, og vissulega mun forstjóri landhelgisgæzlunnar nú þegar hafa aflað sér nokkurra upplýsinga um þyrilvængjur, sem hentuðu þeirri þjónustu í sambandi við landhelgisgæzlu okkar og hið nýja varðskip. Nú dettur mér í hug, hvort það væri ekki hugsanlegt, að það væri hagkvæmt, bæði þeirri hugmynd, sem í tillögunni felst, og þeirri þjónustu, sem við viljum fá fyrir landhelgisgæzluna með þyrilvængju, að þyrilvængjur þær, sem fyrst og fremst væru ætlaðar til þessa hlutverks, — farþega- og póstflutninga á Vestfjörðum og Austfjörðum, — væru staðsettar á Vestfjörðum og Austfjörðum og ættu einnig að einhverju leyti, þegar landhelgisgæzlan teldi ástæðu og þörf til, að sinna þjónustu fyrir landhelgisgæzluna, og að þannig væri hægt með tveimur þyrilvængjum að bæta landhelgisgæzluna fyrir Austfjörðum og Vestfjörðum í samvinnu við landhelgisskip okkar. Þetta er hugmynd, sem ég vil gjarnan að sú nefnd, sem þessa tillögu fær til athugunar, gefi gaum að. Ekkert skal ég um það segja, hvort það þætti tiltækilegt að sameina þetta, en þó er það athugandi.

Að öðru leyti hafði ég hugsað mér, að tvennt gæti komið til um rekstrarfyrirkomulag slíks farartækis. Það væri í fyrsta lagi hugsanlegt, að Flugfélag Íslands hefði rekstur slíkrar þyrilvængju með höndum, af því að það félag hefur aðflugið til Egilsstaða og til Ísafjarðar. Og það er ekki víst, að það á nokkurn hátt yrði talið ósanngjarnt, þar sem íslenzka ríkið er í stórum ábyrgðum fyrir Flugfélag Íslands, að Flugfélaginu yrði gert að skyldu vegna ríkisábyrgðanna að annast þessa þjónustu.

Hins vegar gæti líka komið til mála, að bæjar- og sveitarfélög á Vestfjörðum, sem vafalaust leggja ekki lítið upp úr því að geta tryggt sér slíka þjónustu, sem hér er hugsað til, önnuðust reksturinn og ríkið veitti þá einhverja aðstoð til þess ef halli væri á slíkum rekstri að halda honum uppi. Hvers vegna gæti það verið sanngjarnt, að ríkið gerði það? Jú, það er sökum þess, að með því að leysa málið á þann veg, að komizt verði hjá byggingu margra flugvalla og rekstri þeirra og viðhaldi, þá losnar hið opinbera auðvitað við milljónatuga fjárframlög, og gæti þá verið smápeningur einn að rétta heldur á einhvern hátt hjálpandi hönd til þess að leysa málið á annan hátt, einkanlega ef sú leið eða það úrræðið tryggði betri þjónustu en hægt væri að tryggja með hinu mótinu. Þyrilvængjurnar þurfa enga flugvelli. Á þeim stöðum, þar sem ég lenti á s.l. hausti, var þó í námunda við hina stóru flugvelli steinsteypt plata, venjulega hringmynduð, 20–25 m í þvermál eða eitthvað svoleiðis, og á þessum kringlóttu, steyptu plötum, sem mér virtust ekki stærri en lítill húsgrunnur, lentu þær og voru afgreiddar í námunda við flugstöðvarnar. Það, sem sparast, er þess vegna byggingarkostnaður, viðhald og rekstur flugvalla.

Ef það skyldi verða niðurstaða sérfræðinga. að þyrilvængjur hefðu einhverja þá ágalla, tæknilega eða vegna stofnkostnaðar eða rekstrarkostnaðar, að aðrar leiðir væru tiltækilegri til að leysa þetta hringflug frá aðalflugvelli á Austfjörðum og Vestfjörðum, t.d. með lítilli tveggja hreyfla flugvél líkri þeirri, sem einstaklingar á Akureyri eiga nú, sem geta tekið þrjá eða fjóra farþega, þá teldi ég það líka góða lausn á málinu og vildi gjarnan, að n. athugaði þann möguleika, a.m.k. að hinum frágengnum. En yrði sú leið farin, yrði þð ekki komizt hjá því að byggja flugbrautir á öllum þeim stöðum, þar sem unnt væri, en mér er sagt, að slíkar vélar komist af með svona 400–500 m braut, og þær má víða byggja og eru enda til á nokkrum stöðum og þurfa ekki að hafa mjög mikið burðarmagn. Þarf því ekki að byggja þær mjög traustlega, vegna þess að þessar litlu, léttu vélar heimta ekki mjög vandaðar flugbrautir. Þó yrði það aldrei eins góð þjónusta og þyrilvængjan getur veitt, því að hún getur lent á hvaða túnskækli sem er og þannig komið, þegar mikið liggur við, einkanlega í sjúkdóms- eða slysatilfellum, á hvaða sveitabæ sem þarf á aðstoð að halda, til að flytja farþega, en það geta hinar aldrei á sama hátt, og kemur þá til milliþjónusta annarra farartækja, sem líka kostar vissulega peninga að hafa tiltæk.

Ég hef nú farið nokkrum orðum um þessa hugmynd, lýsi því yfir, að ég er fyllilega samþykkur þeim brtt., sem fyrir liggja við till., og vil mælast til þess við hæstv. forseta, að umr. verði frestað og málinu verði vísað til háttv. allsherjarnefndar.