24.05.1960
Sameinað þing: 53. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í D-deild Alþingistíðinda. (3027)
141. mál, flóabátur fyrir Breiðafjörð
Flm. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Á þskj. 353 hef ég ásamt öðrum hv. þm. Vesturl. borið fram till. til þál. um áskorun til hæstv. ríkisstj. að láta undirbúa smíði á flóabát fyrir Breiðafjörð. Í grg. með till. er fram tekið, að mál þetta verði undirbúið og framkvæmt í samstarfi við eigendur mótorbátsins Baldurs, sem nú hafa þessa flutningaþjónustu með höndum fyrir Breiðfirðinga, enda teljum við flm. fara bezt á því.
Sérstakt skip eða bátur hefur annazt ferðir um Breiðafjörð síðan um aldamót, og hafa þessi skip og bátar, sem í nær 60 ár hafa annazt þessa þjónustu, verið í einkaeign, eins og raunar tíðkast enn um flesta eða alla báta víðs vegar á landinu, sem annast hliðstæða þjónustu. Hins vegar er varið af ríkisvaldinu töluverðu fé árlega á fjárlögum til rekstrar flóabáta, eins og hv. alþm. er kunnugt. Einasta frávik í þessum efnum er að líkindum í sambandi við mótorbátinn Baldur, með því að ríkið gerðist meðeigandi að bátnum fyrir fáum árum. Það er og meðfram ástæðan fyrir því, að við þm. Vesturl. teljum eðlilegt, að hæstv. ríkisstj. hafi frumkvæðið að því, að nýr flóabátur verði smíðaður fyrir Breiðafjörð. Sérstaklega er þetta aðkallandi, þar sem vitað er, að mótorbáturinn Baldur getur ekki annazt þessa þjónustu miklu lengur, svo að vel sé. Ýmsar tafir hafa verið á rekstri bátsins á undanförnum árum, þó að vitað sé, að aðaleigandi hans og formaður hefur gert sitt ýtrasta til að sinna flutningaþörf hafnanna við Breiðafjörð.
Í grg. með þáltill. er vitnað í bréf forstjóra Skipaútgerðar ríkisins frá 7. f. m. til samvinnunefndar samgöngumála, þar sem hann mælir eindregið með því, að byggt verði nýtt skip, sem annist samgöngur um Breiðafjörð. Telur forstjórinn æskilegt, að unnt verði að leysa m/s Skjaldbreið að mestu frá Breiðafjarðarferðum, svo að hún geti farið hálfsmánaðarlega í ferð milli Reykjavíkur og Vestfjarða, sem — eins og forstjórinn tekur fram — yrði mjög vel þegið af Vestfirðingum og hentaði skipinu betur.
Mikið hefur verið rætt á undanförnum árum, bæði á Alþ. og utan þess, um jafnvægi í byggð landsins. Fátt er eins raunhæft í því efni sem bættar samgöngur á sjó og landi. Ég fullyrði, að e.t.v. er ekkert jafnaðkallandi fyrir Breiðafjarðarbyggðir og góðar samgöngur með heppilegu skipi, sem annast flutninga á vörum og fólki um Breiðafjörð. svo að byggðin þar vestra megi blómgast í skjóli slíkrar þjónustu. Bættar samgöngur eru vissulega bezt fallnar til þess, að fólkið í strjálbýlinu geti notið sín og unað ánægt hag sínum, þó að ýmislegt annað vanti, sem fólkið í þéttbýlinu á auðveldara með að veita sér. Þetta ber okkur alþm. að hafa í huga og vinna að því af kostgæfni, að þessi raunhæfa þjónusta við strjálbýlið sé framkvæmd, sem ég tel að muni verða þjóðarheildinni til farsældar. Það hefur verið áberandi í okkar þjóðfélagi á undanförnum áratugum, að fólkið, sem í strjálbýlinu hefur búið, hefur yfirgefið góðar jarðir og flutzt í þéttbýlið. Þessi þróun hefur ekki verið æskileg, og ber hv. alþm. að gera ráðstafanir, sem stefna að því marki, að þessi þróun haldi ekki áfram, m.a. með bættum samgöngum, eins og till. sú, er hér er til umr., gerir ráð fyrir.
Að lokinni þessari umr. vil ég biðja hæstv. forseta að vísa till. til síðari umr. og til hv. fjvn.