24.05.1960
Sameinað þing: 53. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (3033)
142. mál, malbikun gatna í kaupstöðum og kauptúnum
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Aðalflutningsmaður þessarar þáltill., Daníel Ágústínusson bæjarstjóri á Akranesi, sem hér átti sæti á þingi nokkrar vikur í vor í forföllum hv. 3. þm. Vesturl. (HS), hefur nú horfið af þingi, og vil ég því sem samflutningsmaður að till. mæla fyrir henni nokkrum orðum.
Till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa löggjöf fyrir næsta Alþ. um fjárhagslegan stuðning við malbikun gatna í kaupstöðum og kauptúnum landsins. “
Með till. er þannig að því stefnt, að Alþ. feli ríkisstj. að undirbúa fyrir næsta þing löggjöf um fjárhagslegan stuðning við malbikun gatna í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Til þessa tíma hefur malbikun gatna á Íslandi orðið að sitja mjög á hakanum, og munu vera til þeir kaupstaðir og kauptún hér á landi, þar sem ekki jafnvel hinn minnsti vegarspotti er lagður varanlegu slitlagi. Malar- og moldargötur setja þannig aðalsvip sinn á gatnagerð kaupstaðanna og jafnvel höfuðborgarinnar sjálfrar.
Augljóst mál má það vera hverjum þeim, sem nokkuð kynnir sér þessi mál, að sá háttur, sem nú er á um gatnagerð í kaupstöðum, getur ekki staðið til frambúðar, og ber brýna nauðsyn til, að hafizt verði handa um athugun á leiðum til úrbóta í því efni. Ekkert sveitarfélag hefur reynzt þess megnugt að verja miklu af tekjum sínum til malbikunar gatna. Sveitarstjórnirnar hafa við mörg verkefni að glíma og rekstrarfé þeirra takmarkað. Tekjuöflunarleiðir sveitarfélaganna eru einnig mjög einskorðaðar og erfitt að benda á nýja tekjustofna til þess að standa undir hinum ýmsu þörfum sveitarfélaganna. Malbikun gatna í kaupstöðum hefur því verið látin sitja á hakanum, þó að ýmislegt megi finna því til foráttu. Kostnaður við malbikun er einnig mjög mikill, og malbikun verður ekki framkvæmd án sérstaks vélakosts, og er ofviða flestum okkar litlu bæjarfélögum að kaupa slík tæki einum og óstuddum.
Bæjarstjórnir í flestum kaupstöðum okkar hafa í seinni tíð sýnt gatnagerðarmálum mikinn áhuga, og má segja, að það sé einróma álit forráðamanna bæjarfélaganna, að brýna nauðsyn beri til þess að hefjast handa um malbikun gatna. Eru menn á einu máli um það, að hér sé um mikið fjárhags- og menningarmál að ræða. Það er fjárhagsmál að því leyti fyrst og fremst, að malargötur okkar eru mjög slítandi fyrir öll farartæki, og mundi malbikunin því tvímælalaust leiða til meiri endingar bifreiða og annarra vélknúinna farartækja og beinlínis stuðla að sparnaði fyrir bifreiðaeigendur og landið í heild. Malbikunin er líka menningar og þrifnaðarmál, því að með núverandi gatnagerð verður varla komið í veg fyrir það óheilnæma ryk og aðra þá óhollustu, sem fylgir íslenzkum vegum. þegar svo viðrar, og svo aftur for og óþrif, sem er óhjákvæmileg fylgja moldar- og malarveganna í rigningu. Það væri því af þrifnaðar- og menningarsökum mikils um vert, að malbikun gatna í kaupstöðum og kauptúnum verði framkvæmd í ríkara mæli en nú er gert.
Stjórnir kaupstaðanna hafa lengi hugleitt þetta mál og nú nýlega myndað með sér samtök til þess að hrinda af stað meiri malbikunarframkvæmdum en til þessa hefur verið. 9 kaupstaðir hafa stofnað hlutafélag, sem þeir kalla Malbik, og er ætlun félagsins að koma sér upp fullkomnum malbikunartækjum til sameiginlegra afnota fyrir aðildarkaupstaðina. Þrátt fyrir stofnun Malbiks h/f og jafnvel þótt félagið gæti hafið nokkra starfsemi á næstunni, er þó sýnilegt, að ekki er við neinum stórvirkjum að búast hvað malbikunarframkvæmdir snertir, nema frekari samtök og opinber stuðningur komi til.
Með þessari þáltill. er að því miðað, að ríkisstj. beiti sér fyrir undirbúningi löggjafar um fjárhagslegan stuðning við malbikun gatna í kaupstöðum og kauptúnum. Það er álit okkar, sem að till. stöndum, að hér sé um slíkt stórmál og þjóðþrifamál að ræða, að full ástæða sé til þess, að hinn almenni löggjafi hafi þar áhrif á og að ríkisstj. hafi forgöngu um athugun á því, hvernig þessu máli verði haganlegast fyrir komið. Við teljum líka, að málið sé svo vaxið, að full ástæða sé til þess, að ríkið leggi eitthvað úr sínum sjóðum til þess að efla malbikunarframkvæmdir í kaupstöðum og kauptúnum.
Það má í þessu sambandi benda á, að ríkið innheimtir nú í sérstökum benzínskatti samtals 147 aura af hverjum lítra benzíns. Þar af ganga til ríkissjóðs beint sem tekjur ríkisins 114 aurar á lítra, og er áætlað, að það gefi af sér samtals 57 millj. kr. nú í ár beinlínis í ríkissjóð. Nokkrum hluta er hins vegar varið til þess að byggja upp samgöngukerfi landsins, en þó er það aðeins brot af þeirri upphæð, sem ríkissjóður tekur beint til sín. Eðlilegt væri, að benzínskatturinn gengi að mestu til þess að byggja upp akvegakerfið, og þá hlýtur að koma til álita að verja nokkrum hluta hans til malbikunarframkvæmda í kaupstöðum og kauptúnum. Vil ég leyfa mér að benda á þetta atriði, um leið og ég beini því til hæstv. forseta að fresta umr. og fá þessu máli skotið til fjvn. til athugunar.