27.05.1960
Sameinað þing: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (3058)

161. mál, úrsögn Íslands úr Atlantshafsbandalaginu

Flm. (Alfreð Gíslason læknir):

Herra forseti. Hér liggur fyrir till. til þál. um úrsögn Íslands úr Atlantshafsbandalaginu og um að Bandaríkjaher verði vísað úr landi og herstöðvar lagðar niður. Þessi till. er flutt af öllum þm. Alþb.

Ýmsum mun máske finnast till. um úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu ekki koma vonum fyrr fram hér á hinu háa Alþingi, og má það til sanns vegar færa. Margir hafa krafizt þeirrar úrsagnar fyrir löngu og það af ýmsum ástæðum. Það er einnig kunnara en frá þurfi að segja, að hlutdeild Íslendinga í hernaðarbandalagi hefur frá öndverðu sætt harðri gagnrýni og að í þeirri gagnrýni hefur verið stuðzt við mörg og þungvæg rök, enda er það mála sannast, að þjóðin átti aldrei neitt erindi í Atlantshafsbandalagið, Vopnlaus þjóð getur ekki stundað hernað, og því ber henni að standa utan hernaðarsamtaka. Þetta eru einföld sannindi, og þó virðast menn hafa flaskað á þeim. Aðild slíkrar þjóðar að stríðsbandalagi er í senn vansæmandi og hættuleg. Þjóðin reisir sér hurðarás um öxl, setur traust sitt á aðrar þjóðir um of og verður fyrr en varir þeim þjóðum að bráð.

Það var lýðum ljóst í upphafi, að innganga Íslands í Atlantshafsbandalagið var þjóðinni hættulegt spor. Ill forlög réðu því, að það var stigið, og mun þar mestu hafa ráðið blindandi hégómagirnd. Mörg varnaðarorð voru töluð, en þau stoðuðu ekki. Þjóðinni var nauðugri. viljugri skipað í raðir hernaðarþjóða, og síðan hefur hún orðið að þramma með í þeirri fylkingu. Um mark og mið þessara þjóða fá Íslendingar lítið að vita og engu að ráða, en áfram er þeim hrundið í þessari hergöngu. Íslenzka þjóðin gegnir í Atlantshafsbandalaginu hlutverki góða dátans, sem ekkert er annað en viljalaust verkfæri og ekki má vera neitt annað en það.

Ísland er látið gerast stofnaðili að þessu hernaðarbandalagi, minna mátti það ekki vera, en síðan eru nú liðin ellefu reynslurík ár. Sérstakur stofnsamningur var hátíðlega undirritaður, og áttu ákvæði hans að gilda fyrir alla aðila bandalagsins. stóra sem smáa. Þessi samningur er enn til og í fullu gildi. Samkvæmt honum skuldbinda aðildarríkin sig til að leysa hvers konar deilumál, sem þau kunna að lenda í, á friðsamlegan hátt, að beita aldrei hótunum né valdi í milliríkjaskiptum, að efla friðsamleg og vinsamleg viðskipti þjóðanna og að telja vopnaða árás á eitt ríkið sem árás á þau öll. Í þessum anda eru öll ákvæði Atlantshafssamningsins. Aðildarríkin heita því að aðhafast ekkert það, er stofnað geti heimsfriði, öryggi og réttlæti í hættu, og þau heita því að styðja og styrkja hvert annað eftir mætti, menningarlega og efnahagslega.

Hvernig hafa efndirnar orðið á þessum skjalfestu og undirrituðu loforðum? Ég minnist þess ekki að hafa heyrt um samningsrof smáþjóðanna í bandalaginu, og víst er um það, að Íslendingar hafa staðið við sitt þar. Hið sama verður því miður ekki með sanni sagt um forustuþjóðirnar. Lætur nærri, að þær hafi í þessi ellefu ár farið sínu fram rétt eins og aldrei hefði til verið Norður-Atlantshafssamningur.

Árið 1956 áttu Frakkar og Bretar í deilu við Egypta og gerðu tilraun til að leysa þá deilu, ekki á friðsamlegan hátt eins og fyrirskipað er í Atlantshafssamningnum, heldur með vopnaðri árás. Með þessu tiltæki rufu þessar öndvegisþjóðir samninginn á hinn herfilegasta hátt. Þær brugðust því heiti, sem þær sízt máttu bregðast, og stofnuðu alþjóðafriði í mikla hættu. Árásin 1956 er hér um bil stærsta brot, sem Atlantshafsbandalagsþjóð getur framið, og þetta brot frömdu Frakkar og Bretar með köldu blóði. Með því stofnuðu þeir öryggi bandamanna sinna í mikla hættu. En hvað hirtu þessar stórþjóðir um það? Ákvæðum Atlantshafssamningsins skyldi fylgt, hvenær sem þeim kæmi að gagni, annars ekki. Þessi samningsrof voru svo alvarlegs eðlis, að þau gátu nægt hvaða þjóð Atlantshafsbandalagsins sem var sem fullgilt tilefni til tafarlausrar úrsagnar hennar úr bandalaginu.

Árið 1952 settu Bretar löndunarbann á íslenzkan fisk. Höfðu Íslendingar skömmu áður fært landhelgi sína út um eina sjómílu, og fyrir það skyldi þeim nú refsað með löndunarbanni í Bretlandi. Með þeirri aðgerð hugðust Bretar kúga Íslendinga, blátt áfram svelta þá til hlýðni. Að vísu mistókst þetta, en söm var gerð brezkra stjórnarvalda. Þau reyndu að sveita minnstu bandalagsþjóð sína til hlýðni. Það var þeirra máti að standa við loforðið um friðsamleg og vinsamleg milliríkjaviðskipti.

Miklu stærra samningsbrot frömdu Bretar þó á Íslendingum árið 1958, er þeir fyrirskipuðu togurum sínum að stunda veiðar í íslenzkri landhelgi og sendu herskip þeim til verndar. Þetta ofbeldisfulla veiðirán stunduðu Bretar frá september 1958 til marz 1960. Þetta var vopnuð árás þeirra á bandalagsþjóð, og þessa styrjöld á sjónum háðu þeir látlaust á annað ár. Þeir hótuðu að skjóta íslenzk varðskip í kaf, og þeir rændu íslenzkum mönnum, er gegndu embættisstörfum. Á þennan hátt efndu Bretar samningsheit sitt við Íslendinga um að beita hvorki hótunum né valdi í milliríkjaskiptum.

Það er ómótmælanlegt, að Bretar réðust með vopnavaldi á Íslendinga árið 1958 og að þeir beittu þá ofbeldi á annað ár. Með þeim aðgerðum hafa Bretar fótumtroðið mikilsverðasta ákvæði Atlantshafssamningsins og með því gert þann samning að marklausu pappírsplaggi. Við slíku samningsbroti, slíku gerræði eiga Íslendingar aðeins eitt svar, sem þeim er sæmandi, og það er að segja sig úr þessu bandalagi.

Súez-ævintýri Frakka og Breta stóð stutt, enda munu aðrar þjóðir Atlantshafsbandalagsins hafa látið það til sín taka á bak við tjöldin. Þetta feigðarflan var stöðvað. En hvað gerðist, þegar Bretar, gráir fyrir járnum, óðu inn í fiskveiðilandhelgi og tóku að stunda þar rán í skjóli vopnavalds? Þá hreyfði engin bandalagsþjóð hönd eða fót, og engin þeirra taldi það ómaksins vert að beita áhrifum sínum gegn ofbeldinu, gegn árásinni. Í Atlantshafssamningnum segir þó: „vopnuð árás á eitt aðildarríkið jafngildir árás á þau öll“. Þetta mikilsverða og bróðurlega ákvæði samningsins brutu öll aðildarríkin þegjandi og hljóðalaust, þegar Íslendingar áttu í hlut. Þegar Bretar réðust á Íslendinga, gerðust öll hin ríkin með hlutleysi sínu og aðgerðaleysi sek um brot á grundvallarákvæði samningsins, og hefði það eitt mátt nægja okkur til úrsagnar úr þessu einkennilega bandalagi.

Bandaríkin eiga sér orðið alllanga sögu hér á landi og hana ekki alla sem fegursta, eins og betur mun í ljós koma, er hún verður skráð. Þetta volduga ríki hefur herstöðvar hér og herlið og hlaut þá aðstöðu fyrir milligöngu Atlantshafsbandalagsins. Öðrum þræði er látið í það skína, að bandarískur her sé hér til þess að vernda íslenzku þjóðina fyrir árás. Er óspart slegið á þá strengi, hvenær sem nauðsyn þykir á að sætta þjóðina við örlög sín, hernám landsins. Hvað gerðist nú, þegar Bretar réðust með vopnavaldi á Íslendinga? Komu ekki Bandaríkjamenn með setulið sitt okkur til hjálpar? Nei, þeir létu það ógert, þeir sátu hjá. Árás á Ísland jafngilti þó samkvæmt samningnum árás á sjálf Bandaríki Norður-Ameríku. Um það var engum blöðum að fletta. Samt sátu Bandaríkin hjá og hreyfðu engum mótmælum. Með þeirri framkomu brutu Bandaríkjamenn gerðan samning, þverbrutu sjálfan innsta kjarna hans. Með aðgerðaleysinu studdu Bandaríkin árásaraðilann og sviku í tryggðum þann, sem á var ráðizt. En Bandaríkin hafa, eins og kunnugt er, engan veginn látið sér nægja þessa framkomu gagnvart Íslendingum, heldur hafa þeir stutt við bak brezkra stjórnarvalda eftir beztu getu. Náði sá stuðningur hámarki á Genfarráðstefnunni, sem lauk í síðasta mánuði. Þar beittu Bandaríkin sér gegn hagsmunum Íslendinga og létu einskis ófreistað til að spilla fyrir málstað þeirra. Þetta létu Bandaríkin sér sæma, og ekki hafa þau þá afsökun, að þau þekki ekki þarfir Íslands. Samtímis því að þau börðust sem hatramlegast gegn okkur á sjóréttarráðstefnunni í Genf, marglýstu fulltrúar þeirra því yfir, að hér væri um að ræða lífshagsmunamál Íslendinga. Þeir vissu því, hvað þeir gerðu, er þeir börðust gegn 12 mílna fiskveiðilandhelgi Íslands. Bandaríkin hafa þannig á fleiri en einn veg gerzt brotleg við Atlantshafssamninginn, og hefur það komið hart niður á Íslendingum. Svar okkar við þeim brotum ætti að vera aðeins eitt: Úrsögn okkar úr þessum hernaðarsamtökum.

Í nítján ár hafa Bandaríkin notið hinna margvíslegustu sérréttinda hér á landi. Það var árið 1941, sem þeir tóku að sér hervernd Íslands, og síðan hefur ekki linnt látum að gera þeim til hæfis hér á landi. Er afleiðingin sú sorglega staðreynd, að Ísland er orðið varanleg herstöð, ein at tugum eða hundruðum í varnar- og sóknarkerfi Bandaríkjanna. Þessi nítján ár í sögu þjóðarinnar tákna tímabil mikillar niðurlægingar hennar. Ísland er því miður orðið leppríki framandi stórveldis og herstöð þess. Þetta er sannleikurinn ógrímuklæddur.

Árið 1941 var íslenzka ríkisstj. neydd til að biðja Bandaríkin um hervernd. Var látið heita svo, að ríkisstj. hefði fallizt á, að hingað yrðu sendar bandarískar hersveitir. Auðvitað gáfu bandarísk stjórnarvöld hátíðleg loforð þá sem endranær, og auðvitað voru Þau loforð meira eða minna svikin. Bandaríkin lofuðu því 1941 að hlutast ekki til um stjórn landsins, hvorki þá né síðar. Hvernig var það haldið? Það var strax á næsta ári, sem þau fóru að sletta sér fram í innanríkismál okkar. Þá lýstu þau sig andstæð því, að Íslendingar slitu sambandið við Dani á þann veg, sem þeir höfðu hugsað sér, og ástæðan fyrir þessari andstöðu var tilgreind sú, að sambandsslitin gætu skaðað hagsmuni Bandaríkjanna.

Slettirekuskapurinn gerði þannig snemma vart við sig, og síðan hefur ekki lát orðið á honum. Bandarísk stjórnarvöld hafa gætt vel sinna hagsmuna hér á landi, unnið að þeim eftir ýmsum leiðum og jafnan orðið vel ágengt. Fyrirstaða Íslendinga hefur reynzt veik og undanlátssemin verið mikil. Bandaríkin skuldbundu sig til þess 1941 að hverfa burt af landinu með allan herafla sinn á landi, í lofti og á sjó, undireins og heimsstyrjöldinni væri lokið. Að nafninu til tókst að fá þá burt um skeið, nauðuga þó, enda komu þeir fljótlega aftur með her sinn, sem síðan hefur setið hér sem fastast. Keflavíkursamningurinn 1946 táknaði örlagaríkan ósigur Íslendinga. Með honum var herveldinu tryggður á ný rétturinn til herstöðva í landinu, að vísu dulbúinna. Fótfestu var þó náð aftur. Bandaríkjamönnum voru heimilaðir herflutningar um Ísland og fullveldi þess með því verulega skert og á sama hátt og gert var á stríðsárunum. Þessi samningur var neyddur upp á Íslendinga og ekki skirrzt við að reka á eftir með hæfilegum hótunum, en það hlutverk tóku brezk stjórnarvöld að sér sérstaklega í það skiptið.

Eftir þetta verður skammt stórra högga á milli hjá Bandaríkjamönnum. Árið 1949 er Ísland rekið inn í kví Atlantshafsbandalagsins og með því gert samábyrgt fyrir öllu því, sem ákveðin stórveldi kunna að taka sér fyrir hendur í framtíðinni, jafnt í stríði sem í friði, og 1951 er svokallaður varnarsamningur gerður, sem heimilar til fulls rekstur herstöðva í landinu. Markinu var náð, Ísland orðið hlekkur í herstöðvakeðju stórveldisins í Vesturheimi og eitt af útvirkjum þess.

Ísland var látið ganga í Atlantshafsbandalagið og herstöðvaleyfið var veitt í því skyni að tryggja öryggi lands og þjóðar. Þannig mæla þeir veiklunduðu íslenzku ráðamenn, sem í nítján ár hafa jafnt og þétt látið undan ásókn erlends valds. Að sjálfsögðu verða þessir menn að hafa sér eitthvað til afsökunar. Hlutdeildin í stríðssamtökunum og herstöðvarnar tryggja öryggi Íslands, ef til styrjaldar kemur. Þessari skoðun er látlaust haldið að þjóðinni, og þetta er henni boðað sem trú, enda þarfnast trú engra röksemda.

Þessir greiðviknu íslenzku ráðamenn finna til sektar gagnvart þjóðinni. Um það þarf ekki að efast. Þeir reyna ekki að afsaka undanlátssemi sína með því, að hernámið sé í sjálfu sér blessun fyrir þjóðina. Svo langt eru þeir ekki leiddir í óskammfeilninni. Nei, þeir viðurkenna í orði kveðnu, að þetta hernám sé hreinasta neyðarúrræði. En þörfin er samt brýn, segja þeir, því að öryggi þjóðarinnar er í húfi. Sé hér her, verður Ísland varið og þjóðin vernduð. — Þessu á þjóðin að trúa. En hver er þá skoðun annarra og þar á meðal háttsettra bandarískra herforingja í þessu efni? Þeir álíta, að útvirki Bandaríkjamanna á borð við Ísland muni í ófriði verka eins og segulstál, sem dregur að sér járnið, þau muni verða fyrstu skotmörkin í styrjöld.

Herstöð verður jafnan mikilsvert skotmark og því fremur sem hún er mikilvægari. en Ísland hefur af öllum verið talið hernaðarlega mikilsvert vestrænum ríkjum til sóknar og varnar. Líkurnar eru því þær mestar, að hernumið Ísland komist aldrei hjá árásum, en óvopnað land hafi mikla möguleika til þess. Það er því langur vegur frá, að herstöðvar séu þjóðinni nokkur vernd í stríði. Þvert á móti bjóða þær hættunni heim.

Dálítið meira vit er í því að segja, að öðrum vestrænum þjóðum sé nokkurt öryggi í öflugum herstöðvum á Íslandi, enda er vissulega sú meiningin með þeim. Þá er þjóðin, sem landið byggir, fámenn og vopnlaus, aðeins ómerkilegt peð á leikborði stórþjóðanna. Um það peð yrði lítt hirt, ef til stórra átaka kæmi. En öllum er annt um sitt eigið líf, einnig íslenzku þjóðinni, og því mundi hún aldrei ljá sig til vonlausrar fórnar öðruvísi en blekkt og svikin.

Vildarvinir Bandaríkjanna á valdastólum hér þreytast aldrei á að tala um vestrænt frelsi og vestrænt lýðræði, vinaþjóðirnar í vestri, menningu þeirra og mannúð og þannig áfram í sama dúr. Virðist helzt á þeim að skilja, að þessar þjóðir séu hafnar yfir alla gagnrýni, að það gangi guðlasti næst að setja eitthvað út á þær. Samstaðan með þeim á að vera alger og samábyrgðin ótakmörkuð. Þótt sumar þessara þjóða sparki í okkur eins og rakka hvað eftir annað, má helzt ekki á það minnast, því að það eru vinaþjóðir, sem gera það. Vissulega er margt vel um vestrænar þjóðir, en því miður líka ýmislegt misjafnt. Af eigin reynslu þekkjum við ofbeldi Breta við þá, sem minni máttar eru, og við könnumst við ágengni Bandaríkjamanna. Allur heimurinn heyrir um blóðugan yfirgang Frakka og Breta í Afríku. Og þannig mætti fleira til tína, sem sýnir, að mannúð og réttlæti þessara þjóða er tæpast meira en í meðallagi.

Það er hollt að líta öðru hverju raunsæjum augum á hlutina og þá einnig á lýðfrelsi þeirra þjóða, sem eru í Atlantshafsbandalaginu. Portúgalar búa ekki við lýðræði, heldur sótsvart einræði. Einnig í Tyrklandi og Grikklandi ríkir að sögn raunverulegt einræði eða a.m.k. mjög takmarkað lýðræði. Hvað er þá um stórþjóðir Atlantshafsbandalagsins, eins og Þjóðverja og Frakka? Í báðum þeim löndum er lýðræðið verulega skert, þar ríkir m.a. ekki fullt stjórnmálafrelsi. Í Þýzkalandi eru friðarvinir ekki vel séðir af yfirvöldum og jafnvel ofsóttir, og allir kannast við lýðræðisást Frakka, eins og hún birtist í Alsír. Þessara og annarra ámóta staðreynda er unnendum frelsis og lýðræðis hollt að minnast, þegar lofsöngurinn um hinn frjálsa vestræna heim stígur sem hæst. Þar fyrir ber að viðurkenna allt annað, sem gott er í fari þessara þjóða.

Af eldmóði er okkur kennt að líta upp til hinna vestrænu vinaþjóða, og af sama eldmóði er alið á tortryggni okkar og óvild í garð þjóðanna fyrir austan járntjald. Hér er á ferðinni afturgengin hin gamla kenning kirkjunnar um gott og illt og ekkert þar á milli. Það er ekki einræði, sem skilur þessa tvo heima að, því að það fyrirhittist bæði austan tjalds og vestan. Það er allt annað, sem raunverulega skilur þarna á milli, og það er hrunadans stórveldanna um yfirráð auðs og landa í heiminum. Við Íslendingar erum á yfirráðasvæði Bandaríkjanna og háðir þeim og þeirra bandamönnum, og af því á öll okkar afstaða til umheimsins að mótast. Þegar Bretar neita að viðurkenna landhelgi okkar og senda vopnaðan flota til að ræna fiskimiðin, þá er það nánast uppreisn af okkar hálfu að mótmæla eða halda fast á okkar málstað. Þegar Rússar og Kínverjar viðurkenna opinberlega 12 mílna fiskveiðilandhelgi Íslendinga, þá fara íslenzkir valdamenn hjá sér, rétt eins og um mannsmorð væri að ræða. Þeir vita sem er, að „vinaþjóðunum“ gæti mislíkað, væri því mjög á lofti haldið hér, að Rússar virtu íslenzka landhelgi. Viðskipti okkar við löndin austan járntjalds eru vestrænum forustuþjóðum þyrnir í auga, og þess vegna eru þau líka íslenzkum valdhöfum þyrnir í auga, svo föst er þessi taglhnýting þegar orðin.

Við Íslendingar höfum ekki langa reynslu í meðferð utanríkismála. Það eru ekki nema 20 ár, síðan við tókum þau mál að fullu í okkar hendur, Það er stuttur reynslutími, þegar um er að ræða jafnvandasöm og viðkvæm mál sem utanríkismál eru. Þessi reynsluskortur á ef til vill sinn ríka þátt í því, hve illa hefur til tekizt um meðferð íslenzkra utanríkismála síðustu tvo áratugina. Það kann og að vera veigamikið atriði í þessu efni, að við tókum við þessum málum á styrjaldartímum, þegar í skjótræði varð að leysa úr hverjum vanda. Þannig eiga þeir valdamenn okkar, sem með utanríkismálin hafa farið, sér nokkra afsökun. Óreyndir með öllu urðu þeir að taka við þessum málum fyrir 20 árum, einmitt á þeim tíma, er vandi ófriðarins steðjaði að, enda tókst þeim ekki vel til. Þeir gerðu sannarlega ekki betur en við var að búast.

Það var ógæfa, að íslenzk utanríkisstefna átti frá byrjun þessa tímabils ekkert fast undir fótum. Hana vantar enn í dag grundvöll, og því svífur hún í lausu lofti. Þetta ástand hófst, þegar ákvæðinu um ævarandi hlutleysi landsins var varpað fyrir borð. Í þess stað kom ekkert, er fullvalda smáþjóð væri stætt á, engin hugsjón, enginn þjóðarmetnaður og ekkert markmið. Það er engum efa undirorpið, að hlutleysinu var kastað á glæ fyrir áhrif erlendra hervelda, sem sáu sinn hag í þeirri ráðabreytni. Þannig voru það annarlegir hagsmunir, sem því ollu, að þjóðin glataði hlutleysisstefnu sinni á stríðsárunum. Eftir á reyndu hinir seku að afsaka tiltækið, þeir reyndu að telja þjóðinni trú um, að hlutleysisstefnan væri orðin úrelt, hlutleysi orðið óraunhæft hugtak og hlutlaust Ísland eins og álfur út úr hól í heimi nútímans. Þeir bentu einnig á, hve lítið hlutleysið hefði gagnað landinu, er Bretar hernámu það 1940, þótt enginn geti um það dæmt, hvernig farið hefði þá, ef landið hefði ekki verið hlutlaust. Öll eru rökin fyrir stefnubreytingunni hæpin í meira lagi, enda uppfundin eftir á í afsökunarskyni.

Íslenzk utanríkismál hafa nú, eins og ég sagði áðan, svífið í lausu lofti í tæp 20 ár. Í rauninni hefur ekki verið um íslenzka stefnu að ræða í þessum málum okkar, heldur bandaríska stefnu. Bandaríkjastjórn hefur í reynd verið leyft að ákveða og móta utanríkisstefnu okkar. Þess vegna báðum við Bandaríkin um hervernd 1941, undirrituðum Keflavíkursamninginn 1946, gengum í Atlantshafsbandalagið 1949 og leyfðum herstöðvarnar 1951. Þannig hefur utanríkisstefna Bandaríkjanna orðið okkar utanríkisstefna í einu og öllu. Íslendingar eru meðábyrgir fyrir þeim hættulega leik að halda fjölmennustu þjóð veraldar árum saman utan við samtök hinna Sameinuðu þjóða, og fyrir fylgispektina við Bandaríkjamenn bera Íslendingar einn hluta ábyrgðarinnar á margra ára harðstjórn Syngmans Rhee í Suður-Kóreu, svo að tvö dæmi séu nefnd um stjórnvizku Bandaríkjamanna.

Engin regla er án undantekningar og svo er hér. Árið 1958 stækkuðu Íslendingar landhelgi sína án þess að fá um það fyrirmæli frá Washington. Er það tiltæki einstakt í sinni röð, enda ekki gengið hljóðalaust af. Hafa hérlendir vinir hinna vestrænu ríkja skolfið á beinunum og varla vitað, hvað þeir ættu af sér að gera. Vafalaust langar þá enn til að setjast við samningaborðið og slaka til, en hingað til hefur hræðslan við almenningsálitið í landinu haldið þeim frá því, hvað sem síðar verður.

Þeir menn hérlendir, sem mestu hafa ráðið um framkvæmdir utanríkismála okkar, hljóta að gera sér grein fyrir ósjálfstæðinu og stefnuleysinu á þessu sviði. Þeim hlýtur að vera ljóst, að hér er rekin bandarísk, en ekki íslenzk utanríkisstefna, En hvers vegna hafa þeir látið og láta þeir þetta viðgangast? Eiga þessir valdamenn engar þjóðlegar hugsjónir eða þjóðlegan metnað? Skortir þá trú á landið og þjóðina, eða eru þeir bara veiklundaðir og talhlýðnir um of? Þessum spurningum skal ég ekki reyna að svara nú. Vafalaust var það vandasamt verk að taka við utanríkismálunum fyrir 20 árum og síðan sennilega erfitt að standast ásókn og yfirgang stórveldismanna, sem hér náðu fótfestu á stríðstímum. Ég efast ekki um, að valdamenn okkar hafa einatt nauðugir slakað til og með slæmri samvizku. Þeir hafa fundið til sektar, en jafnframt leitað afsakana til að friða sjálfa sig og til að friða almenning. Þegar búið var að farga hlutleysinu, var fundin upp kenningin um, að hlutleysi væri úrelt. Þegar búið var að lokka Ísland í hernaðarbandalag, var þjóðinni talin trú um, að það hefði verið gert í hennar þágu, og þegar herstöðvar höfðu verið leyfðar, var samið ævintýrið um öryggi landsins, ef til ófriðar kæmi. Fyrst var alltaf látið undan hinu erlenda ríki á bak við tjöldin og síðan þjóðinni færður boðskapurinn í snotrum umbúðum.

Það er erfitt að fóta sig á hálli braut. Sé einu sinni á því byrjað að láta undan síga, er hætt við endurtekningum. Þegar frá því var skýrt í útvarpinu 18. marz 1949, að Ísland gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu, þá var samvizkan vissulega ekki góð, og því voru um leið hátíðleg loforð gefin. Þá skýrði þáverandi utanrrh., Bjarni Benediktsson, frá því, að skömmu áður hefði hann tjáð sendiherra Bandaríkjanna hér, að sú skoðun væri ríkjandi hjá ríkisstj, og stjórnarliði, að of dýru verði væri keypt dvöl hermanna hér á friðartímum fyrir það öryggi, sem við slíkt fengist. Einnig tilkynnti sami ráðh. við þetta tækifæri, að hann ásamt tveim samráðherrum sínum hefði þá nýlega lýst því yfir í áheyrn utanrrh. Bandaríkjanna, að ekki kæmi til mála, að útlendur her fengi að hafa aðsetur á Íslandi á friðartímum né yrðu þar leyfðar erlendar herstöðvar.

Þannig var heitstrengingin 1949, og með þessum fyrirvara var inngangan í Atlantshafsbandalagið afsökuð. Á þeim árum var mikið um opinbera svardaga, eins og frægt er orðið. „Það kemur ekki til mála, að útlendur her fái að hafa aðsetur á Íslandi á friðartímum né að þar verði leyfðar herstöðvar.“ Þessi var fyrirvarinn 1949, og vottuðu 3 íslenzkir ráðh., að á þennan fyrirvara hefði utanrrh. Bandaríkjanna fallizt. Síðan liðu tæp 2 ár, og þá komu bæði herstöðvar og her, rétt eins og aldrei hefði neinn fyrirvari verið gerður. Stríð var ekki skollið á, en samt kom herinn. Hreystiyrðin frá 1949 voru rokin út í veður og vind, voru dauð og ómerk. Í þeirra stað komu nú vífilengjur um slæmar friðarhorfur og nauðsyn þess að taka tilboði Bandaríkjanna um herstöðvar og varnarlið. Neyðarráðstöfun væri þetta að vísu, en annað samrýmdist ekki hagsmunum þjóðarinnar og öryggi landsins.

Þetta er aðeins eitt dæmi at mörgum um undanlátssemi íslenzkra valdamanna, ósjálfstæði þeirra gagnvart vissum erlendum öflum og þjónkun við annarlega hagsmuni. Auðvitað reyna þeir að klæða skömmina í sæmilegar flíkur og koma því svo fyrir, að allt sé þetta gert af illri nauðsyn og í þágu Íslendinga. Stundum gengur þó illa að hylja nekt staðreyndanna, og er þá gjarnan gripið til þess að teygja og toga merkingu orða og hugtaka. Þannig hefur orðið friður fengið á sig margar skilgreiningar.

Árið 1941 fullvissar ráðherra þjóðina um, að Bandaríkin skuldbindi sig til að hverfa af landi burt með allan herafla sinn, undireins og þáverandi ófriði lyki. Árið 1949 lýsti annar ráðh. því yfir, að hér yrðu aldrei leyfðar herstöðvar né herseta á friðartímum. Árið 1951 voru herstöðvar reistar og her fluttur inn í landið. Þá var því heitið, að herinn skyldi hverfa á burt, strax og friðarhorfur og ástandið í heimsmálum leyfði slíkt. Árið 1956 segir þáverandi utanrrh. og undirstrikar: Það er markmið Íslendinga, að hér sé ekki varnarlið á friðartímum. Að því skal unnið og undirbúningur hafinn þegar í stað, að þessu marki verði náð, svo fljótt sem friðarhorfur í heiminum leyfa slíkt. Sama ár sagði hæstv. núverandi dómsmrh., að það væri óhagganleg sannfæring sín, að við Íslendingar vildum frekar taka á okkur áhættuna af því að hafa landið óvarið en að hafa hér erlent herlið og erlendar herstöðvar í landinu á friðartímum.

Í þessum ummælum öllum er minnzt á frið, og friður er þar settur fram sem mikilsvert skilyrði. Í fyrstu tilvitnuninni er merking orðsins ótvíræð, þar er átt við heimsstyrjöld eða stórveldastríð, en í öllum hinum virðist merking orðsins harla óljós. Þar er friður og friðarhorfur látið tákna eitt og hið sama, a.m.k. í einni tilvitnuninni, og friðartímar ekki taldir vera, ef barizt er í einhverjum afkima heims eða útlit er fyrir uppreisn eða bardaga einhvers staðar. Hártoganir af þessu tagi eru veikar varnir slæmum málstað og ekkert annað. Það er staðreynd, að erlendur her dvelst hér á friðartímum. Fram hjá því verður ekki gengið, þótt reynt sé, enda mun sá verða dómur sögunnar.

Utanríkismálum okkar hefur verið ruddur óheppilegur farvegur, svo að ekki sé fastar að orði kveðið. Það er þeim óheppilegt að fljóta skilyrðislaust í sama farvegi og utanríkismál einnar tiltekinnar þjóðar, hversu góð og göfug sem sú þjóð kann að vera. Utanríkismál okkar þurfa og eiga að fá sinn eigin farveg. Skilyrði til þess, að svo megi verða, er það, að upp verði tekin sjálfstæð og markviss íslenzk utanríkisstefna, stefna, sem sé miðuð við helztu sérkenni þjóðarinnar og alla menningu hennar. Þjóðin á engin hergögn, engin tæki til múgmorða og vill ekki eiga. Hún getur ekki tekið þátt í ófriði og vill það ekki. Hún óskar þess að lifa í friði við aðrar þjóðir og vill gera sitt til að efla frið í heiminum. Sjálfstæði sitt vill hún varðveita og land sitt eiga ein, en engri þjóð sýna úlfúð eða ágengni.

Þessi eru sérkenni íslenzku þjóðarinnar m.a., og í samræmi við þau ber að móta utanríkisstefnu hennar, og það verður með engu móti gert öðru en fullkomnu hlutleysi í öllum hernaðarátökum og stöðu utan allra stríðsbandalaga. Ísland á að lýsa yfir ævarandi hlutleysi á ný og byggja síðan stefnu sína í utanríkismálum á þeim grunni. Það eitt hæfir þjóðinni. og það eitt sómir henni vel.

En hlutleysisstefnan er úrelt, segja okkar voldugu íslenzku NATO-menn. Hvað segja leiðtogar hlutlausra Evrópuríkja um þá fullyrðingu? Vilja þeir undirrita hana? Forseti Finnlands, Kekkonen, hefur sagt, að hlutleysið tryggði öryggi landsins og stuðlaði að verndun friðarins í heiminum. Fyrir fáum árum komst forseti Austurríkis svo að orði, að Austurríkismenn ættu að gæta hlutleysis síns eins og sjáaldurs auga síns. Samt ættu þeir ekki að láta sig alþjóðamál engu skipta. Austurríki ætti að láta rödd sína heyrast í þeim kór, sem varaði við hættunni af kjarnorkuhervæðingu og krefðist afvopnunar þjóða. Ekki eru heldur mörg ár síðan utanrrh. Svía, Undén, sagði við blaðamenn hér í Reykjavík eitthvað á þessa leið: Hlutleysi í átökum stórveldanna er grundvöllur sænskrar utanríkisstefnu, og það er skoðun okkar, að hernaðarbandalög auki hættu á árekstrum milli þjóða. Svíar gengu ekki í Atlantshafsbandalagið, af því að þeir töldu það rangt, og sú afstaða þeirra er óbreytt. — Þannig mæltist þessum sænska ráðherra fyrir fáum árum.

Nei, hlutleysi er ekki úrelt. Sú staðhæfing er haldlaus blekking manna, sem neyðast til að verja misgerðir. Því fleiri sem hlutlausu þjóðirnar verða í heiminum, því meir og betur munu friðaröflin njóta sín þar. Hlutlaust Ísland á veglegu hlutverki að gegna á alþjóðavettvangi. Þar ber því að stuðla að sáttum og friði, frelsi þjóða og jafnrétti. Ofbeldi og kúgun eiga fulltrúar Íslands að fordæma án tillits til þess, hvaða þjóð beitir slíku. Ísland vill afvopnun og frið og það vill vinsamlega sambúð við aðrar þjóðir, en það kaupir sér aldrei vináttu annarra ríkja neinu verði, sem ósamboðið er virðingu þess. Það er þessi stefna, sem skapar virðingu annarra þjóða. Einarðleg afstaða getur styggt í bili, en aldrei vakið fyrirlitningu. Þegar til lengdar lætur, mun Ísland hagnast á hlutleysisstefnunni.

Írland er eitt hinna hlutlausu ríkja í Evrópu. Árið 1955 gekk það í samtök Sameinuðu þjóðanna, og þar hefur það á skömmum tíma unnið sér verulegt álit heimsins einmitt vegna hinnar óháðu afstöðu sinnar til málanna. Fulltrúi þess tók eindregna afstöðu gegn Frökkum í Alsírmálinu og gagnrýndi Bandaríkin fyrir andstöðu við aðild Kína að Sameinuðu þjóðunum. Þessi fulltrúi gekk þar einnig fram fyrir skjöldu gegn kommúnistum í málum Ungverjalands og Tíbets, og hann hefur látið mikið til sín taka varðandi bann gegn kjarnorkuvopnum.

Hlutleysið er sá eini grunnur, sem við getum byggt farsæla utanríkisstefnu á og barizt fyrir með heiðri og sóma sem fullvalda ríki. En til þess að komast niður á þennan fasta grundvöll verðum við að losna úr læðingi þess hernaðarbandalags, sem við illu heilli flæktumst í fyrir 11 árum. Þangað áttum við aldrei neitt erindi. Hlutdeild okkar í því hlaut að verða okkur sjálfum til ills og engum til góðs. Atlantshafsbandalagið, eins og öll slík bandalög, torveldar möguleika á sáttum milli stórþjóða og stofnar þannig heimsfriði í hættu.

Það er margföld ástæða fyrir okkur Íslendinga til að ganga úr NATO. Sérhvert fullvalda ríki hlýtur að hafa rétt til að breyta um stefnu í utanríkismálum, enda getur þróun heimsmála gert breytingu óumflýjanlega. Á síðustu 11 árum hefur margt gerzt, og heimurinn er ekki sá sami nú og þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað. Vorið 1955 fengu Rússar vetnissprengjuna. Er það varð kunnugt, lýsti Churchill skoðun sinni í þingræðu á þessa leið:

Vörn gegn þessari nýju sprengju er óhugsanleg. Eftirleiðis verður aðeins um það að ræða að gjalda í sömu mynt. Ef Rússar tortíma íbúum Lundúna með vetnissprengju, verður því með engu svarað öðru en sams konar tortímingu í Moskvu.

Vörn er óhugsandi. sagði Churchill 1955, og það var rétt. Hafi nokkur þá viljað draga orð hans í efa, þá gerir sá hinn sami það ekki í dag. Á allra síðustu árum hefur flugskeytatækni Rússa fleygt svo fram, að nú geta þeir sent flugskeyti hlaðin kjarnorku- og vetnissprengjum heimsálfa á milli með þeirri markvísi, að nálega engu skeikar.

Þegar Íslendingar gengu í Atlantshafsbandalagið, var hernaðartæknin á allt öðru stigi en nú. Þess vegna má með sanni segja, að forsendurnar fyrir inngöngu okkar í bandalagið eru algerlega brostnar að þessu leyti. Hafi einhverjir varnarmöguleikar verið til árið 1949 hér á landi, þá eru þeir engir til nú á árinu 1960. Aðeins þetta eitt réttlætir fyllilega endurskoðun okkar á aðildinni að hernaðarbandalaginu, og raunar er sú endurskoðun skylda, sem þyngst hvílir á herðum valdhafanna hér.

Ég gat þess fyrr, að Bretar og Bandaríkjamenn og raunar allar bandalagsþjóðirnar hefðu þegar brotið á okkur samninga, sumar einu sinni, aðrar oftar. Þau samningsbrot eru mjög alvarlegs eðlis. Þegar samningur er rofinn herfilega, er þá ekki sá, sem fyrir svikunum verður, laus allra mála? Ég með minni leikmannsþekkingu hefði haldið það. Vegna þessara samningsrofa og alls hins ólöglega yfirgangs er það ekki aðeins réttur Íslendinga, heldur og skylda að segja sig úr Atlantshafsbandalaginu. Það er framtíð lands og þjóðar hættulegt, að áttavilltir leiðtogar okkar haldi áfram að kyssa á hinn erlenda vönd.

Nýlega var bandarísk njósnaflugvél skotin yfir umráðasvæði Sovétríkjanna. Það upplýstist m.a. að sögn, að þessi flugvél hefði átt að lenda í Bodö í Noregi og að norsk yfirvöld hefðu enga hugmynd haft um það áform. Í blaði las ég, að sovézkir ráðamenn hefðu í tilefni þessa atburðar haft í hótunum við þau ríki, er land sitt léðu til þarfa njósnaflugs.

Hvað hefur í þessu efni gerzt á Keflavíkurflugvelli, og hvað kann að gerast? Áreiðanlega hafa íslenzk stjórnarvöld enga hugmynd um það frekar en norsk um notkun Bodö-flugvallarins. Máske væri hugsanlegt. að héðan yrðu sendar bandarískar njósnarflugvélar yfir Rússland. Ef það kæmi fyrir, þá gætum við vænzt þess, að Rússar gerðu alvöru úr tilkynningu sinni og sendu flugsprengju á Keflavíkurvöll. Hvað mundu Bandaríkjamenn gera, ef þetta kæmi fyrir? Þeir mundu í hæsta lagi mótmæla, enda gengi annað vitfirringu næst. Færu þeir að gjalda í sömu mynt, standa við Atlantshafsbandalagssamninginn, þá væri skriðan komin yfir þá sjálfa og tortíming bandarískra stórborga vís. Þess vegna mundu þeir ekki gera annað en mótmæla, þótt eitt af útvirkjum þeirra yrði jafnað við jörðu. Bandaríkjamenn réttu okkur ekki hjálparhönd, þegar Bretar tóku að herja í landhelgi okkar, og bar þeim þó að gera það skv. Atlantshafssamningnum. Enn síður mundu þeir leggja í stríð okkar vegna, þótt Rússar sendu hingað sprengjur, enda væri það sama og að stofna lífi milljóna bandarískra borgara í beinan voða. Engin ábyrg bandarísk stjórnarvöld gætu leyft sér slíkt.

Þannig er ákvæði Atlantshafssamningsins um, að árás á einn aðila þess sé árás á þá alla, ekki annað en orðaglamur, marklaust, þegar til kastanna kæmi. Hernaðartæknin hefur þegar numið þetta ákvæði úr gildi. Forsendurnar fyrir þessu bandalagi eru, eins og ég tók fram áðan, fallnar burt, og það eitt gæti réttlætt úrsögn okkar úr því. Hvað sem segja mátti 1949, þá er augljóst nú, að Atlantshafssamningurinn er ekki virði þess pappírs, sem hann er skrifaður á, öðruvísi en sem sögulegt gagn í skjalasafni.

Herstöðvar hér á landi hafa aldrei verið hugsaðar til verndar íslenzkum mannslífum. Frá upphafi hafa þær boðað byggjendum þessa lands alvarlega hættu. Þær voru reistar og mannaðar til verndar allt öðru fólki en Íslendingum. Fyrst og fremst eru þær útvirki Bandaríkjanna og ætlaðar þeim til varnar og sóknar í stríði. Að þessi er tilgangurinn með þeim, sýna og sanna ótal ummæli bandarískra áhrifamanna, og hefur fjöldi þeirra ummæla verið birtur hér á landi. Því tel ég ekki ástæðu til að rekja þau frekar hér nú. Þetta hlutverk herstöðvanna er einnig ljóst mönnum annarra þjóða. Í því sambandi er mér minnistætt það, sem einn af foringjum brezka verkamannaflokksins sagði við íslenzkan blaðamann fyrir fáum árum, en orðin voru á þessa leið:

Ég skil það mjög vel, að Íslendingar vilji losna við bandarískt hernám. Bandarískt hernám geta þeir einir stutt, sem eru reiðubúnir til að fórna landi sínu og þjóð í þágu Bandaríkjanna í nýrri styrjöld.

Þannig leit þessi brezki verkamannaleiðtogi á málið, og í öðru ljósi en þessu getur enginn heilskyggn maður séð það. Formælendur hernámsins hér á landi hafa mörg falsrök notað í áróðri sínum. Þeir segjast vilja hafa hér herlið á stríðstímum og þegar ófriðlega blási í heiminum. Hvers vegna? Sjálfsagt vilja þeir láta í það skína, að það sé vegna þess öryggis, sem íslenzkum borgurum sé í her og herstöðvum á styrjaldartímum, þeim sé einhver mikilsverð vernd í því. Þessi falska röksemd er einhver sú kaldhæðnislegasta, sem ég heyri. Útlendur her er þjóðhættulegur á friðartímum, en lífshættuleg yrði vist hans hér þjóðinni, ef til heimsófriðar kæmi. Þetta ætti að vera ljóst hverju barni nú orðið. Ef það er hið raunverulega sjónarmið íslenzkra formælenda hernámsins að tryggja öryggi annarra þjóða manna, hvað sem það kostar þeirra eigin þjóð, þá eru það út af fyrir sig skárri rök eða voru skárri rök. Útvirkin hafa verið hernaðarlega mjög mikilvæg, en þýðing þeirra fer nú ört minnkandi, svo sem kunnugt er. Áður hófust stríðin í útvirkjum og á landamærum, en eftirleiðis er gert ráð fyrir, að þau byrji með stórárásum á viðkvæmustu blettina, svo sem stórborgir, iðjuver og mikilsverðustu herbækistöðvar, hvar sem þær liggja. Stórborgir Bandaríkjanna gætu þótt ekki síður eftirsóknarverð skotmörk en útvirkið Ísland.

Einhverjir NATO-menn hérlendis hafa reynt að slá á þá strengi, að Atlantshafsbandalagið væri vörður friðarins, að friðurinn væri undir vopnastyrk þess kominn. Þetta er sama og að halda því fram, að friður verði aðeins varðveittur með vopnum. Þetta er hættuleg falskenning — ein af mörgum. Ekkert er friði eins varasamt og vígbúnaðarkapphlaupið. Slíkt kapphlaup hefur alltaf og mun alltaf enda í styrjöld. Þetta viðurkenna raunar allir nema þá NATO-mennirnir á Íslandi. Leiðtogar þjóða í austri og vestri þykjast vilja afvopnun og vilja hana máske, og það kemur til af því, að þeir reyna ekki að dylja það reynsluatriði, að vígbúnaðaræðið endar ávallt á einn veg — í styrjöld.

Það er sama, hvernig þessum málum er velt, allt kemur í einn stað niður. Hagsmunir okkar hafa verið fótum troðnir og með okkur á allan hátt farið á hinn óvirðulegasta hátt. Bandaríkjamenn hafa verið ágengir og skarað eld að sinni köku. Íslenzk stjórnarvöld hafa verið undanlátssöm og þannig staðið illa á verðinum um hagsmuni þjóðar sinnar, og eiga þau fyrst og fremst sökina. Ísland átti aldrei að farga hinu dýrmæta hlutleysi sínu, það átti aldrei að ganga í hernaðarbandalag, það átti ekki að ljá land sitt undir útlendar herstöðvar né leyfa hermönnum dvöl, það átti aldrei að gera afstöðu Bandaríkjanna til heimsmála skilyrðislaust að sinni afstöðu í stóru og smáu.

Öll hafa þessi mistök orðið til þess að skerða sjálfstæði landsins hættulega, sjálfsvirðingu þess og álit út á við, þannig að nú situr það við sama borð og önnur leppríki í heiminum. Þjóðinni er það lífsnauðsyn nú að láta af fortakslausri hlýðnisafstöðu sinni við Bandaríkin og hætta að vera taglhnýtingur þeirra. Taka verður upp aðra stefnu í utanríkismálum, stefnu afvopnunar og friðar, stefnu manndóms og sjálfstæðis, stefnu hlutleysis og fullveldis. Íslandi ber að ástunda vinsamleg samskipti við aðrar þjóðir. Það er röng stefna, að Ísland sé látið ógna nokkurri þjóð með her og herstöðvum, og það er umfram allt rangt að láta landsréttindi föl fyrir vináttu, enda verður slík keypt vinátta ævinlega haldlaus, þegar á reynir. Þetta hafa Íslendingar þegar mátt reyna átakanlega.

Burt með her af íslenzkri grund. Afmáum þá svívirðingu, sem herstöðvar í landi okkar eru. Segjum skilið við stríðsbandalagið, sem okkur hefur brugðizt, hvenær sem á reyndi og aldrei getur orðið okkur annað en til álitshnekkis og auðmýkingar. Lýsum á ný yfir ævarandi hlutleysi Íslands og reisum á þeim grunni farsæla, sjálfstæða og drengilega utanríkisstefnu.