03.02.1960
Sameinað þing: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í D-deild Alþingistíðinda. (3102)

901. mál, efnahagsmálaráðuneyti og iðnaðarmálaráðuneyti

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mér þykir vænt um að fá tilefni til þess að láta það koma hér alveg skýrt fram, að þegar Jónas H. Haralz var ráðinn efnahagsmálaráðunautur stjórnar Hermanns Jónassonar á sínum tíma, þá var hann ráðinn í þjónustu íslenzka ríkisins, en ekki eingöngu þeirrar ríkisstj., sem þá sat. Á því var ekki minnsti vafi, hvorki í augum þáv. ríkisstj., ráðherra né hans, að ráðning hans væri ótímabundin, hann væri ráðinn til þess að vinna í þágu stjórnarinnar, sem þá sat, þeirrar, sem eftir kæmi, og annarra ríkisstj., sem sætu, meðan hans starfs gæti notið við. Hann var því að sjálfsögðu ráðinn til frambúðar til starfa í þágu íslenzkra stjórnarvalda, og það hafa engar breytingar orðið á launakjörum efnahagsmálaráðunautsins eða ráðuneytisstjórans, síðan hann fyrst var ráðinn til landsins. Um hans launakjör gilda enn þeir samningar, sem ríkisstj. Hermanns Jónassonar gerði við hann á sínum tíma.

Að því er það snertir, sem hv. 7. þm. Reykv. sagði, að það væri tíðkanlegt annars staðar að skipta um ráðunauta við stjórnarskipti, þá kann það rétt að vera að nokkru leyti. Hitt er líka rétt, að í þágu allra ríkisstj., sem ég þekki til í nálægum löndum, starfa fastir ráðunautar í efnahagsmálum, nokkur hluti ráðunautanna er fast starfslið líkt og það, sem við erum nú að koma okkur upp í stjórnarráðinu íslenzka með stofnun efnahagsmrn. Hitt er svo annað mál, að sá hópur manna, sem í nálægum löndum starfar að slíkum störfum, er svo stór, að þar gefst tilefni til þess að breyta einnig nokkuð til, og það er mjög algengt, t.d. í Bretlandi, eins og ég veit að hv. þm. er fullkunnugt um, að þar hafa ráðherrar persónulega ráðunauta, sem eru þá samflokksmenn þeirra og fylgja þeim að ráðherrastólnum og frá honum aftur. Þetta á sér stað til viðbótar því fasta starfsliði í efnahagsmálum, sem starfar fyrir allar ríkisstjórnir, hverjar svo sem þær eru. Hér hefur þessum málum háttað þannig um mörg undanfarin ár, — eða síðan 1946, en þá mun í fyrsta skipti hafa verið leitað með skipulegum hætti til hóps af hagfræðingum til þess að vinna fyrir stjórnarráðið eða fyrir ríkisstj., og því hefur verið haldið áfram síðan, — að sá hópur manna, sem við hér höfum ráð á til slíkra starfa, er svo fámennur, er svo takmarkaður, að allar ríkisstj., sem hér hafa setið, hafa leitað til næstum sömu mannanna. Síðan 1946 hefur verið mjög svipaður hópur sérfræðinga og embættismanna, sem starfað hefur fyrir ríkisstj., hverjar svo sem þær hafa verið, hvaða flokkar sem að þeim hafa staðið. Það er mjög ánægjulegt að geta sagt það, að á þessu ekki langa árabili hefur orðið hér til, ég vil ekki segja stétt, — orðið hér til hópur sérfræðinga í þessum málum, sem allar ríkisstj. hafa talið sér fært að treysta að fullu, algerlega án tillits til þess, hvaða flokkar hafa myndað ríkisstj. og til hvaða flokka menn kunna að hafa talið ráðunautana, sem hlut hafa átt að máli, og ber þetta sannarlega íslenzkri embættismannastétt mjög gott vitni.

Ég fullyrði, að sá embættismaður, sem hér hefur mest borið á góma, Jónas Haralz ráðuneytisstjóri, hefur alls engin afskipti af stjórnmálum og er algerlega ópólitískur maður. Þó að ég hafi daglega samskipti við hann í viðskmrn., þar sem hann er ráðuneytisstjóri, er mér ekki kunnugt um, hvaða stjórnmálaskoðun hann hefur. Það ber aldrei á góma milli okkar, og mér er það jafnóviðkomandi og hann leggur lítið upp úr því að láta í ljós skoðanir sínar á þeim málum. Ég endurtek því, að hann hefur engin afskipti af stjórnmálum, og það er tvímælalaust rétt, þegar ég segi, að hann sé algerlega ópólitískur maður.