10.02.1960
Sameinað þing: 15. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í D-deild Alþingistíðinda. (3120)

902. mál, skattfríðindi við störf í þjónustu útflutningsframleiðslunnar

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Hv. 1. þm. Vestf. lýsti þeirri skoðun sinni, að hann væri á móti því að fella niður þessi ákvæði, sem hér hefur verið rætt um, og er ég honum sammála um það. Hann taldi þá skattanefnd, sem hann á sæti í út af þessum málum, hafa litið svo á eða a.m.k. suma þeirra, að þessi ákvæði laganna giltu ekki um tekjur manna, sem aflað er á árinu 1959, og hefði því ekki átt að framkvæma þessi ákvæði laganna í ársbyrjun 1960, heldur kæmi það fyrst til 1961. Ég hygg, að þetta sé misskilningur hjá hv. þm. og skal rökstyðja það með fáeinum orðum.

Greinar þessar í lögunum eru fluttar sem brtt. frá okkur hv. 5. núverandi þm. Norðurl. e. (BjörnJ) í Ed. í fyrra. Við höfðum ekki í till. okkar þetta ákvæði, að þessar greinar tækju ekki gildi fyrr en 1. jan. Við ætluðumst til, að þær tækju gildi strax eins og lögin sjálf. Þá var það, að þáverandi fjmrh. andmælti þessum till. eingöngu á þeim grundvelli, að það væri ekki hægt að framkvæma þær á því ári, en þá var ekki búið að leggja á skatta, þegar lögin voru samþ. 14. apríl.

Þegar þessi gagnrýni hafði komið fram hjá hæstv. þáverandi fjmrh., fluttum við skriflega brtt. við okkar eigin till., að þessi ákvæði kæmu til framkvæmda 1. jan. 1960, til þess að þarna yrði ekki árekstur. Við það hafði hæstv. fjmrh. ekkert að athuga, ekki heldur núv. hæstv. fjmrh., sem þá átti sæti í Ed., og þetta ákvæði var samþykkt án nokkurs mótatkvæðis. Þrátt fyrir það kemst hæstv. fjmrh. nú að þeirri niðurstöðu, að þessi ákvæði séu bæði óskýr og grautarleg og þurfi að afnema þau. Það er því engum blöðum um það að fletta, að þau áttu að koma til framkvæmda frá og með 1. jan. 1960, og það hafði enginn af hv. þdm. Ed. neitt við þau að athuga, þegar þessi till. var flutt þá, ekki heldur þeir, sem nú gagnrýna þau.