10.02.1960
Sameinað þing: 15. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í D-deild Alþingistíðinda. (3127)

902. mál, skattfríðindi við störf í þjónustu útflutningsframleiðslunnar

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Mér finnst sannast sagna þessar umr. hér vera næsta einkennilegar og ástæðulitlar. Ég held, að það ætti að geta legið í augum uppi, sem hæstv, fjmrh. sagði áðan og enn fremur hv. 4. þm. Reykn. (JSk) tók undir, að það sé auðvitað í fyllsta máta óeðlilegt og geti ekki orðið neinum til gagns að fara að gefa út reglugerð og leggja á marga aðila í landinu sérstakar kvaðir, ef það reynist svo, að það sé í algeru tilgangsleysi gert, vegna þess að það sé ekki ætlunin að framkvæma hlutina, eins og reglugerðin gerir ráð fyrir.

Ég skil ekki í, hvað sem menn annars álita um þetta atriði, hvort eigi að undanþiggja eftirvinnu skatti eða ekki, að nokkur maður raunverulega geti deilt um þetta atriði að það sé í fyllsta máta óeðlilegt að hafa þau vinnubrögð á, og af þeim sökum sé hæstv. fjmrh. á engan hátt ámælisverður fyrir að hafa ekki gefið út þessa reglugerð, ef fyrirhugað er, eins og upplýst hefur verið, að leggja til, að þessu ákvæði verði breytt. Það er svo aftur allt önnur saga, hvort menn vilja láta breyta þessu ákvæði, og það kemur vafalaust til athugunar, þegar till. um þetta koma fram, hvort menn vilja þar halda því eða ekki og gera þá brtt. við frv. ríkisstj., þegar það kemur fram um það efni. En um þetta atriði get ég ekki skilið að sé hægt að ásaka einn né neinn, sem á þessum málum hefur haldið, og mér finnst ákaflega óviðeigandi, að verið sé. eins og var gert áðan af einum hv. þm., að bera sakir á skattstjórann í Reykjavík fyrir það, að hann hafi framið vitaverðan verknað með því að ganga frá reglugerð eins og hann lagði til að hún yrði.

Hv. þm., sem hér talaði áðan, 11. landsk. (GJóh), sagði, að þessi lagaákvæði væru svo ótvíræð, að það hefði ekki átt að vera erfitt að semja þessa reglugerð, og það væri einkennilegt. að það skyldi þurfa að deila um þetta. Ég held nú sannast sagna, að það væri ákaflega einkennilegt, ef ekki væri hægt að deila um þau, vegna þess að það hlýtur að vera erfitt að átta sig á því, hvernig á að túlka þau, það lá í augum uppi, þegar þau voru sett, og ég held, að engum hafi blandazt hugur um í fyrra, að um það yrðu stórfelldar deilur, hvernig ætti að skýra þau. Hv. 2. landsk. þm. (EðS) t.d. vék hér áðan að ýmsum aths., sem hann og tveir starfsbræður hans hefðu komið fram með við reglugerðina, og þar kom einmitt glöggt fram það, sem eðlilegt var að risu spurningar um. Hann t.d. taldi, að það væri eðlilegt, að viðgerðarmenn í íshúsum féllu undir þessa reglugerð. En ég segi: er þá ekki nákvæmlega með sama rétti hægt að segja um viðgerðarmenn á öðrum verkstæðum, t.d. sem gera við skip, þannig að þau séu sjófær og fær til að gegna sínu hlutverki, að þeir vinni í þágu útflutningsframleiðslunnar? Og orðalagið „í þágu útflutningsframleiðslunnar“ er svo víðtækt, að það má í rauninni segja, að meginhluti þjóðarinnar gæti fallið þarna undir. Ég skal ekki segja, hvort það hefur verið hugsun flm. þessa máls í upphafi, að það yrði þannig skilið, — ég efast stórlega um, að það hafi verið.

Það var á það bent áðan af hv. 4, þm. Reykn., sem rétt var, hversu erfitt væri varðandi skilgreiningu á útflutningi í sambandi við landbúnað. Ég held, að það liggi í augum uppi, að það væri gersamlega óframkvæmanlegt að finna reglu til að láta gilda varðandi útflutning landbúnaðarafurða. Hvað um bifreiðastjóra, sem flytja landbúnaðarafurðir til skips, skulum við segja, til útflutnings, og bifreiðastjóra, sem aka fiski að og frá fiskvinnslustöðvum? Svona má endalaust um þetta deila, þannig að ég held, að það sé ekki hægt að saka skattstjórann í Reykjavík né starfsmenn fjmrn, eða aðra, sem um þessi mál hafa fjallað, þó að þeir segi, að það sé erfitt að átta sig á, hvað þarna sé raunverulega að baki. Og ég held það sé ósköp eðlileg afstaða hjá skattstjóranum í Reykjavík, einmitt af því að ákvæðin eru svona óljós, að þá verði að skýra þau þröngt. Það er hin almenna lögskýringarregla.

Ég skal ekki að öðru leyti um það segja, hvort rétt er eða rangt að fylgja þessari reglu um það, að þeir, sem starfa í þágu útflutningsframleiðslunnar og vinna þar aukavinnu, eigi að njóta þessara fríðinda og aðrir ekki. Það fer ákaflega mikið eftir því, hve vítt þetta hugtak á að skilja, og það eitt er víst, að í mörgum tilfellum þykja það hlunnindi hjá fólki að fá að vinna eftirvinnu, þannig að þetta er ekki eingöngu, þó að það séu vissulega einnig rök þar að baki, að það séu erfiðleikar á því að fá fólk til að vinna þessa vinnu. Og ég er ákaflega hræddur um, að það sé rétt, sem þeir þrír verkalýðsleiðtogar, sem undirrituðu þá álitsgerð, sem hæstv. fjmrh. hér gat um, segja í upphafi sinnar álitsgerðar, að þetta ákvæði sé ákaflega líklegt til þess að valda óánægju fyrir það, hversu það mismuni vinnandi fólki.

Ég skal að öðru leyti ekki blanda mér inn í þessar umr. En ég gat ekki stillt mig um að benda á þessi atriði, af því að það er efni málsins varðandi þessa fsp., hvort þessi reglugerð hafi verið gefin út eða ekki. Mér sýnist það hljóti allir sanngjarnir menn að geta viðurkennt, að það hefði verið í fyllsta máta óeðlilegt, úr því að stendur til að leggja til að breyta þessum lögum, að fara að gefa út þessa reglugerð, eins og sakir standa.