22.03.1960
Neðri deild: 52. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í B-deild Alþingistíðinda. (313)
88. mál, söluskattur
Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Við 2. umr. um frv. lét ég þess getið, að ég mundi taka til athugunar fyrir 3. umr. að flytja einhverjar brtt. við það. Við höfum nú leyft okkur, ég og hv. 2. þm. Sunnl. og hv. 5. þm. Norðurl. v., að leggja fram brtt., sem eru í prentun, en ekki komnar enn til útbýtingar í d. Verð ég því fyrir okkar hönd að leggja þessar brtt. fram skriflegar og fara fram á við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða fyrir þeim, þannig að þær geti komið hér til meðferðar.
Ég vil með örfáum orðum gera grein fyrir þessum brtt. okkar. Brtt. eru við 6. og 17. gr. frv. Við 6. gr. eru þrjár brtt. Í fyrsta lagi till. um það, að kjöt og fiskur verði undanþegið söluskatti eins og nýmjólk. Það er sannarlega langt gengið að ætla að skattleggja þessar almennu neyzluvörur, sem öll heimili landsins nota allan ársins hring á hverjum degi. Við leggjum til, að 2. tölul. 6. gr. orðist þannig: „Nýmjólk, kjöt og fiskur, nema um veltingasölu sé að ræða.“
Þá er önnur brtt. við sömu frvgr., að á eftir 12. tölul. komi nýr tölul., þannig: „Dráttarvélar (traktorar) og aðrar heyvinnuvélar.“ Í þessu felst það, að þessi nauðsynlegu tæki til landbúnaðarins verði undanþegin söluskatti á sama hátt og ýmsar þær vörur, sem taldar eru upp í 6. gr. Ég hef áður í umræðum um þetta frv. skýrt frá því, hve geysimikil verðhækkun verður á nauðsynlegum vélum og tækjum, bæði vegna gengisbreyt. og einnig söluskattsins, sem hér er verið að fjalla um. Þessar vélar eru nauðsynlegar fyrir bændurna. Það er ekki hægt nú á tímum að reka landbúnað nema hafa þessi tæki. Það er þegar allmikið til af þeim í landinu. Þó munu þau heimili allmörg vera í sveitum, sem hafa ekki dráttarvélar og þurfa vitanlega eins og önnur að fá þær. Einnig má á það benda, að þetta eru tæki, sem ganga úr sér, og þess vegna þarf árlega að flytja inn allmikið af slíkum vélum til endurnýjunar fyrir þær, sem ónothæfar verða. Og sé um það að ræða, að menn, sem áður hafa stundað aðra atvinnu, hefji búskap, þá þurfa þeir vitanlega að ná sér í slík tæki. Við leggjum til, að þessi tæki verði undanþegin söluskattinum.
Þá er í þriðja lagi lagt til, að síðari málsgr. 6. gr. orðist þannig: „Endurgreiða skal söluskatt af efni, vinnu, vélum og tækjum í skip og báta, sem smíðaðir eru innanlands. Má miða endurgreiðsluna við tiltekna fjárhæð á rúmlest.“ Eins og mgr. er orðuð nú í frv., er þar aðeins um að ræða heimild til að endurgreiða þetta, en við teljum rétt, að það sé ákveðið í l., að söluskattur af þessu sé endurgreiddur.
Þá er brtt. við 17, gr. Í 2. mgr. þeirrar greinar segir svo: „Undanþegnar söluskatti af innfluttum vörum eru vörur þær, sem 2. gr. tollskrárlaganna tekur til, einnig viðgerðir á skipum og flugvélum framkvæmdar erlendis og flugvélavarahlutir.“ Við leggjum til, að við þessa mgr. bætist: „enn fremur dráttarvélar (traktorar) og heyvinnuvélar, svo og vélar í skip og báta, sem smíðaðir eru innanlands.“ Þetta er í samræmi við brtt. okkar við 6. gr. frv.
Í bráðabirgðaákvæði frv. er gert ráð fyrir því, að innheimta skuli til viðbótar 7% söluskatti samkv. 17. gr. 8% af tollverði allrar innfluttrar vöru að viðbættum aðflutningsgjöldum og áætlaðri álagningu 10%, eins og þar segir, og síðan segir, að ákvæði III. kafla l. skuli gilda um þennan viðbótarskatt. Við lítum svo á, að það leiði af sjálfu sér, að ef samþ. verður brtt, okkar við 17. gr. um að undanþiggja þær vélar, sem þar eru nefndar, 7% gjaldinu, þá muni þær líka verða undanþegnar þessu viðbótargjaldi, vegna þess að í bráðabirgðaákvæðinu segir, að þetta skuli vera til viðbótar 7% söluskattinum og að ákvæði III. kafla l. skuli gilda um þennan viðbótarskatt. Verði því ákveðið í III. kafla l. að undanþiggja þessar vélar 7% skattinum, þá gildir samkv. þessu það sama um viðbótarskattinn, hann kemur þá vitanlega ekki heldur á þessar vélar.
Að sjálfsögðu hefði verið ástæða til þess að gera hér tillögur um að fella margt fleira undan þessum skatti. Við höfum þó ekki gengið lengra en þetta í okkar brtt., þar sem okkur er ljóst, að það muni vera þýðingarlaust að bera fram brtt. um mikla röskun á þessu frv., en gerum okkur þó vonir um, að þessar undanþágur, sjálfsögðu undanþágur að okkar dómi, verði veittar, væntum þess, að hv. d. geti á það fallizt.