23.03.1960
Sameinað þing: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í D-deild Alþingistíðinda. (3138)

96. mál, niðurgreiðsla fóðurbætis

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er sennilega alveg tilgangslaust að reyna að svara þessari fsp. þannig, að hv. fyrirspyrjandi láti sér nægja svörin, en ég svara þá til þess, að aðrir hv. þm. geri sér grein fyrir því, hvernig þessum málum er varið, og ég reyndar efast ekkert um það, að aðrir hv. þm. en hv. 1. þm. Vesturl. (AB) hafa gert sér grein fyrir því, að svör mín áðan voru algerlega fullnægjandi. Þar var ekki farið með neina tæpitungu. Ég las upp, hvað innfluttur áburður mundi kosta, ef ekkert væri að gert í þessum málum. Ég las einnig upp, á hvaða verði áburðurinn mundi sennilega verða seldur, enda þótt ekki væri enn búið að ákveða þetta formlega. Það er hreinn misskilningur hjá hv. fyrirspyrjanda, að þetta mál sé óleyst innan ríkisstj, Þar er ekki um neinn ágreining að ræða. Það hefur verið tekin ákvörðun um að greiða áburðinn niður að vissu magni, eins og ég hef lýst yfir fyrir mörgum vikum, Og enda þótt ekki sé búið að ákveða formlega áburðarverðið og ég orði það svo hér, að þær tölur, sem ég áðan las upp, verði sennilega þessar, þá er það þannig, að ekki getur þar skeikað nema örlitlu, þannig að ég tel ekki ástæðu til þess að vera að lesa það upp aftur. Það sjá allir, að hér er um verulega lækkun að ræða, þannig að í staðinn fyrir 50% hækkun á áburðinum, eins og hv. fyrirspyrjandi orðaði hér áðan, eða jafnvel 60%, þá mun meðalhækkunin verða í kringum 14–15%. Það er því ástæðulaust, að ég held, vegna annarra hv. þm. að tala skýrar um þetta. En ef hv. 1. þm. Vesturl. vill ekki skilja það, þá ætla ég ekki að reyna að koma því inn í höfuðið á honum.

Í sambandi við fóðurbætinn er það, að ég er hér með bréf, eins og ég sagði áðan, frá öðrum stærsta fóðurbætissala landsins, þar sem skýrt er fram tekið, hvaða verð er í dag á fóðurblöndunni, og það er hækkun upp á 12.8%. Það er sagt skýrt í þessu bréfi, að þegar öll hækkunin sé komin fram, þá muni hækkunin verða 14–15%. Til þess að fyrirbyggja misskilning, þá sagði ég áðan, að maísmjölið mundi hækka um 19–20%, en það eru fáir, sem gefa það eingöngu, og ekki heldur bóndinn í Ásgarði, og þess vegna er það, sem máli skiptir fyrir bændur, hvað fóðurblandan kostar, og hún kostar þetta og hækkar um 14–15% í staðinn fyrir 46–47%, sem fóðurbætirinn hefði hækkað, ef ekkert hefði verið að gert.

Eru þetta ekki fullnægjandi svör? Ég held, að ekki sé hægt því að neita. En það er ánægjulegt, hversu áhugasamur hv. 1. þm. Vesturl. er nú um að gera bændum léttara fyrir að kaupa fóðurbæti og áburð. 1958 um vorið hækkaði fóðurbætir og áburður mjög svipað og nú með 55% gjaldinu. En ég minnist ekki þess, að hv. 1. þm. Vesturl. hafi imprað á því að lækka þessar vörur í verði þá, enda þótt hann hefði þá góða aðstöðu, þar sem hann studdi stjórnina, því að ég er ekki enn þá sammála framsóknarmönnum um það, sem oft hafa haldið því fram, að þeir fái nú fyrst völdin, þegar þeir eru komnir úr stólunum. Þegar þeir eru utan stjórnar, fara þeir að þakka sér fyrir allt, sem er vel gert. Þá eru það þeir, sem pína valdhafana til þess að gera allt, sem talið er gott, og við minnumst þess frá því í vetur, að það var þeim að þakka, að lausn búnaðarmálanna fór vel úr hendi. og vitanlega verður það þeim að þakka nú, að áburður og fóðurbætir verður lækkaður í verði. Auðvitað. Hverjum skyldi það vera öðrum að þakka? Ekki gátu þeir gert það, á meðan þeir höfðu völdin. enda þótt hækkunin 1958 væri svo mikil þá, að það hefur sligað bændur. Og einmitt vegna þess, hvernig afkoma bænda var í lok síðasta árs, eru þeir ekki færir um það í dag að kaupa áburð og fóðurbæti á því verði, sem þyrfti að selja þetta fyrir.