30.03.1960
Sameinað þing: 32. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í D-deild Alþingistíðinda. (3146)

96. mál, niðurgreiðsla fóðurbætis

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég endurtek það, það gleður mig, að hæstv. ráðh. fordæmir eyðslulán, en gleðst yfir uppbyggingarlánum, og ég vona, að hann lifi eftir þeirri reglu. En gæta má hann sín í þeim félagsskap, sem hann er í. En það var ekki þetta, sem ég ætlaði samt að ræða um hér. Ég vil endurtaka þetta: Er það rétt, að fóðurbætirinn sé greiddur niður 30–35% og áburðurinn um 35%? Er þetta rétt skilið hjá mér? Þetta vil ég fá upplýst og í leiðinni, hvað það er þá mikil fjárhæð, sem fer til þessara niðurgreiðslna, hvorrar tegundarinnar um sig.