30.03.1960
Sameinað þing: 32. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í D-deild Alþingistíðinda. (3151)
96. mál, niðurgreiðsla fóðurbætis
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ekki þarf að kvarta um það, að þetta sé ekki reglulegur fyrirspurnatími, því að nú spyrja ekki aðeins þingmenn, heldur spyrja nú einnig þeir ráðherrar, sem eiga að svara, svo að þetta eru orðnar eintómar spurningar, og ætlun mín er auðvitað að bæta fleiri spurningum við.
Það hefur verið upplýst af hæstv. ráðh. utan þings eða á öðru þingi, að niðurgreiðslur verði auknar á fóðurbæti. En hér er hann spurður um, hve miklu þessar niðurgreiðslur nemi á kg eða á 100 kg, og hann fæst ekki til þess að svara, en spyr þingmenn ýmissa spurninga í reikningslist og ætlast svo til þess, að þeir svari. Nú er vitað, að einhvers staðar verður hæstv. ráðh. að taka þessar auknu niðurgreiðslur á fóðurbæti, sem hann hefur upplýst að verði teknar. Og hann vísar til ákveðinnar upphæðar á fjárlögum. Er það þá ekki rétt, að hann ætli sér að taka þessar auknu niðurgreiðslur á fóðurbætinum af þeirri upphæð, sem ætluð hefur verið til niðurgreiðslu á mjólk? Er hundurinn grafinn þarna? Á að minnka niðurgreiðslur á mjólk og taka fé af því niðurgreiðslufé til þess að greiða fóðurbætinn niður? Ég vildi nú óska þess, að ég fengi upplýsingar, en ekki nýjar spurningar frá hæstv. ráðh. viðvíkjandi þessu atriði.