06.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í D-deild Alþingistíðinda. (3168)

904. mál, vörukaupalán í Bandaríkjunum

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Fyrsta spurningin er á þessa leið: „Hverju nemur nú samtals andvirði þeirra vara, sem keyptar hafa verið frá Bandaríkjunum skv. sérstökum vörukaupasamningum (P. L, 480)?“ Svarið er á þessa leið: Andvirði þeirra vara, sem keyptar höfðu verið 1. maí 1960 og greiddar hafa verið í Landsbankanum, nemur samtals 180 millj. 709 þús. kr.

Önnur spurningin er á þessa leið: „Hve mikið af andvirðinu verður til útlána í landinu, og hve miklu hefur þegar verið ráðstafað og til hvaða framkvæmda?“ Svar við þessu er á þá leið, að af andvirðinu má verja til útlána innanlands alls 143 millj, 349 þús. kr. Af þessari fjárhæð hefur þegar verið ráðstafað tæpum 84 millj. kr. Það skiptist sem hér segir: til virkjunar Efra-Sogs 72.7 millj., til rafmagnsveitna ríkisins 10 millj. og til einkafyrirtækja 1.3 millj., samtals rétt um 84 millj. kr.

Þriðja spurningin er á þessa leið: „Hve miklar vörukaupaheimildir eru ónotaðar, og hve mikið lánsfé fellur til skv. þeim? Hefur ríkisstj. gert áætlanir um, hvernig því lánsfé verði varið?“ Andvirði ónotaðra kaupheimilda, sem nú eru í gildi og ætla má að notist á þessu ári og fyrstu mánuðum ársins 1961, er 73 millj. rúmar. Þar af má ætla að verði til útlána innanlands um 55½ millj. kr. Ákvarðanir hafa ekki enn verið teknar um ráðstöfun þessa fjár.