04.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í D-deild Alþingistíðinda. (3182)
906. mál, reikningar ríkisins í seðlabankanum
Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Þegar efnahagsmálalöggjöfin var sett eða flutt, var því lýst yfir af hæstv. ríkisstj., að einn liður í hinni nýju stefnu væri sá að taka upp nýja útlánapólitík, og ýmsar yfirlýsingar gefnar í því sambandi. Ekki var þó alveg ljóst í einstökum atriðum, hversu þeim málum yrði háttað, en nú hlýtur þetta að vera orðið skýrt. Einn liður í útlánapólitíkinni eru reglur þær, sem á hverjum tíma eru hafðar um lán út á afurðir, bæði landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir, og þær reglur, sem hafðar eru um endurkaup seðlabankans á víxlum þeim, sem keyptir eru út á þessar afurðir af viðskiptabönkunum. Þessi fsp. er gerð til þess að reyna að fá það skýrt fram hér á hv. Alþ., hvaða útlánastefna hefur nú verið tekin upp að þessu leyti, og vil ég taka það greinilega fram, sem ég vona að hafi ekki misskilizt í sambandi við fsp., að ég á ekki aðeins við, hvernig lánað er út á þessar afurðir hjá viðskiptabönkunum, heldur einnig, hvernig háttað er endurkaupunum.