04.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í D-deild Alþingistíðinda. (3183)

906. mál, reikningar ríkisins í seðlabankanum

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Um lán seðlabankans út á landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir gilda nú reglur, sem stjórn seðlabankans setti með ályktun á fundi sínum 22. febr. s.l. Ályktunin er svo hljóðandi. með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn seðlabankans ákveður, að fyrst um sinn, þar til öðruvísi verður ákveðið, endurkaupi seðlabankinn afurðavíxla eftir sömu reglum og verið hefur fyrirfarandi með eftirtöldum takmörkunum:

1) Á hverja einingu fisks og fiskafurða verður ekki endurlánuð hærri krónutala en gert var 1959.

2) Endurkaup á landbúnaðarafurðavíxlum takmarkast mánaðarlega af þeirri hámarksfjárhæð, sem seðlabankinn endurkeypti í hverjum mánuði á árinu 1959, og hámarksupphæð endurkaupa landbúnaðarafurðalána á árinu 1960 takmarkast við 291 millj. kr.“

Ríkisstj. hefur ekki sett viðskiptabönkunum neinar reglur um lán út á afurðir. Það hefur verið og verður áfram ákvörðunarmál viðskiptabankanna sjálfra.