04.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (3194)
908. mál, efnahagsmál sjávarútvegsins
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það var svo um ýmsa þá, sem höfðu gert ráðstafanir til skipakaupa fyrir gengisbreytinguna, að þeir áttu eða höfðu til umráða þann þriðjung kaupverðsins, sem fiskveiðasjóður lánaði ekki.
Þegar gengisbreytingin hafði komið til framkvæmda og fiskveiðasjóður hafði hækkað lán sitt í samræmi við það, þannig að hann veitti 2/3 af endanlegum kostnaði, þá þurfti eigandinn enn að sjá um viðbótina á þeim þriðjungi, sem hann átti að greiða sjálfur, og þessi aðstoð, sem ég sagði í minni fyrri ræðu að ég vissi til að viðskiptabankarnir hefðu veitt í ýmsum tilfellum, var á þann hátt að lána kaupendunum upp í þennan þriðjung það, sem þá vantaði.