30.11.1959
Efri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Frsm. meiri hl. ( Magnús Jónsson):

Herra forseti. Svo sem nefndarálit meiri hl. fjhn. á þskj. 29 ber með sér, varð nefndin ekki sammála um afstöðu sína til þessa frv. Þrír nefndarmanna mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en 2 nefndarmanna töldu sig ekki reiðubúna þá til að taka afstöðu til málsins.

Svo sem hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir, er hann lagði frv. fyrir hv. d., er hér um að ræða heimild fyrir ríkisstj. til greiðslna úr ríkissjóði til febrúarloka 1960 samkv. fjárlögum ársins 1959, og er talið nauðsynlegt að fá þessa heimild, þar eð ljóst er, að fjárlög verða ekki afgr. fyrir árslok n.k. Meiri hl. n. taldi augljóst, miðað við allar aðstæður, að fjárlög yrðu ekki afgr. fyrir áramót og væri því hér ekki um að ræða annað en eðlilega ráðstöfun, sem aldrei hefur mætt andstöðu á þingi, að veita heimild til venjulegra fjárgreiðslna úr ríkissjóði, þar til ætla mætti, að fjárlög væru afgr.

Þeir hv. nm., sem ekki töldu sig, er afgreiðslu málsins í n. lauk, reiðubúna til að taka afstöðu til þess, hafa síðar skilað nái., sem ég á þessu stigi mun ekki gera að umtalsefni, fyrr en fyrir því hefur verið mælt. En það er sem sagt till. meiri hl. n., að frv. verði samþ. óbreytt.