11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í D-deild Alþingistíðinda. (3211)
910. mál, sjúkrahúsalög
Landbrh, (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er eðlilegt, að spurt sé um það, hvernig á því stendur, að l. nr. 36 frá 1956, um breyt. á sjúkrahúsalögunum, hafa ekki verið framkvæmd. En ég hygg þó, að hv. fyrirspyrjandi sé þessum málum nokkuð kunnugur, enda kom það fram í hans ræðu, að honum er ljóst, hversu þarfirnar eru miklar, ekki aðeins á Akranesi, heldur um land allt.
Ástæðan til þess, að þessi lög hafa ekki verið framkvæmd, hlýtur að vera aðeins sú ein, að fjárveitingar hafa verið of litlar til sjúkrahúsa á undanförnum árum. Fjárveitingar til byggingar sjúkrahúsa og læknisbústaða hafa verið þessar á tímabilinu frá 1952: þá var aðeina 1 millj. á fjárl., 1953 1½ millj., 1954 1½ millj., 1955 2 millj., 1956 2 millj. og 300 þús., 1957 3 millj., 1958 3 millj., 1959 2 millj. 850 þús. og 1960 2 millj. 850 þús. Ég hygg, að segja megi, að ráðh. heilbrigðismála á þessum árum hafi allir haft hug á því að fá þessa fjárveitingu hækkaða miklu meira en raun ber vitni til þess að geta mætt þörfinni, en þörfin hefur verið miklu meiri en svo, að fyrrv. landlækni og fyrrv. heilbrmrh. hafi fundizt mögulegt að bæta þarna á, enda er það svo, að sjúkrahúsin úti um land bíða eftir framlagi ríkisins.
Þessi lög voru samþykkt að tilstuðlan þáv. þm. Ak., Jónasar Rafnars, 1956, og hefði því átt að byrja að framkvæma þau á árinu 1957. Hér er ekki um heimildarlög að ræða, og þess vegna má segja, að úr því að l. fyrirskipa beinlínis, að þetta skuli gert, þá sé óeðlilegt, að þau hafi ekki verið framkvæmd.
Ég hef í rauninni ekkert um þetta að segja meira en það, að ástæðan fyrir því, að þetta hefur ekki verið gert, er einfaldlega sú, að fjárveitingarnar hafa ekki verið nægilega miklar til þess að verða við þessum óskum, og enn hafa í rauninni ekki verið dregnar hreinar línur um, hvað það er, sem á að styrkja og ekki styrkja. Og mér er kunnugt um það af plöggum, sem ég hef í mínum höndum, að bæjarstjórinn á Akranesi hefur leitað eftir þessu hjá heilbrigðisyfirvöldunum undanfarin ár án árangurs, og er þess vegna ekki ástæða til þess, að ég eyði fleiri orðum um það sem svar við þessari fsp. hans. En ég vil aðeins segja það, að það er vitanlega nauðsynlegt, að fjárveitingarnar hverju sinni séu sem mest í samræmi við framkvæmdirnar. En framkvæmdaviljinn hefur ávallt verið mikill hjá þjóðinni, sjúkrahúsaskorturinn hefur verið mikill um land allt og framkvæmdirnar hafa þess vegna ekki verið í hlutfalli við fjárveitingarnar. Sjúkrahúsunum hefur eigi að síður verið komið upp með fjármagni úr héruðum og lánsfé annars staðar frá, og má segja, að það sé gott, það sem komið er, og verjandi að vissu leyti, þótt ríkissjóður sé í talsverðri skuld vegna þessara framkvæmda.