11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í D-deild Alþingistíðinda. (3230)

913. mál, vextir af íbúðarlánum sparisjóða

Fyrirspyrjandi (Daníel Ágústínusson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. á þskj. 382, sem er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Hvaða ráðstafanir ætlar ríkisstj. að gera til hjálpar þeim mörgu húseigendum í kaupstöðum og kauptúnum víðs vegar um land, sem eiga föst húsnæðislán í sparisjóðum og verða nú að greiða af þeim 11% vexti.“

Það er af flestum viðurkennt, að vextir af íbúðarhúsnæði þurfa að vera lægri en venjulegir bankavextir. Þetta kemur m.a. fram í vaxtabreytingum þeim, sem gerðar voru í vetur sem einn liður í efnahagsráðstöfunum þeim, sem hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir. Þrátt fyrir 11–12% vexti af víxlum og hlaupareikningslánum eru lán veðdeildar Landabankans, sem veitt eru samkvæmt ákvörðun húsnæðismálastjórnarinnar, með 9% vöxtum, og eldri lán halda óbreyttum vöxtum, sem eru 7%.

Á undanförnum árum hefur mjög skort á það, að veðdeildin hafi fullnægt eftirspurn eftir lánum, a.m.k. í kaupstöðunum við Faxaflóa. Mér er kunnugt um það, að t.d. á Akranesi hafa fjöldamargir menn tekið húsnæðislán í sparisjóðnum á staðnum, því að afgreiðsla þeirra hefur gengið miklu fyrr en frá veðdeildinni, og hefur það eðlilega komið mönnum ákaflega vel. Þetta hefur orðið til þess, að miklu fleiri hafa þar á undanförnum árum fengið lán út á 1. veðrétt í húsum sínum í sparisjóðnum en veðdeildinni, enda munu fáir hafa óttazt nokkuð í því sambandi, þótt sparisjóðurinn tryggði sig fyrir breytingu á vöxtum, því að annað gat hann ekki, þar sem veltufé hans er nær eingöngu sparifjárinnlög. Eftir vaxtabreytinguna varð mönnum hverft við. Þá er þeim, sem eiga lán í sparisjóðnum, gert að greiða 11% vexti, en þeir, sem eiga lán sín í veðdeildinni, greiða áfram 7% vexti. Á nýjum lánum að upphæð 70–100 þús. kr. verður vaxtamismunurinn einn 2800–4000 kr. á ári. Hér er aukaskattur á manninn, sem í góðri trú valdi heldur þá leið að taka sparisjóðslánið en bíða árum saman eftir láni í veðdeildinni.

Ég hygg, að þessi dæmi séu algeng í kauptúnum og kaupstöðum víðs vegar um land, og þau eru hættuleg einmitt fyrir framkvæmd efnahagsmála hæstv. ríkisstj.

Allt misræmi er varhugavert, og þeir, sem verða þarna sérstaklega illa úti vegna hækkunar á vöxtum, komast ekki hjá því margir hverjir að gera einhvern mótleik, því að fjárhagur þeirra, sem nýlega hafa byggt, má oft ekki tæpara standa. Hann þolir engan árlegan skatt til viðbótar, hvorki í vöxtum né öðru. Mér er ekki kunnugt um það, hversu háar þessar lánsupphæðir í sparisjóðnum eru til íbúðarhúsa, en ég hygg, að þær séu þó hærri en svo, að veðdeildin geti nú veitt ný lán með 7% vöxtum til að greiða þau upp, þar sem stöðugur fjárskortur hefur ríkt í henni og eftirspurn er mikil, jafnvel þótt byggingarframkvæmdir dragist nú stórlega saman. Þess vegna væri nauðsynlegt, að hæstv. ríkisstj. gerði einhverjar ráðstafanir til að draga úr því hættulega misræmi, sem hér hefur verið gert að umtalsefni og sýnt fram á.